-
ÉG VINN HVERNIG SEM FER
7. apríl 2011
Það verður mikill léttir þegar búið er að telja upp úr kjörkössunum.
Þá losna ég undan geðþótta forsetans.
Hann átti að vita, þegar 70 prósent þingmanna höfðu sagt JÁ við Icesavesamningnum á þjóðþingi Íslendinga, að hann þurfti engu við að bæta. Hér var engin gjá milli þings og þjóðar. Hér var hægt að leysa mikilvægt mál með samningi sem bauð helmingi lægri vexti en öðrum bjóðast.
Hann hélt ekki einu sinni þau prinsíp sem hann hafði lagt sjálfur til grundvallar ákvörðunum sínum um synjun. Bjó til nýja vítarunureglu: Einmitt af því að hann vísaði Icesave í þjóðaratkvæði hið fyrra skiptið varð þjóðin að fá að kjósa aftur. Og aftur. Og aftur. Ad infinitum.
Þjóðin hafði undir leiðsögn Alþingis ákveðið að taka eignir óreiðumanna í föllnum Landsbankanum og borga breska og hollenska ríkinu það sem þau höfðu lagt út sjálf til að endurgreiða innstæður saklausra sparifjáreigenda. Afganginn, ef einhver yrði, ætlaði íslenska þjóðin að ábyrgjast, kannski 30 til 40 milljarða króna, hugsanlega ekki neitt, kannski eitthvað meira í versta falli. Upphæðin er hvort eð er ekki nema 5 til 10 prósent af skaðanum sem skattgreiðndur þurfa að bera vegna falls Seðlabankans og endurreisnar föllnu bankanna.
Von bráðar verður forsetanum kippt úr sambandi með nýjum tillögum stjórnlagaráðs um stjórnarskrárbreytingar. Þess í stað fáum við reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur sem óháðar eru geðþótta forsetans sem þykir gaman að taka æfingar á litla sæta íslenska stjórnkerfinu úr hægindum sínum á Bessastöðum.
Þetta er harla gott. Ég vinn hvernig sem fer. Á laugardagskvöld losna ég undan geðþótta forsetans á Bessastöðum sem ræktað hefur þjóðrembu og tyllt undir öfgahægrið og plebeiismann með háttalagi sínu.Skrifa athugasemd
-
NEI - OG ENDURKOMA DAVÍÐS
7. apríl 2011
Nú hefur það gerst sem kemur flestum í opna skjöldu: Icesave-slagurinn snýst ekki um framtíð ríkisstjórnarinnar og takt endurreisnarinnar.
Niðurstaðan á laugardag, JÁ eða NEI, snýst um framtíð Sjálfstæðisflokksins.
Hægri armur flokksins, undir ofurárhrifum Davíðs Oddssonar, segir NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag. Þessi armur flokksins er orðin býsna viss um sigur.
En liðsmenn Davíðs, ungir Heimdellingar og aðrir sem hafa tekið þá trú eftir Morgunblaðinu að Davíð sé hvítskúraður engill sem ekkert hafði með bankahrunið að gera, þurfa á stuðningi að halda frá kjósendum úr öðrum flokkum.
NEI-fylkingin nýtur stuðnings til dæmis ungra kjósenda sem vilja bylta þjóðfélaginu og hatast við gömlu stjórnmálastéttina og viðskiptaelítuna.
Trúarhreyfing Davíðs og AMX mun ná undirtökunum í Sjáflstæðisflokknum með stuðningi NEI-liða úr öðrum áttum, algerlega óháð því hvað þeim finnst um slíkt. Þeir nota NEI-ið sér til framdráttar.
Þannig er þetta því miður fyrir marga sannfærða NEI-menn. Hægriarmurinn ætlar að misnota NEI-sigur sér til framdráttar.
Innan Sjálfstæðisflokksins dýpkar gjáin milli liðsmanna Davíðs annars vegar (NEI) og Bjarna Benediktssonar formanns hins vegar (JÁ). Þar kemur frumstætt íslenskt ættarsamfélag við sögu. Halldór Blöndal Engeyingur og fyrrverandi ráðherar styður Bjarna Benediktsson frænda sinn í Icesave-deilunni. Það gerir líka Benedikt Jóhannesson, eindreginn evrópusinni ættarinnar. Þeir segja JÁ.
