ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhannes Ragnarsson

Jóhannes Ragnarsson

Ég er búsettur í Ólafsvík og starfa þar sem rannsóknamaður á útibúi Hafrannsóknastofnunar. Er fyrrverandi sjómaður, verkamaður, hafnarvörður og formaður verkalýðsfélags.

Skollafinka sást austur á Héraði

21:50 › 9. febrúar 2012

Nokkru fyrir síðustu jól, sást spörfuglinn skollafinka í fyrsta skipti á Íslandi. Skollafinka er lítill fugl, ættaður austan úr Indónesíu og á þar heldur litlum vinsældum að fagna. Þetta var karlfugl og hélt sig í hópi með snjótittlingum austur á Héraði.


Óvinsældir skollfinkunnar á heimslóðum hennar er einkum raktar til þess að flugl þessi hefur ytri kynfæri, ekki ólík samskonar tólum mannfólksins, og þykir hún þessvegna óvenju dónaleg dýrategund og er mikill þyrnir í augum trúarleiðtoga og siðbótarfólks.


Skollafinkan verpir ekki eggjum eins og aðrir fuglar, heldur gýtur kvenfuglinn 6-8 hálffiðrum ungum einu sinni á ári. Ungarnir eru mjög grimmir og þorir ekkert kvikindi, utan foreldrarnir, að koma nálægt hreiðrinu, því ungarnir fara beint í augu óboðinna gesta og rífa þau umsvifalaust útúr tóftunum.


Hvernig á ferðum skollafinkunnar stendur, sem sást hér á landi fyrir skömmu, er ómögulegt um að segja, en það hefur verið mikið og erfitt ferðalag fyrir svo lítin fugl að berjast hingað autan úr Asíu um hávetur.


Meðfylgjandi mynd er af skollafinku í haustbúningi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?