Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal

Kidda Svarfdal kemur úr afskekktri sveit á Ströndum en hefur sest að á höfuðborgarsvæðinu. Hún skrifar mikið og hefur mikla tjáningarþörf og tjair sig um allskyns málefni, umbeðin og óumbeðin. Kidda hefur mikinn áhuga á mannlegu atferli og hefur sérstakt dálæti á kynlegum kvistum auk þess sem hún hefur líka talsverðan áhuga á fötum, tísku, hönnun og fleira. Viljirðu hafa samband við hana er netfangið hennar kiddasvarfdal@gmail.com

Kosningar - Húrra Húrra Húrraaaa

27. júní 2012 › 09:24

Ég er komin með nett ógeð af þessari forsetakosningabaráttu! Ég held að margir séu sammála mér um að þetta er komið langt yfir skynsemismörk og hefur náð þeim botni að verða frekar subbulegt oft á tíðum. 


Það er verið að draga allt fram!! Allt sem þessi eða hinn sagði í þessu og hinu viðtalinu, í hvaða samtökum fólk hefur verið eða neitað að taka þátt í, hverju fólk svaraði og hvernig það var spurt spurninga og svo framvegis. Þetta er farið að minna á einelti eða slæman hjónaskilnað. 


Ég viðurkenni það fúslega að ég er ekki búin að sökkva mér í það að finna hver af þessu ágæta fólki hentar mér og Íslandi best, en ég hef kynnt mér þetta nokkuð vel og er fyrir löngu búin að ákveða hvern ég ætla að kjósa. Ég ætla mér hinsvegar ekki að gefa höggstað á mér með því að segja frá því hérna. 


Kosningarnar eru á laugardaginn og ég fagna því að þessi „vinsældakeppni“ er að enda!


 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.