Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

  • LÝÐSKRUM OG ÞJÓÐFUNDIR

    11. apríl 2011

    "Til þess að vinna hylli hennar (alþýðunnar) mátti nota gylliboð ýmiss konar. Vinsælt var að bjóðast til að láta skipta upp lendum  í eigu ríkisins, teknum herfangi og síðar nytjuðum af ríkjum jarðeigendum, og afhenda þær í smáskikum fátækum borgarlýð og uppgjafahermönnum, eða að láta úthluta gjafakorni eða að fella niður skuldir að hluta eða öllu leyti. Allt voru þetta fyrstu úrræði þeirra manna sem sáu vanda þjóðarinnar og vildu bæta úr honum, en margir gripu síðan til þessara bragða til þess eins að múta alþýðu og styrkja eigin völd. Slíkar ráðstafanir voru auðvitað mjög illa séðar af embættisaðlinum og flestum öldungarráðsmönnum. Þá gafst oft vel að bera þær undir atkvæði þjóðfundar og fá þær samþykktar þar. Þeir sem öfluðu sér valda og vinsælda með þessu móti voru kallaðir lýðskrumarar (populares) í hópi andstæðinga sinna..."

    (Úr formála Eyjólfs Kolbeins að þýðingu úr texta Ciceros sem uppi var á síðustu öld fyrir Krist í Rómarveldi.
    Þar var lýðveldi á hans tíð, en spillt stjórnmál grófu undan því og við tók einveldi keisaranna.)

    Þrennt vekur athygli mína í tilvitnuninni:

    1) Lýðskrumarar
    2) Fella niður skuldir
    3) Atkvæði þjóðfundar

    Skrifa athugasemd

  • FULLTRÚA- LÝÐRÆÐIÐ KOMIÐ Í ÞROT

    10. apríl 2011

    Eftirfarandi frétt var sögð hjá RÚV í dag á sama tíma og stjórnmálamaðurinn og frambjóðandinn á Bessastöðum skipaði leiðtogum atvinnulífsins fyrir verkum:

    "Uffe Ellemen-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur er harðorður í garð Íslendinga í grein í Berlingske Tidende í dag og segir þá búna að koma sér í afar erfiða stöðu, bæði pólitíska og efnahagslega, með því að hafna Icesave-samningnum.

    Íslendingar hafi sýnt að þeir séu ekki færir um að ganga frá alþjóðasamningum og því standi þeir frammi fyrir löngum og kostnaðarsömum réttarhöldum til að fá mál þetta leyst.  Hann segir að fulltrúalýðræðið á Íslandi sé komið í þrot þar sem forseti hafi tvívegis brugðið fæti fyrir réttkjörna ríkisstjórn og meirihluta þings með stuðningi meirihluta þjóðarinnar. Uffe Elleman-Jensen spyr í grein sinni hvað það sé sem íslenskir kjósendur vilji. Hvort það sé forsetastjórn sem blási á alþjóðasamninga og reglur. Málið hljóti að leiða til pólitískrar endurskoðunar á Íslandi, ekki síst á hlutverki forsetans."

    Eiginlega er engu við þetta að bæta.

    Skrifa athugasemd

  • VAL FORSETANS VAR AUÐVELT

    9. apríl 2011

    Stundum er sagt að forseti lýðveldisins sé sameiningartákn, forseti allrar þjóðarinnar, kjósi  frið þegar ófriðlega horfir og reyni að bera klæði á vopn þegar svo ber undir.
    Besta leiðin til þess eru vitanlega samningar. Þá tveir deila eða fleiri er vitanlega best ef þeir komast að samkomulagi utan réttarsala.

    Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, minnti þjóð sína á þetta í gær þegar hún lýsti því að hún vildi semja um Icesave og segja JÁ.