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og enn einn Engeyingurinn, sem í ríkisstjórn Geirs H. Haarde talaði fyrir samningaleið, hefur tekið trúna, talar máli Davíðs og segir NEI.
JÁ-menn innan Sjálfstæðisflokksins; Bjarni Benediktsson, Tryggvi Þór Herbertsson og margir fleiri sem telja, eins og Bjarni, að það séu falsrök að unnt sé að „kjósa sig frá“ Icesavevandanum, liggja undir árásum hægriarmsins.
Gjáin breikkar og dýpkar.
Davíð Oddsson dreymir um endurreisn æru sinnar og að gerast bjargvættur á ný. Hann er í hópi helstu hrunkvöðlanna þótt hann hafi sloppið við ákæru. Að minnsta kosti þrír meðreiðarsveinar hans í Flokknum, Geir H. Haarde, Baldur Guðlaugssson og Árni Mathiesen, eru nú fyrir rétti fyrir mismunandi sakir, tveir þeirra beint og óbeint vegna bankahrunsins. Baldur hefur nú verið dæmdur í tveggja ára fangelsi. Árni er fyrir Hæstarétti fyrir að hafa komið syni Davíðs í dómarastöðu með járnkarli og kúbeini sem dómsmálaráðherra í fáeina klukkutíma. Málið var tekið fyrir í Hæstarétti í gær.
Innan Sjálfstæðisflokksins er það draumur margra, ekki síst harðskeyttra ungliða, að Davíð stígi fram á sviðið er hann stendur upp úr ritstjórnastólnum á Mogganum í haust og „taki“ flokkinn á landsfundi. Stjaki linkulegum Bjarna til hliðar og hans stuðningsmönnum.
Til þess þarf hann NEI á laugardaginn.
NEI verður syndakvittun þjóðarinnar fyrir Davíð.
NEI verður fall Bjarna og endurreisn Davíðs.
Þetta er vandi NEI-sinna.Skrifa athugasemd
-
DULARFULLUR FLOKKS- FORMAÐUR
6. apríl 2011
Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, bendir í bloggpistli á athyglisverð atriði varðandi dularfullan formann Framsóknaflokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson.
Formaðurinn fer mikinn í broddi fylkingar NEI-manna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesavesamninginn. Við setningu flokksþings Framsóknarflokksins á föstudaginn þarf hann líka að horfa í augun á þeim framsókarfulltrúum sem ætla að segja JÁ.
JÁ, segja þeir sumir og bæta við: „Við ætlum að taka eignir óreiðumanna í Landsbankanum og borga lán sem sparifjáreigendur í Bretlandi og Hollandi veittu þeim í grandaleysi sínu á sínum tíma. Við höfum samið um mismuninn eins og siðað fólk."
Svona taka sjálfsagt Siv Friðleifsdóttir, Guðmundur Steingrímsson og fleiri til orða á flokksþinginu. Upp í opið geðið á Indefence-formanni sínum.
En það sem Björn Valur bendir á er áhugavert í pólitísku samhengi. Sigmundur Davíð ákvað í janúar fyrir liðlega 2 árum, þá nýkjörinn formaður, að veita minnihlutastjórn VG og Samfylkingar hlutleysi. Fékk þar með aðgang að upplýsingum og var vitanlega upplýstur um gang mála. Hafði áhrif á gang mála.
Hann var áreiðanlega upplýstur um að til stæði að semja við Hollendinga og Breta um Icesave. Formenn allra stjórnmálaflokka höfðu talað fyrir því frá upphafi. Ófært væri annað en að semja.
Nema Sigmundur Davíð.
Smám saman snérist hann gegn ríkisstjórninni. En var hann ekki maðurinn sem vildi semja framan af?
Eða þar til hann gekk Indefence á hönd og gekk vinum sínum og klíku á hönd innan flokksins.
Annars eru merkileg þessi læti og þetta harðlífi í Hádegismóum vegna kostnaðar við Icesave.
Helsti kostnaðurinn við Icesavebölið er vitanlega til kominn vegna stjórnarandstöðunnar.
