Jóna Á. Gísla

Jóna Á. Gísla

Sauður í kvenmannsgæru. Haldin val- og ákvörðunarkvíða. Það gæti endurspeglast í blogginu. Er þó yfirleitt á léttu nótunum.
Netfang: jonagisla@internet.is

Draugagangur heima hjá mér í morgun

21. júní 2012 › 16:28

Hvað er það sem við eigum öll sameiginlegt, segir oft til um lífsstíl og líkamlegt heilbrigði en er sjaldnast rætt opinskátt?


Kominn tími til að rifja upp listann:


 


Draugadrjólinn: Þú finnur hann koma út, en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir


Sá Hreini: Sá sem þú kemur frá þér og sönnunin sjáanleg í skálinni, en það er ekkert á skeinipappírnum 


Eltihrellirinn: Þú ert búinn að kúka og girða hálfa leið upp um þig þegar þú fattar að þú þarft að kúka meira


Sprengja-æð-í-enninnu hnullinn: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum því slag


Dauðadrumburinn: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti


Loftpressukúkurinn: Kemur með svo miklum látum að nágranninn hringir í 112


Þynnkuskitan: Helstu einkenni eru bremsuförin í skálinni


Maískólfurinn: Skýrir sig sjálft


Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkurinn: Þér er svakalega mikið mál, en situr bara á dollunni og fretar frá þér allt vit


Mænustungan: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum


Rasskinna-bleytu-þrumarinn: Þýtur út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennblotnar af klósettvatni


Frussi fríski: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel upp á rasskinnar í leiðinni. Hér kæmi þvottapoki og gerileyðandi sér betur en skeinipappír


Aristókratinn: Kúkur sem lyktar ekki


Sá Óvænti: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst þú þyrftir bara að prumpa


Atómsprengjan: Það svíður á leiðinni út og svíður enn nokkrum klukkustundum seinna


Skopparinn: Hörð spörð sem þjóta eins og skopparaboltar um alla skálina. Kostur hversu lítið þarf að skeina


Mikilmennskubrjálæðingurinn: Þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið krúttlegt lambasparð


Íþróttaálfurinn: Kemur sirka klukkustund eftir átök í ræktinni


Skærin: Þessi er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa - kúka.....


 


Góðar hægðir.. nei stundir


 


 


 


 


 


 


 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.