-
Einræðishneigðir
10. október 2008
Ríkisstjórnir vilja rúmt frelsi til athafna. Því meira frelsi, því hraðar telja þær sig geta brugðist við aðsteðjandi vanda. Með auknu frelsi fá þær sömuleiðis meira svigrúm til að velja þau meðul sem þær telja heppilegust til að leysa úr vanda sem á fjörurnar rekur.
Engu að síður hefur þótt rík ástæða til þess að takmarka athafnafrelsi ríkisstjórna því þær eiga það til að misnota völd sín. Þær geta misbeitt valdi með því að þrengja að borgaralegum réttindum einstaklinga í þágu sérhagsmuna, jafnvel í þágu þröngra eiginhagsmuna. Afgreiðsla umdeildra laga um eftirlaun ráðherra, þingmanna og dómara á Alþingi árið 2003 er dæmi um misbeitingu valds í þágu sérhagsmuna íslenskra ráðamanna.
Lausafjárþurrð í fjármálakerfinu og bankakreppa getur virkað sem hvati fyrir ríkisstjórn að taka sér völd sem hún hefur ekki. Stjórnmálaforingjar breytast í embættismenn og seðlabankastjórar í stjórnmálaleiðtoga.
Hættulegt andvaraleysi
Réttarríkið felur í sér að þeir sem gegna æðstu valdastöðum þjóðfélagsins lúta sömu réttarreglum og aðrir. Tilgangurinn er sá að vernda minnihlutahópa og frelsi og réttindi einstaklinganna gegn stjórnvaldinu. Í þessu liggur munurinn á réttarríkinu og ríkjum þar sem valdhafar hefja sig yfir takmarkanir laga og réttar. Einræðisherra þarf yfirleitt ekki að beygja sig undir réttarreglur. Þess í stað notar hann önnur meðul til að tryggja stöðu sína, svo sem með valdbeitingu, þvingunum eða persónulegum yfirráðum af einhverjum toga. Lýðræði er hvorki sjálfsagt né sjálfgefið og andvaraleysi borgaranna getur orðið þeim dýrkeypt því hagsmunirnir og kraftarnir sem vinna gegn því eru sterkir.
Þannig bendir til dæmis bandaríski þjóðfélagsrýnirinn Naomi Wolf ungum ættjarðarvinum á hættuna sem hún telur að steðji að frelsi Bandaríkjamanna með stöðugum atlögum Bush-stjórnarinnar að lýðræðinu og frelsishugsjónum höfunda bandarísku stjórnarskrárinnar. Hún rekur dæmi og ber þau jafnharðan saman við aðferðir Nasista í Þýskalandi og fasista Mussolinis á fyrstu áratugum síðustu aldar.
Óttinn gerir menn leiðitama
Athæfi stjórnvalda gegn borgaralegu frelsi og lýðræði dregur Wolf saman í tíu liðum: Stjórnvöld koma því inn hjá almenningi að ógnir steðji að þjóðinni frá erlendum óvinum en einnig frá öflum innanlands. Stjórnvöld koma á fót leynilegum fangelsum og herdeildum til hliðar við hinn almenna her. Þau stunda kerfisbundið eftirlit með venjulegum borgurum, safna upplýsingum um félagastarfsemi þeirra og njósna um hópa. Þau handtaka borgara og sleppa þeim að eigin geðþótta. Lykileinstaklingar, sem ekki fylgja stefnu stjórnvalda, eru gerðir að skotspæni og grafið undan tilveru þeirra og framavonum. Stjórnvöld reyna að koma böndum á frjálsa fjölmiðlun og hafa í hótunum við þá. Gagnrýni á stjórnvöld er gerð tortryggileg og bendluð við njósnastarfsemi og mótþrói er talinn landráð. Loks grafa stjórnvöld undan lögum og rétti.
Naomi Wolf rekur dæmi sem sýna öll tíu einkenni þess að bandarískt samfélag hafi í tíð Bush-stjórnarinnar færst í átt til fasisma þótt því fari fjarri að hún telji jafn illa komið fyrir Bandaríkjunum og Þýskalandi og Ítalíu á öndverðri síðustu öld. Svipaðar aðferðir voru notaðar í Þýskalandi nasismans og meðal fasista Mussolinis á Ítalíu til þess að “mýkja” almenning og gera hann samvinnuþýðan og leiðitaman. Þegar á reynir selur almenningur frelsi sitt fyrir öryggi. Stjórnarherrar með einræðishneigðir styrkja stöðu sína með því að ala á öryggisleysi borgaranna.
Menn fólksins
Naomi Klein hefur ritað merkilega bók um hamfarakapítalisma og kreddur nýfrjálshyggjunnar The Shock Doctrine. Kenning hennar er sú að í nafni Chicagoskóla frjálshyggjunnar og Washingtonsamkomulagsins svonefnda hafi Bandarísk stjórnvöld þröngvað frjálshyggjukreddum sínum að þjóðum veraldar með góðu og illu undanfarin 30 til 40 ár. Menn hafi tekið eftir því að auðveldast er að bylta hagkerfum þjóða með leiftursókn, einkavæða og skera niður ríkisumsvif með “sjokkaðferðum”. Það er unnt að gera í kjölfar kreppu, styrjalda og síðast en ekki síst náttúruhamfara, sem notað hefur verið óspart í New Orleans, Sri Lanka og Taílandi á síðari árum.