    Hún sagði sem svo:

    “Í afstöðu minni hef ég ekki síst haft í huga þau gömlu sannindi að deilur beri að leysa með samningum. Það er aðal friðsamra þjóða, en ekki að heyja langvinn stríð um óljós efni. Það er þannig sem traust myndast milli þjóða. Frá mínu sjónarmiði séð leikur enginn vafi á því að orðstír okkar Íslendinga bíður mikinn skaða af áframhaldandi deilum, átökum fyrir dómstólum og flóknum lagaþrætum. Þá er mikið í húfi að við Íslendingar snúum sem fyrst baki við sundrungu og deilum og stöndum heldur saman að því að byggja upp heildstæða og farsæla framtíð fyrir land og lýð.
    Þess kann ég best að óska Íslendingum.”

    Núverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafði áreiðanlega þessi göfugu markmið í huga þegar hann kaus um Icesavesamninginn á Álftanesi í morgun. Sjálfur hafði hann nýtt klásúlu í stjórnarskrá til þess að gera málið upp í þjóðaratkvæðagreiðslu.
    En þar sem hann veit að verið er að kjósa um niðurstöðu friðsamlegra samningaviðræðna við aðrar þjóðir getur það varla hafa vafist fyrir honum hvorn kostinn ætti að velja, samninginn eða dómstólana.

    Það er nánast innbyggt inn í forsetaembættið að halda friðinn ef þess er nokkur kostur og sanngirni hefur verið höfð að leiðarljósi í samningum. Það er að svo miklu leyti sem mál rekur með einhverjum hætti á fjörur embættisins.

    Þetta veit Ólafur Ragnar  jafn vel og forveri hans á forsetastóli, Vigdís Finnbogadóttir.

    Þess vegna hefur val Ólafs Ragnars forseta verið auðvelt á kjörstað á Álftanesi í morgun.

    Skrifa athugasemd

  • Ögmundur hefur þegar sagt JÁ

    9. apríl 2011

    Einhver kvittur hefur komist á kreik um að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og áhrifamaður innan Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, ætli að segja NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave í dag.

    Meira að segja féll ég í þessa gryfju eftir að um þetta hafði verið rætt á Eyjunni minnir mig. Ekkert alvarlegt, en ég var að leika mér með nokkur nöfn í bloggpistli í gær um Sigurjón Þ. Árnason sem ætlar ekki að greiða skuldir óreiðumanna og segir NEI í dag. Nafn Ögmundar slæddist þar með.

    Ég verð að biðjast innilegrar afsökunar á því. Ögmundur hefur útskýrt mál sitt á vefnum, “ogmundur.is” án þess að gefa upp afstöðu sína. Hann kaus auk þess að fara varlega í að tjá sig opinberlega um Icesave vegna stöðu sinnar sem innanríkisráðherra og fékk Lagastofnun Háskóla Íslands til að upplýsa kjósendur á hlutlausan hátt um kostina tvo.

    En um afstöðu Ögmundar þarf enginn að efast. Hann segir JÁ í dag rétt eins og hann samþykkti Icesavelögin á Alþingi í desember svo sem eins og 43 aðrir þingmenn. Ögmundur er málafylgjumaður mikill og fylgir sannfæringu sinni af meiri festu en aðrir. Hann sagði til dæmis af sér ráðherradómi í september 2009 þar eð hann var ekki orðinn sannfærður um innihald Icesavesamningsins sem þá var deilt um.

    En nú er Ögmundur sannfærður og greiddi nýjum Icesavesamningi atkvæði sitt á Alþingi í desember síðastliðnum.

    Samningur sá er óbreyttur.

    Ögmundur segir því JÁ í dag.

    Skrifa athugasemd

  • Sigurjón Þ. Árna: Fínt NEI- kompaní!

    8. apríl 2011

    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Davíð Oddsson greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Þór Saari greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Brynjar Níelsson greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Ögmundur Jónasson greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Útvarp Saga greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    AMX-vefurinn greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Ragnar Árnason hagfræðingur greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Unnur Brá Konráðsdóttir greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Gunnar Bragi Sveinsson greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Vigdís Hauksdóttir greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    Sigurjón Þ. Árnason greiðir ekki skuldir óreiðumanna og segir NEI!
    ...

    Skrifa athugasemd