-
Næstum því banaslys
21. ágúst 2012
Ég lenti í frekar óskemmtilegri lífsfreynslu í dag. Ég var að keyra í burtu frá heimili mínu og er að keyra niður brekku þegar ég heyri zzzzzzzzzzzziiiiiiizzzzzzzzz (fluga) við vinstra eyrað á mér.
Ég lít til vinstri og sé þennan fína stóra geitung inni í bílnum við hliðina á mér, alveg kolvitlaus á rúðunni. Ég hugsaði „ok Kidda róleg, ekki snappa, hann gerir ekkert, hann vill bara komast út“ svo ég teygji mig í takkann til að láta rúðuna niður og hugsaði að hann myndi þá bara fjúka út, eins og allar venjulegar flugur myndu gera.
En viti menn, þessi ógeðs geitungur (sem ég er viss um að var drottning því hann var STÓR) tók upp á því að fljúga beint framan í mig þegar rúðan var komin niður. Ég væri til í að geta lýst hljóðinu sem kom frá mér þegar helvítið var að reyna að flækjast í hárinu við hálsinn á mér. Það var ekki óp heldur meira eins og það væri bundið fyrir munninn á mér og ég væri að reyna að öskra þannig. Móðursýkishljóð! Ég var að sjálfsögðu fljót að missa stjórn á bílnum og komin á rangan vegarhelming í „frábærum“ gír, en SEM BETUR FER hætti ég að heyra suðið en ég þorði ekki að hreyfa mig. Ég vissi ekki hvort kvikindið var farið út eða væri bara búið að koma sér vel fyrir á mér einhversstaðar og ég gat ekki komist í að tékka almennilega á því fyrr en ég var komin á öruggan stað þar sem ég gat farið út úr bílnum og leitað af mér allan grun. Þetta voru erfiðar 10 mínútur.
Gleðilegt geitungasíðsumar
Skrifa athugasemd
-
Þetta lærðum við af FRIENDS
11. ágúst 2012
Skrifa athugasemd
-
Með hæstu launin!
2. ágúst 2012
Langt aftur í aldir hafa margar kynslóðir af sjómönnum sinnt vinnu sinni fjarri landi, fjölskyldu, vinum og því sem okkur "landkröbbunum" þykir sjálfsagt.
Það hefur farið örlítið fyrir brjóstið á mér að sjá hvernig fréttirnar hafa sagt frá því að "sjómenn séu tekjuhæstir stétt landsins" og þar með hærri en læknar, forstjórum og fleiri. Mér finnst þessar samlíkingar ekki samanburðarhæfar! Án þess að ég ætli að lasta það sem forstjórar og læknar gera en þeir þurfa ekki að fara frá fjölskyldum sínum og heimili í margar vikur og jafnvel mánuði til þess að sinna vinnu sinni og eru ekki í jafnmikilli hættu og sjómenn. Það er bara gefið mál! Að sjálfsögðu er það frjálst hverjum og einum við hvað þeir starfa en það er áreiðanlega einmitt vegna launanna sem menn leggja þetta á sig, ekki er það fyrir fríðindin og frítímann. Ég veit til dæmis að á sumum togurum eru mennirnir að vinna 8 tíma, frí 8 tíma, vinna 8 tíma og svo koll af kolli og þetta er heilmikil erfiðisvinna.
Við vitum fæst hvað sjómennirnir okkar eru að gera þegar þeir eru í vinnunni. Við vitum að þeir eru að veiða, en þetta er auðvitað alls engin dans á rósum. Áhöfnin á Þór hf gerði þetta skemmtilega myndband sem gefur manni smá hugmynd um hvernig lífið er um borð.
Skrifa athugasemd
-
Geðsjúkdómar í Þúsundekruskógi
29. júlí 2012
Það hafa flestallir séð teiknimyndirnar um Bangsímon og félaga en það sem færri vita er að þar er ekki allt með felldu. Allavega ef marka má Matthew Wilkinson en hann er með ákveðnar hugmyndir um hvað er að þeim.
Það eru áreiðanlega einhverjir búnir að sjá þetta en ég var að sjá þetta í fyrsta skipti. :) Það er gaman að horfa á Bangsímon með þetta bak við eyrað.

Bangsímon á við offituvandamál að stríða

Jakob er geðklofi

Eyrnaslapi er þunglyndur

Kaninka er með áráttu og þráhyggjurökun

Tígri er með ADHD

Gríslingur er með kvíðaröskun
Uglan er haldinn sjálfsást en því hefur verið haldið fram að Breivik sé haldinn mikilli sjálfsást.Skrifa athugasemd
-
Húðlitaðar leggings- EKKERT jafn töff!!
26. júlí 2012

Skrifa athugasemd

