Leita
Áskrift | Fréttaskot | Auglýsingar Reykjavík: 12.9° 2m/s NE

  • ÓSTÖÐVANDI ÞRÓUN

    2. mars 2010

    Albert Einarsson sem lengi hefur búið í Noregi og fylgst með norskri landbúnaðarpólitík hafði eftirfarandi að segja á athugasemdaþræði á bloggi mínu um Búnaðarþing, landbúnaðinn og ESB:


    "Horfði á viðtalið við Harald í Kastljósi. Ég hef búið í Noregi lengi og orðið var við norska landbúnaðarpólitík. Hún er sem kunnugt er ekki undir áhrifum frá ESB. Hér eru lögð niður ca 4 bú á hverjum degi. Það er ausið út styrkjum úr sameiginlegum sjóðum til þess sem eftir er undir merkjum byggðasjónarmiða. Samt eru landbúnaðarafurðið hér dýrar ö neytendasjónarmiðin víkja. Afleiðingin er at stærstu verslunarmiðstöðvar Svíþjóðar eru í röðum við norsku landamærin. Norskir versla þar, á hálfu norsku verði, landbúnaðarafurðir fyrir milljarða NOK. Þetta eru auðvitað afurðir frá ESB, sameiginlegum markaði, en sem norskir neytendur þurfa að sækja nokkra kílometra inn í nágrannalandið. Meira að segja eru norskar landbúnaðarafurðir ódýrari í Svíþjóð en hér í Osló! Sem sagt - norskum yfirvöldum tekst hvorki að stöðva fækkun búa né ná fram lægra afurðaverði til neytenda. Þar er varla ESB um að kenna?"

    Ég mæli svo með viðtali og úttekt um landbúnaðinn í Svíþjóð sem finna má hér.

    Skrifa athugasemd

  • ÖGMUNDUR STYÐUR HÁDEGISMÓALÍNUNA

    2. mars 2010

    Eiga kjósendur að ganga út úr heimi röklegrar hugsunar og skynsemi og inn í Undraland Hádegismóa og Ögmundar og verða að athlægi heimsins fyrir heimatilbúna vitleysu um ávinning af heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu í nútímasögunni?


    ---------
    Ögmundur Jónasson, VG, hefur nú staðfest að hann styður málstað stjórnarandstöðunnar.

    Ögmundur  hafði yfir eftirfarandi rökstuðning um Icesavemálið í á Morgunvaktinni á RÚV í morgun:

    - Semjist við Hollendinga og Breta í vikunni er einboðið að þingið afnemi úrelt Icesavelögin frá 30. desember og þar með félli þjóðaratkvæðagreiðslan sjálfkrafa niður, ekkert væri til að kjósa um.

    - Semjist ekki við Hollendinga og Breta fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna er ástæðulaust að tala hana niður því hún styrkir samningsstöðu þjóðarinnar gagnvart viðsemjendunum.


    Þetta er rakið Hádegismóabull í Ögmundi. Ef hann hefði til dæmist heyrt svör Sigrúnar Davíðsdóttur um einmitt þetta á Rás 2 í gær hefði Ögmundur áttað sig á að Icesave skiptir engu máli í umræðunni í Bretlandi og Ísland ógnar engu innstæðukerfi kapítalismans.
    Múgsefjun er meðal þeirra sem tekið hafa þátt í því að veita reiði þjóðarinnar í þjóðernisfarveg sem sér hættulega óvini allt í kring; í Hollandi, í Bretlandi, í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í Brussel, á Norðurlöndunum...
    Ögmundur tekur þátt í þessari vitleysu og hefur nú staðfest að í landinu ríkir minnihlutastjórn. Ögmundur hefur tekið sér stöðu við hliðina á skoðanabróður sínum í Hádegismóum, með Sigmundi Davíð vini sínum og forsetanum sem væntanlega er á taugum vegna yfirvofandi niðurlægingar þjóðaratkvæðagreiðslu um ekki neitt.


    Það er fráleit túlkun og afglöp að telja þjóðinni trú um að öll Evrópa mæni taugastrekkt til Íslands af ótta við að kjósendur hér segi nei á kjörseðli þar sem aðeins er val um einn reit þar sem stendur (   )   NEI!  Aðrir kostir eru úreltir, óraunhæfir og ógnun við mannlega rökhugsun.
    Þegar erlenda pressan áttar sig á þessu dregur hún okkur sundur og saman í háði og spotti.
    Hvernig hefur þessi langsótta vitleysa náð tökum á Ögmundi?
    Heldur hann að ríkisstjórnir í Evrópu séu á taugum yfir því að Íslendingar segi nei í þjóðaratkvæðagreiðslu? Að sú niðurstaða berist kjósendum um alla Evrópu og þar með fari heimsbyltingin af stað gegn kapítalismanum.

    Þetta er ævintýralegt bull rétt eins og lagastaglið um Icesave í Sigmundi Davíð og Mogganum. Ríkisstjórnir heims meðhöndla stöðugleika fjármálakerfisins á pólitískum grundvelli þegar á reynir og enginn Moggi eða Ögmundur fá þar neinu um þokað.


    Fyrirgefðu Ögmundur. Viltu ekki bara byrja á því að taka til hér heima áður en þú bjargar veröldinni?
    Eiga kjósendur að ganga út úr heimi röklegrar hugsunar og skynsemi og inn í Undraland Hádegismóa og Ögmundar og verða að athlægi heimsins fyrir heimatilbúna vitleysu um ávinning af heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu í nútímasögunni?