Hún bað um Lee Buchheit.
Hún fór til Hollands þar sem línur voru lagðar um úrvinnslu málsins í samstarfi allra flokka.
Tafakostnaðurinn hefur ekki enn verið metinn til fulls.
Að öðru:Ég horfði á NEI-þátt í sjónvarpinu í gærkvöldi. Það kom mér á óvart að sjá að Brynjar Níelsson sjömenningur væri genginn JÁ-liðinu á hönd.Skrifa athugasemd
-
Guðbergur Bergsson um Icesave
5. apríl 2011
Guðbergur Bergsson
„Sjálfsmyndin er eins og hún hefur alltaf verið. Ísland er eingangrað land og þess vegna hefði verið sálrænt séð gott að við borguðum þetta ekki. Við einangruðumst og stæðum saman og við munum aldrei falla. Þegar Rómverjar réðust inn í Spán voru þorp eða bæir sem vildu ekki gefast upp, heldur falla allir en að gefast upp. Eins með þessa þjóð, þessi þjóð hefði bara tekið því mjög vel. Allt í lagi, þetta hefur komið fyrir okkur, þetta er okkar sjálfskaparvíti, nú stöndum við saman og verðum eins og áður var. Þegar skip fórst tók öll þjóðin þátt í harminum. Það sem sameinaði þjóðina var harmurinn. Þetta mundi líka sameina þjóðina ef hún myndi ekki borga, einangrast og standa bara með sjálfri sér. Vera ekkert að hugsa um það hvaða álit hinn stóri heimur hefur á okkur. Stóri heimurinn hugsar ekkert mjög mikið um okkur.“
(Úr viðtali við Guðberg Bergsson í DV í júní 2009)Skrifa athugasemd
-
EKKERT GERIST HVERNIG SEM FER
5. apríl 2011
Jónas Kristjánsson skrifar:
„Ein helzta röksemdin gegn friðarsamningum við útlönd er, að Nei þýði allt annað en kjörseðillinn segir. Okkur er sagt að fara á kjörstað til að segja nei við Evrópusambandinu. Til að segja nei við ríkisstjórninni. Til að segja nei við lánshæfis-fyrirtækjum. Til að segja nei við nýlenduríkjum. Til að segja nei við vinnu íslenzkra barna í brezkum námum. Til að segja nei við landráðum. Til að segja nei við "ólögvörðum" kröfum. Til að segja nei við greiðslu á skuldum óreiðumanna. Til að segja nei við afdönkuðum ráðherrum. Allir hnappar fasisma og þjóðrembu eru í fullum gangi í kosningabaráttunni."
Við þetta má bæta að NEI breytir engu á stjónrmálasviðinu á næstunni. Því:
* Ríkisstjórnin getur hvorki lifað né dáið, hún mun ekki fara frá hvernig sem fer. Vantraust verður ekki borið upp á þingi.
* Sjálfstæðisflokkurinn þarf að snúa sér að innri meinum, til dæmis að takast á við NEI-liðana í flokknum og reyna að verða stjórntækur á ný. Hann sleikir sárin hvernig sem fer fram að landsfundi flokksins í haust. Bjarni formaður þarf að standa við stóru orðin á Alþingi um að það séu falsrök að hægt sé að kjósa sig burt frá Icesave. - Hvernig sem allt veltur verður tekist á innanflokks.
* Þrátt fyrir öll NEI halda skattgreiðendur áfram að greiða óreiðuskuldir vegna Davíðs í Seðlabankanum. Óreiðuskuldum ( lánasamningum) Orkuveitu Reykjavíkur verður velt yfir á íbúa höfuðborgarsvæðinsins í gegn um gjaldskrárhækkanir. Hvað ætlar NEI-flokkurinn að gera í því?
Í netheimum var bent á það um daginn, að Icesavesamningurinn sé skýr kostur til að taka afstöðu til í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann liggur fyrir með þeirri áhættu sem fylgir mannlífinu.
Hinn kosturinn hefur ekki verið festur á blað eða samið um. Höfum bara ofstæki Moggans og einblíni NEI manna til að styðjast við.
Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- Næsta »
