-
ÞJÓÐREMBAN ER DRAGBÍTUR ÞJÓÐARINNAR
4. mars 2010
Skærasta villuljósið í samtíma íslenskra stjórnmála er Icesave-málið. Miðað við gengi íslensku krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum í byrjun vikunnar var höfuðstóll upphæðarinnar, sem í raun þarf að ábyrgjast, aðeins um 70 milljarðar króna miðað við 90 prósenta heimtur úr þrotabúi Landsbankans.
Málið hefur verið notað af stjórnarandstæðingum, forsetanum og villta vinstrinu í VG til þess að veita reiði og vonbrigðum íslenskrar þjóðar í þjóðernisfarveginn.
Tilgangur þessa sundurleita hóps er margvíslegur en sameiginlega hefur hann espað hér upp hættulega þjóðrembu.„Því miður verð ég að segja“
Tökum fyrst Framsóknarflokkinn. Formaður hans, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur frá því hann varð formaður flokksins í janúar í fyrra lagt allt að veði fyrir þetta eina mál. Hann er einn af arkitektum herskárrar stefnu gegn öllum bollaleggingum um að ríkið beri nokkra ábyrgð á innstæðum íslenskra einkabanka erlendis. „Hirðið þrotabú Landsbankans og talið við okkur eftir 6 ár ef eitthvað stendur út af. Annars sjáumst við bara í réttarsal.“
Allir vita að ekki er hægt að draga Icesave-málið inn í réttarsali gegn vilja einstakra málsaðila. Þeir sem fylgja Sigmundi að málum innan þingflokksins hafa berum orðum sagt, að í góðu lagi sé að bíða út allt þetta ár og jafnvel hið næsta eftir niðurstöðu sem passar geðþótta formannsins.
Sigmundur Davíð taldi í útvarpsviðtali í byrjun vikunnar að ríkisstjórnin færi varla frá þótt úreltur Icesave-samningur frá áramótum yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Því miður verð ég að segja,“ bætti hann við og kom þar með upp um þann tilgang sinn að fella ríkisstjórnina.
Svo lagði hann fram frumvarp með Hreyfingunni um að slíta samvinnunni við AGS um endurreisnina.Þá klofnar Sjálfstæðisflokkurinn
Lítum næst til Sjálfstæðisflokksins. Hann er í þeirri stöðu að hafa verið nánast einráður um fjármálastefnuna í landinu síðustu 17 árin fyrir bankahrun og er grunaður um að vera valdur að því.
En valdakerfi Flokksins er ekki hrunið. Hann hefur ítök í bönkunum, atvinnulífinu, hagsmunasamtökunum og þrír af hverjum fjórum lögfræðingum, sem ráða nú landinu, eru í flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur auk þess sterk ítök í öllum stærstu fjölmiðlunum sem ræktað hafa þjóðrembinginn.
Undirliggjandi markmið Sjálfstæðisflokksins er hið sama og Sigmundar Davíðs, að koma ríkisstjórninni frá. En daginn sem flokknum býðst að taka við valdataumunum samþykkir hann Icesave tafarlaust. Hann mun líka skrifa undir að leiða ESB-aðildarferlið til enda gegn því að fá að stýra því með einhverjum hætti. Þetta gæti verið góður kostur fyrir íslensk stjórnmál því þá klofnar Sjálfstæðisflokkurinn nær örugglega.Pólitískur vanþroski
Hver eru markmið Ögmundar Jónassonar og „villta vinstrisins“ í VG? Þau eru margvísleg og byggjast meðal annars á andúð á ESB, AGS, Hollendingum og Bretum og meintri kúgun og valdbeitingu erlendra afla. Ásmundur Einar Daðason, formaður Heimssýnar, sagði til að mynda í Silfri Egils um síðustu helgi, að nýfengin meðmæli ESB með aðildarumsókn væru váleg vegna þess að nú væri ESB að þvinga þjóðina inn í aðlögunarferli.
ESB hafði þó ekki sagt neitt annað en það sem Ásmundur átti að geta tekið undir eins og nauðsyn þess að afnema spillingu á Íslandi við veitingu dómaraembætta.
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, hafa haft þingmeirihlutann og ríkisstjórnina í herkví að undanförnu með liðsinni stjórnarliða í VG. Í byrjun vikunnar tók Ögmundur afstöðu með stjórnarandstöðunni um fávíslega þjóðaratkvæðagreiðslu með einum raunhæfum valkosti á kjörseðli, x við NEI..
Ekki er þorandi að nefna persónulega misklíð innan VG. Enginn kjósandi í landinu trúir því að á erfiðum tímum fái sálarástand einstakra þingmanna að ráða einhverju um örlög þjóðarinnar. En ef sú er engu að síður raunin verða kjósendur að fá að lifa í þeirri von að hvatvísin sé eins og hjá óstýrilátum unglingum sem dæmdir eru til þess að vaxa upp úr sínum bernskubrekum.
Um forsetann og ritstjórann í Hádegismóum er fátt annað að segja en að þeir glíma báðir við yfirbótar- og tilvistarvanda.
(Birt í DV 3/4 mars 2010)Skrifa athugasemd
-
ÞARFUR BOÐSKAPUR
3. mars 2010
Mér verður stundum hugsað til eftirfarandi boðskapar Jeans Piagets:
Meginmarkmið menntunar er að skapa einstaklinga sem færir eru um að gera nýja hluti, ekki einungis það sem aðrir hafa áður gert. Einstaklinga sem eru skapandi, finna upp og uppgötva.Annað meginmarkmið menntunar er að rækta eða móta gagnrýna hugsun, sem leitar eftir sönnunum og tekur ekki viðstöðulaust við öllu sem henni er fengið.
