-
Ögmundur dýrkeypti
30. september 2009
Þennan pistil skrifaði ég fyrir fjórum dögum.
Annað hvort er Ögmundur bjargvættur Íslands.
Eða glámskyggnasti vinstrimaður síðari tíma í landinu.
Veit ekki hvað ég á að halda.
Virðingarvert að fylgja sannfæringu sinni.
Ágreiningsefnið er Icesave. Hann getur ekki kyngt ESB eða AGS heldur. Og ræður ekki við að skera niður í heilbrigðiskerfinu innan um grátandi fólk.4 athugasemdir
-
Á hvaða vegg rakst Jón Magnússon?
29. september 2009
Jón Magnússon lögfræðingur, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins og nú enn á ný liðsmaður Sjálfstæðisflokksins, virðist hafa gengið á vegg.
Hann skrifar þennan langhund á vefsíðu AMX og þar stendur meðal annars:
„Ég hef í því sambandi velt fyrir mér hvort það sé tilviljun að Ísland er eina landið í heiminum þar sem umræða fjölmiðla og almennings hefur helst snúist um það að stjórnmálamenn, Seðlabanki og Fjármálaeftirlit beri ábyrgð á bankahruninu. Í Bandaríkjunum, Bretlandi, Írlandi og víðar er talað um ábyrgðarlausa bankamenn og fjárfesta. Engum dettur í hug að Gordon Brown beri ábyrgð á bankahruni í Bretlandi eða Anders Fogh Rasmussen í Danmörku svo dæmi séu tekin.“
Jón ætti að hafa eftirfarandi í huga:
1) Bankakerfi heillar þjóðar hefur hvergi í veröldinni hrunið með neinum sambærilegum hætti og á Íslandi.
2) Bresk stjórnvöld, Gordon Brown og ríkisstjórn hans, gripu í taumana og lögðu firnaháar fjárhæðir fram til að bjarga stærstu bönkunum fyrir um ári síðan. Nefna má HSBC, RBS, Northern Rock og fleiri banka.
3) Verið er að sækja fjármálaeftirlitið danska til saka fyrir fall Hróarskeldubanka.
4) Flokksbróðir Jóns, Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem og fleiri úr forystu Sjálfstæðisflokksins, hafa kerfisbundið og frá upphafi nefnt þrjár ástæður fyrir hruni íslenska bankakerfisns: alþjóðlegu lánsfjárkreppuna, regluverk ESB og beitingu hryðjuverkalaganna bresku gegn Íslandi í upphafi hrunsins. Þeim hentar ekki að nefna innlendar orsakir. Þessar orsakir virðist Jón hafa tileinkað sér að mestu.
5) DV og fleiri miðlar hafa að verulegu leyti beint sjónum sínum að stjórnendum og eigendum bankanna í kjölfar bankahrunsins en síður að embættismönnum og stjórnmálamönnum. Jón fer því með rangt má eins og auðvelt er að ganga úr skugga um.
Ástæðan fyrir því að Jón Magnússon skrifar langhund sinn getur aðeins átt sér tvær skýringar:
1) Hann er faðir Jónasar Fr. Jónssonar fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem átti að gæta Sigurjóns Þ. Árnasonar og allra hinna bankajöfranna. Hollenskir prófessorar sem rannsakað hafa Icesave hneykslið fyrir hönd þarlendra stjórnvalda hafa bent á sekt FME og andvaraleysi. Þeir höfðu aðgang að gögnum frá FME sem íslenskir fjölmiðlar hafa ekki.
2) Jón Magnússon er genginn í flokkinn sem ber lang mesta ábyrgð á því klíku- og kunningjaþjóðfélagi sem skapað hefur hér á landi forréttindastétt sem búið hefur við refsileysi. Innvígðir og innmúraðir flokksmenn höfðu meira að segja tök á að verja hagsmuni sína að nokkru leyti í bankahruninu meðan almenningur sat eftir varnarlaus.
Þennan málstað ætlar Jón Magnússon greinilega að verja. Vildi jafnvel gerast sérstakur saksóknari.
Var það til þess að geta komist í aðstöðu til að handvelja sökudólga í anda gamla íslenska klíkuþjóðfélagsins sem flokkur hans skóp?16 athugasemdir
-
Ofsafengin valdabarátta
28. september 2009
Umræða um vald er mér hugleikin. Ég hef mikið velt fyrir mér leyndardómum valdsins.
