Í dag slæddist ég í mesta sakleysi inná fréttasíðu Bæjarins besta, bb.is, sem er eitt vel eðla vefrit með heimilisfang á Vestfjörðum. Satt að segja bjóst ég ekki við neinum stórmælum á þessari þrautseigu fréttastofu Vestfjarða. Í mesta lagi átti ég von á fréttum af aflabrögðum eða erilsamri síðustu helgi hjá lögreglunni á Ísafirði eða á Patreksfirði.
En í dag var, aldrei þessu vant, mikið um að vera á bb.is og það helgaðist einungis af því að Guðmundur nokkur Franklín Jónsson, flokksforingi, hafði sent inn tímamótagrein, sem hann kallar einfaldlega ,,Vestfirðir.”
Nú, ég hafði einhverntíma heyrt Guðmundar Franklíns getið og þá í sambandi við einhvern pólitískan galskap sem hann kallar Hægri græna og er víst stjórnmálaflokkur sem saman stendur að Guðmundi Franklín einum. En það er sem kunnugt er gott fyrirkomulag að vera aleinn í pólitískum flokki. Hitt vissi ég ekki, að herra G. Franklín væri sá endemis spaugari og gamanmálahöfundur, sem hann sannarlega er, enda ber tímamótangreinin ,,Vestfirðir” kímnigáfu hans fagurt vitni.
Í grein sinn slær formaður Hægri grænna upp miklu glensi um Vestfirðinga og er á honum að skilja, að affarasælast væri að gera Vestfjarðakjálkann, í þágu tilrauna og vísinda, að einum allsherjar dýragarði þar sem íbúarnir á þessu landsvæði væru dýrin sem ferðamennirnir kæmu til að sjá og skoða. Það þarf varla að taka fram, að samkvæmt teoríunni eiga dýrin í garðinum ekki að borga neina skatta, en þessháttar ástand er kallað skattaparadís og er í hávegum höfð hjá fjárglæframönnum og öðrum ámóta óþrifagemlingum.
Búfé, ásamt hundum og köttum, vill Hægri Grænn gera útlægt úr fjórðungnum og á fyrst skrefið í þá átt að vera bann við lausagöngu búfjár.
Á hinn bóginn hefur Guðmundur Franklín heilmikinn áhuga á að útbúa dulítið kvótabrasksherfi fyrir trillukarla þar vestra, svo ferðamennirnir sjái nú eitthvað sem hlægjandi væri að.
Að lokum ætlar hinn stórhuga stjórnmálaskörungur, að hrista eins og eina sjavarfallarafstöð framúr klaufinni, sem í leiðinni væri brú yfir Þorskafjörð.
Æ, mikið óskaplega held ég sé gaman að gera út eins manns stjórnmálaflokk, sem hefur á stefnuskrá sinni að gera heilan landsfjórðung að mannlegum tilraunadýragarði. En sérstaklega ber að fagna því að við skulum eiga mann, sem á einfaldan hátt kann að blanda saman hugsjón og gríni svo úr verður óborganlegur kattarláfujafningur, sem kemur jafnvel leiðinlegustu fýludurgum til að hlægja upphátt!




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
