Kristján Már Gunnarsson

Kristján Már Gunnarsson

Kristján Már Gunnarsson er læknanemi við Háskóla Íslands, atvinnubloggari og mikill áhugamaður um vísindi, heilsu og næringu. Hann hefur sérstaklega gaman af því að afsanna gamlar og úreltar kenningar um næringu og heldur úti mjög vinsælli vefsíðu á ensku, kriskris.com. Þessi skrif hér byggjast á persónulegum skoðunum Kristjáns og tengjast hans námi ekki á neinn hátt.

Sannleikurinn er oft á tíðum sár

13. júní 2012 › 10:42

Ég hef haft alveg gífurlegan áhuga á hreyfingu, næringu og heilsu undanfarin 5 ár. Á þessum tíma hef ég lesið hundruðir vísindagreina og margar bækur og greinar eftir lækna, vísindamenn, doktora og prófessora á hinum ýmsu sviðum.


Fljótlega rak ég mig á þá skrítnu staðreynd að sú almenna vitneskja sem gengur á milli manna um heilsu og næringu er oft á tíðum í algjörri andstöðu við þær vísindagreinar sem ég hef lesið.


En núna á undanförnum árum hef ég rekið mig á eitthvað enn furðulegra. Svo virðist sem að almennar leiðbeingar til fólks á vesturlöndum, þá sérstaklega næringarleiðbeingar, virðast frekar vera byggðar á þessari almennu vitneskju heldur en þeim fjöldamörgu vísindagreinum sem ég hef verið að lesa.


Nú hef ég verið að blogga um næringu og heilsu á ensku síðan 25. febrúar 2011 og hef skrifað nokkrar greinar hér á Íslensku. Ég hef einnig átt í mismiklum samskiptum við fjölda íslenskra fræðimanna í gegnum bæði athugasemdakerfi og tölvupóst.


Hægt er að raða þessum samskiptum í 4 flokka:


a) Nokkrir hafa sagt að þeir hafi verið á svipuðum skoðunum og ég í einhvern tíma og hrósa mér fyrir að þora að tjá mig um þetta. 


b) Aðrir hafa verið ósammála mér í fyrstu, en svo bendi ég þeim á nokkrar vandaðar vísindagreinar og þeir viðurkenna gildi þessara rannsókna, enda varla annað hægt þar sem um er að ræða greinar í virtum ritrýndum tímaritum.


c) Aðrir eru ósammála mér, en eru almennt málefnalegir og benda á að þrátt fyrir að greinarnar sem ég vísa í séu góðar þá sé túlkun mín á þeim kannski ekki alveg rétt.


d) Þá er komið að seinasta hópnum. Hér eru einstaklingar sem eru mjög ósammála mér, neita að viðurkenna gildi þeirra ritrýndu vísindagreina sem ég hef vitnað í og reyna að niðurlægja mig með persónulegum árásum.


Það fer lítið fyrir hópum a-c, enda vilja þeir oft á tíðum ekki koma fram undir nafni. Þetta skil ég mjög vel því að eins og hefur sannast á mér þá verða þeir sem tjá sig gegn ríkjandi skoðun gjarnan fyrir sterkum þrýstingi og árásum frá öðrum einstaklingum innan fræðasamfélagsins. 


Mig langar að lýsa þessum seinasta hóp svolítið nánar.


Þessi hópur samanstendur án undantakninga af einstaklingum sem hafa starfað í matvæla- og næringargeiranum í langan tíma. 


Þessir einstaklingar eru mjög háværir og þeir neita að viðurkenna gildi þeirra vísindagreina sem ég vísa í til að styðja við mitt mál.


Þetta eru greinar og rannsóknir sem birtast í mjög virtum, ritrýndum tímaritum eins og Nature og American Journal of Clinical Nutrition. Oft á tíðum eru rannsóknirnar slembaðar samanburðarrannsóknir (e. randomized controlled trials). Eins og allir í þessum geira vita eru slíkar rannsóknir best til fallnar til að sýna fram á orsök og afleiðingu í mönnum.


Slíkar rannsóknir eru "gullstandardinn" til að sanna hluti á mönnum og eru svipaðar rannsóknir meðal annars notaðar til að sýna fram á virkni lyfja.


Þrátt fyrir að þetta séu rannsóknir og greinar af hæsta gæðaflokki þá neitar þessi háværi hópur fræðimanna að horfast í augu við þær.


Ég tel mig vera að gera góðan hlut með því að koma sannleikanum á framfæri. Auðvitað væri það betra ef einhver þessara fræðimanna myndi gera það, en þeir eru ekki að standa sig í stykkinu svo að ég ákvað að taka það að mér.


Þetta snýst ekki um mig, heldur snýst þetta um að koma sannleikanum á framfæri. Sannleik sem er svo gott sem vísindalega sannaður.


Þessir einstaklingar sem ég á við hér hafa ekki getað sýnt fram á nein rök eða vísindarannsóknir til að sýna fram á að ég hafi rangt fyrir mér með eitt né neitt.


Í stað þess kjósa þeir að kalla minn málflutning "bull", "vitleysu" og "kukl" og grípa til þeirra ráða að skipta um umræðuefni og snúa út úr þegar ég spyr þá beinna spurninga.


Þessir einstaklingar hafa kallað mig "hættulegan", "varasaman" og að nú ætti háskólinn og landlæknisembættið að grípa inn í og stoppa mig af.


Það er þannig að það er málfrelsi á Íslandi og að ég hef rétt á að tjá mig um það sem ég vil, auk þess sem þessi skrif tengjast mínu námi ekki á neinn hátt.


Þessi þróun á sér nú stað um allan heim. Fjöldinn allur af bæði einstaklingum og fræðimönnum er byrjaður að setja sig upp á móti þeirri röngu stefnu sem hefur verið ráðandi í næringu og lýðheilsu, með svo skelfilegum afleiðingum fyrir heimsbyggðina.


Hér er um að ræða róttækar breytingar, en það er vitað mál að oft þegar að verða róttækar breytingar á sviði vísinda þá setja margir vísindamenn sig upp á móti. Þar eru í fararbroddi þeir sem hafa starfað lengi og jafnvel byggt feril sinn á þeim kenningum sem verið er að afsanna. 


Ég mun ekki láta persónulegar árásir, skítkast eða hræðsluáróður þessara einstaklinga hafa áhrif á mig, enda var ég þessu algjörlega viðbúinn þegar ég byrjaði á þessari braut.


Þrátt fyrir að það sé einhverjum einstaklingum óþægilegt þegar það er skorað á þeirra skoðanir með svo sterkum hætti, þá finnst mér vera mun mikilvægara en tilfinningar þessara manna, að fólk fái að vita sannleikann.


Hér eru í húfi líf og heilsa fólks, hvorki meira né minna.


Fólk hefur rétt á að vita sannleikann um sína eigin heilsu og matinn sem það er að borða, svo að það geti tekið rökstuddar og skynsamlegar ákvarðanir fyrir sjálft sig.


Síðan mín: kriskris.com



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.