Varaforsetaefni Mitt Romneys, fulltrúadeildarþingmaðurinn Paul Ryan, virðist eiga sér aðdáendur hér á landi. Svo dæmi sé tekið birtist lofgrein um hann í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins undir titlinum Baunateljari af hugsjón. Fjallað er um metnað demókrata „til hins alltumlykjandi velferðarríkis sem stefnir hraðbyri til gjaldþurrðar“ og fullyrt að „baunateljarinn Ryan“ muni ekki gefa þeim nein grið. „Hallalaus ríkisrekstur er honum hugsjón,“ segir í lok greinarinnar.
Þessi ímynd af Paul Ryan, sem einhvers konar holdgervingi aðhalds í ríkisfjármálum, samræmist ekki raunveruleikanum. Mannréttindalögfræðingurinn Glenn Greenwald gerir þessu góð skil á vefsíðu sinni og rifjar upp hvernig atkvæði Ryans hafa fallið á Bandaríkjaþingi. Ryan greiddi til að mynda atkvæði með stríðinu í Írak, stríðinu í Afganistan, Wall Street-björgunaraðgerðunum og skattalækkunum George Bush á hátekjufólk. Þetta eru einhverjar þær dýrustu aðgerðir sem Bandaríkin hafa ráðist í á síðustu árum. Greenwald kemst að þeirri niðurstöðu að Paul Ryan sé einn þeirra sem bera beina ábyrgð á hallarekstri og skuldsetningu Bandaríkjanna.
Vart þarf að taka fram að Paul Ryan er hommahatari, hernaðarsinni og trúarnöttari, andstæðingur fóstureyðinga, velferðarríkisins og almennra mannréttinda. Enda framámaður innan Repúblikanaflokksins. Hann á sér ósköp fátt til málsbóta. Allt tal um hann sem kyndilbera ábyrgra ríkisfjármála verður frekar aumt þegar fortíð hans er gefinn gaumur.