Mesta hætta nútímans er fólgin í slagorðum, hópskoðunum og fullmatreiddum hugsanabrautum. Við verðum að kunna að andæfa sem einstaklingar. Við verðum að geta gagnrýnt. Við verðum að geta skilið á milli þess sem unnt er að sanna og hins sem aldrei verður sannað. Við þurfum virka nemendur, sem læra snemma að ráða fram úr viðfangsefnum á sjálfstæðan hátt, sumpart með sjálfsprottnum athöfnum þeirra sjálfra, en einnig með þeim efniviði sem við færum þeim í hendur. Við þurfum nemendur sem átta sig fljótt á því sem unnt er að sanna og geta aðgreint það frá hinu sem kemur þeim einfaldlega fyrst til hugar.
Jean Piaget
(1896-1980 - svissneskur þróunarsálfræðingur og heimspekingur)Skrifa athugasemd
-
DAUFLEGIR LEIÐTOGAR FÓLKSINS
3. mars 2010
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, oddivitar ríkisstjórnarinnar, tjáðu sig í RÚV-fréttum klukkan 19:00 um stöðuna í Icesavemálinu.
Efnislega sögðu þau eitthvað á þá leið, að jafnvel þótt samið yrði í kvöld, færi þjóðaratkvæðagreiðslan engu að síður fram á laugardaginn að mestu líkindum.
Jóhanna og Steingrímur hefðu getað talað skýrar.
Þau orða þetta hins vegar svo vegna þess að þau hafa ekki meirihluta á þingi til þess að afstýra heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu sögunnar þar sem aðeins er einn x NEI reitur til að krossa við.
Þau hafa ekki meirihluta á þingi vegna þess að Ögmundur Jónasson og fylgsmenn hans innan VG á þingi hafa ákveðið að fylgja stjórnarandstöðunni.
Bjarni Benediktsson, Ögmundur Jónasson, Davíð Oddsson, Lilja Mósesdóttir, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa ákveðið að heimskuleg þjóðaratkvæðagreiðslan bæti vígstöðu þjóðarinnar.
Allt er þetta skrum og vitleysa og tapið vegna tafanna löngu orðið meira en sá ávinningur sem þetta fólk telur sig geta fengið út úr frekara samningaþjarki.
Það sem er vitanlega geggjað í spuna þeirra sem nú valda hægaganginum í Icesave er, að einmitt þau saka ríkisstjórnina um að koma málum ekki áfram.
Af hverju vilja fjölmiðlar ekki fjalla um það sem við blasir: að ríkisstjórnin er í minnihluta?
Og af hverju vill Jóhanna ekki segja okkur frá þessum sannleika?
Það er ekkert að því.Skrifa athugasemd
-
NÆST BESTI VINUR HANNESAR HÓLMSTEINS
3. mars 2010
Á pressan.is tekur doktor Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor svo til orða í pistli og hvetur menn til að krossa í eina reitinn sem í boði er í þjóðaratkvæðagreiðslu, x - NEI:
"Þessir ráðherrar vita jafnvel og aðrir, að Icesave-lögin, sem forseti synjaði staðfestingar, munu verða felld úr gildi í atkvæðagreiðslunni.
Um leið yrði slík niðurstaða áfellisdómur um þá samninga, sem stjórnin gerði við Breta og Hollendinga, og sigur þess ráðherra, sem sagði af sér í mótmælaskyni við þá (Ögmundar Jónassonar), og um leið vitanlega stjórnarandstöðunnar, sem gagnrýndi þá harðlega."
Nú er sem sagt Ögmundur orðinn næst besti vinur Hannesar Hólmsteins á eftir Davíð Oddssyni.
Þriðji besti vinur hans er Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýðveldisins eins og ráða má af tilvitnuninni.
Þeim fjölgar stuðningsmönnum Ögmundar.
Ég veit ekki hvor þeirra lýðræðisunnendanna sagði eftirfarandi, Hannes Hólmsteinn eða Ögmundur, held að það hafi verið sá síðarnefndi af stílnum að dæma. Má kannski einu gilda með þá skoðanabræður:
"Ég fagna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Hún er tækifæri til að segja yfirgangs- og fjármagnsöflum að þegar hagsmunir fólks og fjármagns takast á, þá á fólkið að láta til sín taka. Á Íslandi býðst okkur farvegur lýðræðisins til að láta rödd okkar heyrast. Þennan farveg eigum við að breikka og dýpka. Sú viðleitni er hafin."Skrifa athugasemd
-
VERÐUM VIÐ AÐ ATHLÆGI?
3. mars 2010
Nú stefnir íslenska þjóðin inn í heimskulegustu atkvæðagreiðslu í nútímasögunni. Á kjörseðlinum er í rauninni aðeins einn reitur: X NEI !
Þetta er um það bil það sem íslenskir kjósendur ráða við, að standa frammi fyrir einum kosti. Nauðung.
Um leið og íslenskir kjósendur standa frammi fyrir fleiri kostum ruglast þeir í ríminu. Missa sig og fara að þrasa.
Þrasgjarnasta þjóð í heimi.
Eins og Halldór Laxness benti á:
“Því hefur verið haldið fram að íslendíngar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls. Afturámóti klífa þeir þrítugan hamarinn til að verða við bænarstað vina og frænda, enda mundi landsbygð á Íslandi hafa lagst niður fyrir mörgum öldum ef eigi væri svo.”
Ég get ekki farið á kjörstað á laugardag.
Það er útilokað þegar að minnsta kosti ein drög að betri samningi eru á borðinu en sá sem borinn verður upp á laugardag.
Erlendir blaðamenn flykkjast hingað til að geta sagt söguna um “Þjóðaratkvæðagreiðsluna í Undralandi”.
Og hæðst að okkur.Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- Næsta »
