Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal kemur úr afskekktri sveit á Ströndum en hefur sest að á höfuðborgarsvæðinu. Hún skrifar mikið og hefur mikla tjáningarþörf og tjair sig um allskyns málefni, umbeðin og óumbeðin. Kidda hefur mikinn áhuga á mannlegu atferli og hefur sérstakt dálæti á kynlegum kvistum auk þess sem hún hefur líka talsverðan áhuga á fötum, tísku, hönnun og fleira. Viljirðu hafa samband við hana er netfangið hennar kiddasvarfdal@gmail.com

Næstum því banaslys

21. ágúst 2012 › 14:29

Ég lenti í frekar óskemmtilegri lífsfreynslu í dag. Ég var að keyra í burtu frá heimili mínu og er að keyra niður brekku þegar ég heyri zzzzzzzzzzzziiiiiiizzzzzzzzz (fluga) við vinstra eyrað á mér. 


Ég lít til vinstri og sé þennan fína stóra geitung inni í bílnum við hliðina á mér, alveg kolvitlaus á rúðunni. Ég hugsaði „ok Kidda róleg, ekki snappa, hann gerir ekkert, hann vill bara komast út“ svo ég teygji mig í takkann til að láta rúðuna niður og hugsaði að hann myndi þá bara fjúka út, eins og allar venjulegar flugur myndu gera.


En viti menn, þessi ógeðs geitungur (sem ég er viss um að var drottning því hann var STÓR) tók upp á því að fljúga beint framan í mig þegar rúðan var komin niður. Ég væri til í að geta lýst hljóðinu sem kom frá mér þegar helvítið var að reyna að flækjast í hárinu við hálsinn á mér. Það var ekki óp heldur meira eins og það væri bundið fyrir munninn á mér og ég væri að reyna að öskra þannig. Móðursýkishljóð! Ég var að sjálfsögðu fljót að missa stjórn á bílnum og komin á rangan vegarhelming í „frábærum“ gír, en SEM BETUR FER hætti ég að heyra suðið en ég þorði ekki að hreyfa mig. Ég vissi ekki hvort kvikindið var farið út eða væri bara búið að koma sér vel fyrir á mér einhversstaðar og ég gat ekki komist í að tékka almennilega á því fyrr en ég var komin á öruggan stað þar sem ég gat farið út úr bílnum og leitað af mér allan grun. Þetta voru erfiðar 10 mínútur. 


Gleðilegt geitungasíðsumar



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.