ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Skáldið skrifar

Skáldið skrifar

Kristján Hreinsson eflaust er

öðlingur hinn mesti

þó er blogg hans bara hér

birt á viku fresti.

  • MÁVAHLÁTUR

    7. júlí 2011

    Þessa dagana hlakkar mávurinn yfir eggjum og ungum. Sumir segja mér að mávurinn sæki inná land, frekar en oftast áður, vegna hlýnunar sjávar, aðrir segja ástandið vera vegna þess að loðnustofninn er ekki til skiptanna; menn fá allt en mávar ekkert. Reyndar veit ég ekkert um ástæðurnar. En mér er sagt að veiðibjöllur sjáist á flugi um hálendið og éti rjúpuunga, rétt einsog alla aðra unga sem að goggi koma.
      Er til einhver leið? Er hægt að fara þá leið sem hinn ágæti sjónvarpsmaður, Gísli Marteinn, viðraði hér um árið, þ.e.a.s. taka fram haglarann og freta á kvikindin ... ?
      Ég hef fylgst lengi með fuglalífinu hérna í Skerjafirðinum og úti á Nesi. Núna er ástandið þannig, að mávurinn situr og bíður eftir því að endurnar, tjaldurinn, stelkurinn og aðrir fuglar verpi. Og svo vappar hann á staðinn og gleypir allt sem að goggi kemur.
      Ég vil meina að við verðum að grípa til einhverra ráða svo fækka megi verulega þeim vargfugli sem núna er vágestur víða um land.

    Skrifa athugasemd

  • STUTT BLOGG

    5. júlí 2011

    .

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?