ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Lýður Árnason

Lýður Árnason

Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður. Bý í borg, sæki í sveit, barnmargur.

RANGUR MAÐUR Á RÖNGUM STAÐ

23:09 › 15. febrúar 2012

Viðskiptaþing var haldið í dag.  Þar kom í pontu forstjóri Samherja og átaldi íslenzka stjórnmálamenn fyrir slæma framkomu gagnvart forkólfum atvinnulífsins.  Er maðurinn búinn að gleyma gjöf þessarar sömu stéttar til útgerðamanna 1983 og árlegri úthlutun veiðileyfa allar götur síðan?   Sé það ekki rausn af hálfu ríkisvaldsins, hvað þá?   Er hann búinn að gleyma dextri stjórnmálamanna við fjármagnseigendur í aðdraganda hrunsins og hruni bankanna vegna þess, þ.á.m. eins sem hann sjálfur, Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnaði?   Gerir hann sér ekki grein fyrir að réttkjörin ríkisstjórn þessa lands væri þegar búin að fyrna 15% kvótans fengi hún frið fyrir hans líkum?   Hvað var þessi maður eiginlega að gera uppi í pontu á viðskiptaþingi?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?