Jón Ragnar Björnsson

Jón Ragnar Björnsson

Mér er ekkert óviðkomandi, hef skoðun á sumu, öðru ekki. Ég er enn að vonast til að við fáum Nýtt Ísland upp úr hruninu. Ekkert viss um að það takist, því gömlu valdaklíkurnar gefa ekki þegandi eftir og ef þær lognast út af koma nýjar í staðinn. –Ísland fyrir alla!

Ég sakna góðærisins

27. maí 2012 › 22:26

Allt lék í lyndi í góðærinu. Allt var hægt og allt var leyfilegt.


Ég sakna þess að geta ekki rölt inn í næsta banka og keypt mér hús –án þess að borga. Maður skrifaði bara undir einhverja pappíra, borgaði smáræði mánaðarlega og málið dautt.  


Ég sakna þess að geta ekki rölt inn í næsta bílaumboð og keypt mér jeppa og bætt einum litlum bíl á reikninginn. Það var þægilegt að hafa tvo bíla og maður fann ekkert fyrir því að borga af þeim mánaðarlega.


Ég sakna þess að geta ekki farið í tvær þrjár utanlandsferðir á ári. Ég lét mér að vísu nægja farþegaflugvélar til ferðalaga. Ég gerði engan reka að því þótt einkaþota tæki fram úr vélinni minni með nokkra ástsæla útrásarvíkinga (hvað við elskuðum þá og dáðu) og forseta vorn innan borðs. Þegar ég loksins kom á leiðarenda var mér tekið með kostum og kynjum, því forsetinn var búinn að skýra  fjölmiðlum frá því að við værum öðrum fremri, gáfaðri, glæsilegri, menntaðri og hefðum þessi einstöku gen sem óþekkt væru meðal annarra manna og m.a. gerðu að verkum að við værum eldfljót að hugsa.


Ég sakna þess þegar alþingismenn gátu samþykkt eftirlaunalögin fyrir sig og þurftu ekkert að hlusta á nörda sem tuðuðu um sérhagsmuni fyrir elítuna. Ég hafði aldrei stórar áhyggjur af þessu, átti alltaf von á smjörklípu í staðinn handa mér og mínum.


Ég sakna þess þegar okkur vegnaði svo vel í Júróvision. Þá var önnur stjórn. Líklega togaði ESB í einhverja spotta í gærkveldi. Það var ekki eðlilegt hvað við lentum neðarlega. Kannski er það ríkisstjórninni  að kenna eins og flest annað sem aflaga fer nú til dags. Eða kannski vegna þess að ég held að Jóhanna og Steingrímur séu laglaus.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.