Jóhann Páll

Jóhann Páll

Jóhann Páll Jóhannsson er blaðamaður og heimspekinemi.

Ólafur og óvissan

13. júní 2012 › 19:56

Forseti Íslands hljómar dálítið eins og biluð plata þessa dagana. Honum er tíðrætt um óvissu og óvissutíma. Hann segir „Íslendinga með ugg í brjósti“ hafa beðið sig um að standa vaktina áfram og virðist sannfærður um að fullveldi Íslands sé í hættu. Svo má heldur ekki gleyma hinu svokallaða „borði óvissunnar“ sem Ólafur Ragnar nefndi tvisvar í kappræðunum á RÚV síðastliðinn fimmtudag. 


Til útskýringar hefur Ólafur Ragnar helst nefnt endurskoðun stjórnarskrárinnar og umsóknina um aðild að Evrópusambandinu. Það er dapurlegt að forseti Íslands upplifi þessi mál svona. Maður hefði haldið að flestir litu að minnsta kosti á smíði nýrrar stjórnarskrár sem framfaraskref. Núgildandi stjórnarskrá er að grunninum til skjal frá 1874 sem Íslendingar fengu að gjöf frá Kristjáni IX Danakonungi. Erfitt er að sjá hvers vegna það er sérstakt áhyggjuefni að þing og þjóð fái að kjósa um nýja stjórnarskrá.


Forsetinn mætti líka gjarnan útskýra betur áhyggjur sínar af fullveldi Íslands. Telur hann að smáríki innan Evrópusambandsins, lönd á borð við Lúxemborg, Lettland og Eistland, séu ekki fullvalda ríki? Hvað áhrif innan Evrópusambandsins varðar benda rannsóknir til þess að slík ríki hafi hlutfallslega meira vægi en þau stóru. Sama hvaða skoðun menn hafa á Evrópusambandsaðild þá er tal forsetans um fullveldi Íslands fremur undarlegt og lyktar jafnvel af hræðsluáróðri.


Árið 1980 ríkti óvissa á Íslandi. Þá var stjórnarkreppa og Kristján Eldjárn var forseti. Félagar hans skoruðu á hann að bjóða sig fram til endurkjörs en Kristján brást við í áramótaávarpi sínu með þessum orðum: „Enginn hefur gott af því að komast á það að stig að fara að ímynda sér að hann sé ómissandi.“ Enginn er ómissandi. Ekki einu sinni Ólafur Ragnar Grímsson.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.