Í Stóru Þjóðinni á stöð2 í gær var mikið fjallað um "ruslmatarfíkn".
Sjálfur er ég algjörlega sannfærður um að ruslmatarfíkn sé alvöru fyrirbæri, sem ber að taka alvarlega.
Sem óvirkur fíkill tel ég mig geta fullyrt það að fíkn í ruslmat er nákvæmlega sama tilfinning og fíkn í nikótín, eiturlyf, áfengi o.fl.
Auðvitað fá ekki allir ruslmatarfíkn, en ég tel að hún sé raunverulegt vandamál og oft ein helsta ástæða þess að sumt fólk getur ekki hætt að borða óhollan mat, sama hvað það reynir.
Mín skilgreining á ruslmat: Unninn matur sem inniheldur sykur, hveiti, transfitur eða jurtaolíur. Góð dæmi eru pizzur, nammi, ís, gosdrykkir, kökur, kleinuhringir o.fl.
1. Margar misheppnaðar tilraunir til að hætta
Þér hefur mistekist oft og mörgum sinnum að minnka neyslu á óhollum mat.
Þetta á sérstaklega við að mistakast að setja og fylgja reglum eins og að borða bara nammi á laugardögum eða að fá þér aldrei kökur nema í veislum.
2. Þú færð langanir þrátt fyrir að hafa borðað nóg
Þú varst að enda við að borða góða og næringarríka máltíð og hefur enga líkamlega þörf fyrir meiri mat, samt færðu löngun í ruslmat.
3. Færð þér smá, en endar með að borða heilan helling
Þú ákveður að gefa eftir lönguninni og færð þér bara örfáa bita. Svo endarðu með að borða miklu meira en þú hafðir ætlað þér.
4. Heldur áfram að borða eftir að þú ert södd/saddur
Þú ert að borða ruslmat en stoppar ekki þegar þú ert búin(n) að fá nóg og heldur áfram þangað til þú ert "að springa" og jafnvel farið að vera illt í maganum.
5. Færð samviskubit eftir á, en endurtekur leikinn fljótlega
Þú færð samviskubit eftir að "svindla" og ákveður að þetta hafi verið seinasta skiptið sem þetta kemur fyrir í langan tíma, núna ætlarðu að halda stjórn.
En... þú endurtekur leikinn skömmu seinna, sem endar aftur með samviskubiti og ákvörðun um að bæta þig.
Í sumum tilvikum gætirðu skammast þín svo mikið fyrir þennan veikleika að þú ferð að fela neysluna fyrir fjölskyldu og vinum.
6. Býrð til afsakanir í höfðinu um af hverju þú ættir að fá þér
Eitt helsta einkenni þess að vera fíkill er að búa til afsakanir fyrir sjálfum sér um af hverju maður ætti að láta undan fíkninni.
Til dæmis hefurðu kannski ákveðið að þú ætlir að borða hollan mat alla þessa viku og fá þér ekkert nammi fyrr en á laugardag. Svo skyndilega byrjarðu að rökræða við sjálfa(n) þig í hljóði um hvort þú ættir að svindla eða ekki.
Þessi tilfinning er svolítið eins og barátta á milli tveggja hugmynda í hausnum á þér. Skynsemin segir þér að þú eigir ekki að fá þér en löngunin reynir að sannfæra þig um að þú hafir einhverja góða ástæðum til að láta undan.
Yfirleitt þegar þessi rökræða fer af stað verður fíknin skynseminni yfirsterkari.
7. Getur ekki hætt þrátt fyrir líkamleg vandamál
Þú ert kannski farin(n) að þjást af offitu. Kannski er blóðsykurinn farinn að fara úr jafnvægi. Kannski er læknirinn farinn að tala um að setja þig á lyf til að lækka blóðþrýstinginn eða blóðfituna.
En það þarf ekki endilega að vera svo alvarlegt. Hugsanlega ertu bara búin(n) að þyngjast smá eða tennurnar farnar að skemmast.
Þú veist að helsta ástæðan fyrir þessum líkamlegu vandamálum er óholli maturinn sem þú borðar, en samt geturðu ekki hætt.
Á þetta við um þig, eða einhvern sem þú þekkir?
Ef þú reykir eða þekkir einhvern sem reykir, þá ættirðu auðveldlega að geta sett orðið "sígaretta" í stað fyrir "ruslmatur" að ofan. Þú getur einnig sett inn orðin hass/amfetamín/áfengi o.fl. Einkennin eru þau sömu að mörgu leyti.
Ef mörg þessara einkenna passa við þig, hvað þá öll atriðin, þá áttu líklega við alvarlegt vandamál að stríða.
Að lokum vil ég bjóða þér að skoða síðuna mína (á ensku), en hér er vinsælasta grein sem ég hef skrifað: How to Lose Weight Fast, Without Being Hungry.