    Skrifa athugasemd

  • BJÓÐA ÍSLENSKA BÆNDUR VELKOMNA Í ESB

    1. mars 2010

    Ég horfði á viðtal í Kastljósi í kvöld við Harald Benediktsson formann Bændasamtakanna. Hann talaði um íslenskan landbúnað og rökin gegn aðild að Evrópusambandinu, en andstaða við aðild er yfirlýst stefna íslenskra bænda.

    Um bændur, eins og aðra, mætti hafa þetta sanna lögmál: Þegar hópur öðlast forréttindi af einhverju tagi lætur hann þessi sömu forréttindi aldrei af hendi átakalaust.

    Íslenskir bændur njóta nefnilega mikilla styrkja úr vösum skattgreiðenda og markaðsverndar.

    En ég ætla ekki að fara í einhverjar skotgrafir hér gagnvart íslenskum bændum sem ég ber virðingu fyrir.
    Ég vil hins vegar benda á þessa fréttaskýringu og viðtal sem ég tók eitt sinn við sérfræðing hjá sænsku bændasamtökunum, en eins og menn vita gengu Svíar í ESB árið 1995.

    Ég hvet menn til að lesa pistilinn, hann er afar upplýsandi.

    Skrifa athugasemd

  • MINNIHLUTASTJÓRN VIÐ VÖLD

    1. mars 2010

    Í landinu ríkir minnihlutastjórn Samfylkingar og Steingríms J. og stuðningsmanna formannsins í VG.


    Stjórnin getur ekki komið málum í gegn þingið. Hún getur ekki afnumið úrelt Icesavelögin frá áramótunum. Hún getur ekki frestað þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi laugardag.
    Það er vegna þess að hluti VG þingmanna hefur ákveðið að um Icesave skuli ríkja breið þingleg samstaða.


    Sé það Sigmundi Davíð og Bjarna Ben. þóknanlegt að halda fáránlega og úrelta þjóðaratkvæðagreiðslu næstkomandi laugardag þykir hluta þingmanna VG einboðið að fylgja þeim trúarbrögðum.


    Gegn þingmeirihluta sínum.


    Ábyrgt fólk í forystu VG er að missa móðinn. Það veit að ekki er hægt að bjóða þjóðinni lengur upp á hættulega stjórnmálakreppu í landinu.


    Forystumenn í VG vita að mikið er í húfi og vígstaða þeirra verri en Samfylkingarinnar.
    Þau vita að ef upp úr slitnar gæti VG lent utan stjórnar. Næstu árin. Næstu kjörtímabilin.
    Hvað vilja þau gera til þess að bjarga ríkisstjórninni?


    Staða Samfylkingarinnar er þægilegri þótt við blasi átök um forystu í krataflokki landsins.
    Hún getur myndað meirihlutastjórn með Sjálfstæðisflokknum. Látið Sjálfstæðisflokkinn skrifa undir að fylgja umsóknaraðildinni að ESB til enda og kvitta undir Icesave í hvelli. Og leyft þeim að fá eitthvað í staðinn.


    Þvílík örlög: Hrunflokkurinn til valda.


    Nokkrir liðsmenn VG hafa haft samband við mig  og spurt hvers vegna ég skelli skuldinni á á “órólegu deildina” í VG.


    Hvað mun standa á blöðum sögunnar þegar til dæmis samstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins tekur við?


    Mun kannski standa: Mönnum er enn þann dag í dag hulin ráðgáta hvers vegna fyrsta meirihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG  á lýðveldistímanum féll.


    Vita ekki allir hver skýringin er?

    Skrifa athugasemd

  • FÍFLASKAPUR AÐ FARA Á KJÖRSTAÐ Á LAUGARDAG

    1. mars 2010

    Ég ætla ekki að kjósa í þjóðarakvæðagreiðslu næstkomandi laugardag.*

    Ég ætla ekki að láta íslensk stjórnmál hafa mig að fífli.

    Ekki forsetann heldur.

    Þetta er fávitalegasta kosning sögunnar.

    Vegna þess að fyrir liggur Icesavetilboð um 70 milljarða afslátt frá þeim lögum sem býðst að greiða atkvæði um á laugardag.

    Vegna þess að þegar lítill hluti þjóðarinnar fer á kjörstað og fellir ríkjandi lög taka væntanlega við eldri lög frá því í ágúst í fyrra. Lög sem „I'll see you in Court“ -maðurinn í Framsóknaflokknum og meirihluti Alþingis gat sætt sig við þá (með fyrirvörum þingsins).

    Það eru líka verri samningar en þegar hafa verið boðnir.

    Hvers vegna getur stjórnarandstaðan sem samþykkti verri samninga ekki sætt sig við betri samninga nú?

    Verði annað hrun skrifast það sannarlega ekki á viðskiptalífið og útrásarvíkinga heldur íslensk stjórnmál.
    Nýju hrunverjarnir verða heimskir íslenskir stjórnmálamenn sem neita að axla ábyrgð þegar færi gefst á því að stýra fleyinu í höfn.

    Svei þeim.

    ---
    Úr lögum um þjóðaratkvæðagreiðslu frá 11. janúar sl.:

    *Svo fljótt sem kostur er og eigi síðar en fyrsta laugardag í mars 2010 skal fara fram, í samræmi við 26. gr. stjórnarskrárinnar, almenn og leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðargildi laga nr. 1/2010, um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf.

    Skrifa athugasemd




© 2010 DV ehf. - Allur réttur áskilinn