Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal kemur úr afskekktri sveit á Ströndum en hefur sest að á höfuðborgarsvæðinu. Hún skrifar mikið og hefur mikla tjáningarþörf og tjair sig um allskyns málefni, umbeðin og óumbeðin. Kidda hefur mikinn áhuga á mannlegu atferli og hefur sérstakt dálæti á kynlegum kvistum auk þess sem hún hefur líka talsverðan áhuga á fötum, tísku, hönnun og fleira. Viljirðu hafa samband við hana er netfangið hennar kiddasvarfdal@gmail.com

  • Veldu þér skemmtilega vinnu!

    24. júní 2012

    Ég er mjög heppin að vinna vinnu sem mér finnst svo skemmtileg! Það er alls ekki sjálfsagt og í dag er ekkert hlaupið að því að fá vinnu, hvað þá draumavinnuna þína.


    Flestir eyða 8 tímum á sólarhring í að vinna. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa gaman að vinnunni sinni og hafa metnað fyrir því sem þú ert að gera. Það er skelfilegt að vera að gera leiðinlega hluti í 8 tíma á dag og ömurlegt að eyða svo frítímanum í að kvíða fyrir því að fara í vinnuna. 


    Þýsk atvinnumiðlun gerði auglýsingaherferð sem minnir svo vel á þetta, algjör snilld!

    Skrifa athugasemd

  • Töffari dettur beint á rassinn!!

    22. júní 2012

    Þegar ég var lítil hlustaði ég mikið á allskonar rokk og Axl Rose fannst mér bara einn af MESTU og flottustu töffurunum! 


    En maður getur ekki alltaf verið töff og auðvitað á hann sín móment þar sem hann tapar kúlinu :) 


    Skrifa athugasemd

  • 8 hlutir sem ég ætla að gera á næstu 5 árum

    21. júní 2012

    Ég á mér marga drauma og margir myndu kannski kalla mig draumóramanneskju, ætli ég hafi það ekki frá honum pabba mínum og fæ svo á móti frá mömmu minni að vera jarðbundin. Það getur virkað mjög vel saman en stundum skarast þessir „kostir“ á. 


    Ég ákvað að gera lista yfir þá hluti sem ég hef aldrei gert en dreymir um að gera, margt af þessu hefur mig dreymt um í mörg ár en hef ekki látið verða af því einfaldlega vegna þess að ég hef ekki haft tíma eða fjármagn til þess. Ef listinn er hérna þá eru meiri líkur á að ég framkvæmi þetta, þannig virka ég bara.



    1. Hoppa úr flugvél í fallhlíf (já ég þori)

    2. Kafa í vatni eða sjó (langar ekki að kafa í sundlaug)

    3. Taka byssuleyfi (langar að fara á rjúpu, borða þær ekki en væri til í að veiða) 

    4. Syngja opinberlega (fyrir fleiri en 4 í einu)

    5. Taka mótorhjólapróf (langar það bara!!)

    6. Kaupa mér vélsleða (langar að eiga sleða til að fara með í sveitina)

    7. Fara í siglingu í Karabíska (ok eða bara eitthvað rólegt sumarleyfi)

    8. Teygjustökk (ekki viss um að ég myndi þora þegar á hólminn væri komið, er svo hrædd við „bouncið“, að ég skjótist bara eitthvert utan í hús eða eitthvað)

    Skrifa athugasemd

  • Er þetta mjúka týpan?

    18. júní 2012


     

    Skrifa athugasemd

  • Ómáluð eða rosalega grönn?

    15. júní 2012

    Ég sá þessa mynd á netinu og fyrirsögnin var „Kelly Osbourne Without Make-up“ 


    Mér finnst alltaf „fréttir“ um að stjörnurnar séu ómálaðar mjög þunnt fréttaefni, en það sem fékk mig til að smella á fréttina var að sjá myndina af Kelly betur. Það sem sló mig meira var hvað hún er orðin hrikalega grönn stelpan!  


    Ég held að það væru örugglega fleiri sem vildu vita hvaða megrunarprógramm hún notaði frekar en að sjá hana ómálaða :) 

    Skrifa athugasemd