Langt aftur í aldir hafa margar kynslóðir af sjómönnum sinnt vinnu sinni fjarri landi, fjölskyldu, vinum og því sem okkur "landkröbbunum" þykir sjálfsagt.
Það hefur farið örlítið fyrir brjóstið á mér að sjá hvernig fréttirnar hafa sagt frá því að "sjómenn séu tekjuhæstir stétt landsins" og þar með hærri en læknar, forstjórum og fleiri. Mér finnst þessar samlíkingar ekki samanburðarhæfar! Án þess að ég ætli að lasta það sem forstjórar og læknar gera en þeir þurfa ekki að fara frá fjölskyldum sínum og heimili í margar vikur og jafnvel mánuði til þess að sinna vinnu sinni og eru ekki í jafnmikilli hættu og sjómenn. Það er bara gefið mál! Að sjálfsögðu er það frjálst hverjum og einum við hvað þeir starfa en það er áreiðanlega einmitt vegna launanna sem menn leggja þetta á sig, ekki er það fyrir fríðindin og frítímann. Ég veit til dæmis að á sumum togurum eru mennirnir að vinna 8 tíma, frí 8 tíma, vinna 8 tíma og svo koll af kolli og þetta er heilmikil erfiðisvinna.
Við vitum fæst hvað sjómennirnir okkar eru að gera þegar þeir eru í vinnunni. Við vitum að þeir eru að veiða, en þetta er auðvitað alls engin dans á rósum. Áhöfnin á Þór hf gerði þetta skemmtilega myndband sem gefur manni smá hugmynd um hvernig lífið er um borð.
