-
Nei við erum ekki skyldar!
19. maí 2012
Þessar 8 stelpur eru allar í sama skóla í Kaliforníu. Þær eiga ekki sömu vini og jafnvel ekki sömu áhugamál en þær bera allar sama eftirnafnið. Nguyen.
Þar sem fólki er raðað eftir stafrófsröð (eftir eftirnafni) í árbók skólans var það ljóst að þessar stúlkur myndu allar deila sömu opnu bókarinnar. Þær ákváðu því að nota sér aðstæðurnar og gera smá grín.
Þær klæddust allar sömu peysunni og í stað háfleygu setningarinnar sem flestir setja fyrir neðan nafnið sitt þá mynduðu þær allar sömu setninguna "We Know What You´re Thinking And No We´re Not Related" eða "Við vitum hvað þið eruð að hugsa og nei við erum ekki skyldar".
Snillingar!
Skrifa athugasemd
-
Chuck Norris hvað?
18. maí 2012
Síðustu misseri hafa Chuck Norris brandarar verið mjög vinsælir, í það minnsta hef ég orðið mikið vör við þá. Án efa eru örugglega margir komnir með ógeð af þessu en ekki ég :) Ég var ekki að fatta þetta til að byrja með og spurði bara "hver er Chuck Norris?" og þá var svarið, "æi hann er einhver leikari".... svo það var aldrei heil brú í þessu fyrir mér. En svo fékk ég að vita það seinna... húmorinn er semsagt sá að það veit enginn hver hann er .... en hann er OFUR töff!!!! OFUR töff!! Meira svalur en allir aðrir!
Skrifa athugasemd
-
Á ég í alvöru að borga fullt verð?
17. maí 2012
Börnum finnst mörgum mjög gaman í bíó, bæði að fá að sjá nýja teiknimynd, fá bíópopp og kannski eitthvað meira. Þetta er bara stemning.
Mér finnst líka gaman að fara með börn í bíó og ég vil alls ekki að það verði misskilið með þessu bloggi en ég verð að koma þessu á framfæri.
Ég fór um daginn með 3 litlar í bíó. Ein af þeim er reyndar ekki svo lítil því hún er 12 ára. Ég borgaði fyrir okkur og það var 1.250 kr fyrir mig, 1.100 fyrir þá 12 ára og 700 kr á mann fyrir þessar minni. KOMMON ég man þegar miðinn kostaði 350 kr á mann.
En allavega, ég borga að sjálfsögðu fullt verð fyrir mig, sama og ég myndi borga ef ég væri að fara í "fullorðinsbíó" og sitja í makindum í 1 og hálfan tíma og horfa á mynd fyrir mig. Það sem ég gerði hins vegar fyrir þennan 1.250 kall var ALLT annað en að horfa á myndina.
Ég fór 6 sinnum á klósettið með skottunum, það helltist niður heilt kókglas og ég þurfti að bjarga málunum og svo var einni of heitt og annarri of kalt og þannig gekk þetta svona að mestu leyti. Ég veit að myndin gerðist neðansjávar og það er eiginlega allt og sumt. Eins og ég sagði hér að undan þá finnst mér gaman að fara í "barnabíó" en ég fór að hugsa eftir þessa ferð, því ég sá að margir foreldrar voru þarna í svipuðum málum og ég: Væri ekki sterkur leikur hjá bíóhúsunum að hafa foreldraafslátt á barnamyndunum? Er það ekki alveg sanngjarnt? Ég veit að það eru sum bíó með sýningar á afslætti kl 13 en margir eru með börnin sín á æfingum og svoleiðis á þessum tíma svo það hentar ekki öllum.
Ég er viss um að margir spara sér 1.250 kr með því að senda börnin ein í bíó og sækja þau bara strax eftir, ég sá svoleiðis börn í salnum, UPPÁ SÆTISBÖKUNUM :) ég held að það sé betra að vera með einhvern sem passar upp á ungana :)
Góðar stundir!
Skrifa athugasemd
-
8 frábærir punktar til karlmanna
16. maí 2012
Konur eru mjög framandi í augum karlmanna. Mér finnst það ekki skrýtið, við upplifum skapsveiflur vegna hormóna sem verða stundum það miklar að mér finnst ég stundum varla þekkja sjálfa mig. Og JÁ hormónar eru raunverulegir. Ég hélt alltaf að hormóna"afsakanir" væru afsakanir kvenna sem væru bara erfiðar í skapi eða væru búnar með allar aðrar afsakanir í bókinni, en ég hef með aldrinum kynnst því á eigin skinni að þeir eru raunverulegir og hafa raunveruleg áhrif á líf okkar.
Ég fann hérna nokkur ráð frá þekktum konum sem gætu nýst ringluðum karlpeningnum vel í samskiptum við okkur konurnar :)
Skrifa athugasemd
-
Saknarðu melónanna hennar mömmu?
14. maí 2012
Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki mjög viðkvæm fyrir grófu gríni og get sjálf sagt brandara sem fólki gætu þótt óviðeigandi.
EN nú er mér allri lokið! :)
Ég var að horfa á nýlega teiknimynd með dóttur minni sem var talsett á íslensku. Ég er svona hálft í hvoru að hlusta en svo dett ég inn í að hlusta á eitt samtal. Þá var ein söguhetjan spurð með háði "Saknarðu melónanna hennar mömmu þinnar?" og viðkomandi svarar ekki en þá öskrar annar á hann "ekki jafn mikið og pulsunar hans pabba þíns?!!"
Seinna í þessari sömu mynd er sagt "Hvað eigum við að gera núna?" og þá er svarið "Ríða..........................(löng þögn) ..... ÚT.
Ég sver þetta! Mér finnst vanalega mjög gaman að "foreldrabröndurum" í barnaefni en mér fannst þetta eiginlega vera of greinilegt. Það er allavega stutt í að dóttir mín kveiki á perunni.
Skrifa athugasemd




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