Í sjónvarpinu siðastliðinn þriðjudag fékk seðlabankastjóri að tala út heilt Kastljós og kvað blaða- og fréttamenn draga taum hluthafa í bankakreppu. Sjálfur væri hann maður fólksins.
Þetta er maður sem mýkir fjöldann og gerir hann fylgispakan við undarlega leiftursókn sína.
Einræðisherrar hafa alltaf sagst vera menn fólksins. Þeir eru meistarar lýðskrumsins.
Birt í DV 11. október 20082 athugasemdir
-
Skipt um kennitölur
9. október 2008
Munið bloggarar og aðrir sem vinnið með upplýsingar: Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing eru að skipta um kennitölur; sömu nöfn en nýjar kennitölur ríkisbankanna. Það merkir að allt efni sem nú er að finna á vefsíðum bankanna verður tekið niður. Geymið efni sem þið þurfið að nota eða eiga í fórum ykkar. Það er til dæmis sjálfsagt að halda til haga hverjir sátu í bankaráðum bankanna þegar þeir féllu.
Krónan er búin að vera og skapar átthagafjötra. Svo falla skipafélögin. Hversu lengi geta flugfélögin haldið velli? Meira að segja DeCode er að verða tiltölulega stöndugt fyrirtæki miðað við restina.
Í stórum lánasamningum eru yfirleitt ákvæði um að þeir séu uppsegjanlegir ef upp koma ófyrirsjáanlegar aðstæður. Þá gjaldfalla lánin. Verður allt í lagi með fjarskiptafyrirtækin og orkufyrirtækin?Skrifa athugasemd
-
Ríkið með veð í kvótanum
9. október 2008
Jæja. Nú er Jón Sigurðsson orðinn einskonar formaður bankaráðs risaríkisbankans Landsglitnisþings. Jónar Friðrik Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins einskonar aðalbankastjóri sama banka.
Á sama tíma heyrist að skuldir sjávaraútvegsins séu eftir gengishrun krónunnar orðnar eitthvað um 500 milljarðar króna.
Sjálfsagt er megnið af skuldunum með veði í kvóta í þessum bönkum, einkum þó Landsbanka og jafnvel Glitni og nú arftaka þeirra.
Ef illa fer í sjávaraútvegi fer þessi nýi banki að leysa til sín kvótann upp í skuldir.
Og fer þá ríkið að eignast kvótann aftur. Sem almenningur á samkvæmt lögum.
Svona er margt skrítið í tilverunni.3 athugasemdir
-
Allt svo öfugsnúið
8. október 2008
Bíðum við: Árni Tómasson stjórnar þjóðnýttum Glitnisbanka? Er þetta ekki örugglega sami Árni Tómasson og Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra kallaði á teppið fyrir um fimm til sex árum?
Árni var þá bankastjóri Búnaðarbankans og hafði unnið sér til óhelgi hjá valdhafanum að hafa afgreitt stórt bankalán til Jóns Ólafssonar eiganda Norðurljósa (Íslenska útvarpsélagsins), fjandmanns Davíðs?
Svo er annað: Er ekki eitthvað skrítið við það að samþykkja fjórfrelsið (frjálst flæði fjármagns) með EES samningnum, gefa öllum frelsi, gleðjast yfir stækkandi efnahag og þjóðarköku en hundskamma fjárfesta og útrásarmenn svo fyrir að koma þjóðinni á kaldan klaka með því að misnota frelsið? Hvaða landsfaðir er í dómarasæti sem veit hvað er misnotkun og hvað ekki? Kenning Davíðs Oddsonar í Kastljósinu í kvöld var sú að laga umsvif bankanna að þörfum þjóðríkisins. Eins og til sé formúla yfir það hversu umfangsmikill efnahagur þeirra megi vera án þess að hann verði hættulegur þegnunum. Eins og náttúrulega sé til eitthvað innlent og eitthvað útlent. Er þessu ekki þveröfugt farið, að stjórnmálin og regluverkið fylgir ekki eftir hraðfara þróun efnahagslífsins og regluverki sem þau hafa sjálf lögleitt (EES)? Er þetta ekki hin algera vangeta stjórnmálanna sem halda einhverju bulli að þjóðinni?
Stjórnvöld telja sig þurfa að fórna sérhagsmunum hluthafa (þurrka út hlutafjáreign þeirra) í nafni almannahagsmuna. Hefði þá ekki verið hreinlegast að margfalda framlag í tryggingarsjóð innistæðueigenda og auka gjaldeyrisforðann en skipta sér að öðru leyti ekkert af bönkunum? Frekar en öðrum fyrirtækjum? Leyfa þeim þess vegna að rúlla?
Hefst nú senn einkavinavæðingin hin síðari?
Skrifa athugasemd
-
Rússarnir koma
6. október 2008
Ansi væri nú gaman ef Björgólfur Thor Björgólfsson gæti nýtt sambönd sín í Rússlandi og útvegað svo sem eins og 15 hundruð milljarða hjá Pútín til þess að hefta algert hrun íslenska fjármálakerfisins.
Það yrði nátturulega gegn einhverjum skilyrðum. Ég sé fyrir mér að Rússar vilji fá að reisa eina olíuhreinsistöð og tvö álver fyrir greiðann. Sennilega krefjast þeir einnig þess að fá ótakmarkaðar heimildir til flug í íslenskri lofthelgi.
Ef ég þekki landa mína rétt eru þetta allt aðgengileg skilyrði.
Nú er bara að virkja samböndin hans Björgólfs.1 athugasemdir
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- Næsta »