Hvaða greinar segja eitthvað af viti um vald? Lögfræðin? Hagfræðin? Félagsvísindin?
Eftirfarandi texti séra Baldurs Kristjánssonar um vald er með því betra sem ég hef séð lengi; hnitmiðaður, fullyrðingasamur, ágengur og umhugsunarverður:"Harðvítug átök standa nú yfir um völdin í íslensku samfélagi. Slík átök eru í öllum samfélögum en aldrei eins gróf og ofsafengin eins og í kreppu þegar allt hefur hrunið. Oftast ná þeir yfirhöndinni sem hafa fjármagnið sín megin. Á ófriðartímum ná karlar aftur vopnum sínum, hörkunaglar sem kalla ekki allt ömmu sína. Konum er hent út í horn.
Á Íslandi eru átökin rétt að byrja. Átökin verða áfram um fiskveiðiauðlindina, um landið sjálft og orkuauðlindirnar. Flest ræðst með sama hætti og á öllum öldum, í leyndum farvegum, samböndum og klíkum. Afbragðsmenn eru vegnir og léttvægir fundnir, foringjar búnir til úr öðrum. Foringjar verða þeir sem hafa vit á því að standa fyrir ákveðna hagsmuni. Lýðræðið er aðeins hluti af leiknum. Þeir sem læra á lýðræðið, leikreglur þess, verða ofaná ef allt hitt er í lagi."
Ég skora nú á lesendur að lesa ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra frá flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar síðastliðinn laugardag. Við lesturinn má vera ljóst að á bak við texta ræðunnar og þau áform ríkisstjórnarinnar sem þar má lesa um er ríkur vilji til þess að stokka upp ríkjandi valdakerfi.
Mun það takast? Lýstur þar saman vörslumönnum almannahagsmuna og sérhagsmuna?
Eða hvernig er þetta vaxið í rótgrónu klíkuþjóðfélagi og kunningjaveldi?6 athugasemdir
-
Með vitund, vilja og samþykki stjórnvalda
27. september 2009
Hann er skammsýnn málflutningur þeirra sem segja að Íslendingar eigi ekki að gangast í ábyrgð fyrir Icesave skuldunum, hvað þá að borga þær.
Auk forystu Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins taka ýmsir aðrir undir slík sjónarmið. Guðmundur Franklín, gestur í Silfri Egils um helgina, er einn þeirra. Hann sagði um það bil þetta: "Aldrei að taka í mál að borga. Þetta eru skuldir einkabanka. Leyfum Bretum og Hollendingum að sækja sinn rétt"
Nýjasta útspil Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins er að fá einhvern óháðan aðila til að meta möguleikana á að fara með Icesave fyrir dómstóla.
Segir Bjarni sem veit vel að dómstólaleiðin er blekkingarvaðall.
Lítum á nokkur atriðið:
1) Allir, sem hér eru nefndir, þykir ekkert að því þótt íslenskir skattborgarar séu látnir greiða innistæður Íslendinga í Landsbankanum. Samt safnaði bankinn 1.000 milljörðum meðal sparifjáreigenda í Hollandi og Bretlandi með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. Var það eitthvað öðruvísi en að safna innlánum á Sauðárkróki? NEI ! - Davíð Oddsson þá seðlabankastjóri reis upp í byrjun október í fyrra og sagði nánast á þá leið að við ættum bara að borga hvítum mönnum en ekki svörtum.
2) Enginn í "við borgum ekki liðinu" - ég endurtek enginn - hefur bent á dómstól sem gæti tekið málið fyrir. Enginn!
3) Enginn nefnir það að breskir og hollenskir skattgreiðendur hafa tekið á sig umtalsverð útgjöld vegna glæpa Landsbankans sem hann fékk að stunda með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda.
4) "Við borgum ekki" liðið segir okkur hinum ekkert frá því hvað bíður þjóðarinnar ef ekki verður borgað. Einangrun frá siðmenntuðum þjóðum? Lánsfjárþurrð frá útlöndum? Niðurbrot gjaldmiðilsins og trausts?
5) Enginn í "við borgum ekki" liðinu með Davíð, Bjarna og öllum hinum vilja ræða það að Íslendingar eru meðal nágrannaþjóða meðhöndlaðir sem síbrotamenn á fjármálamarkaði. Við erum sigruð þjóð og það eru aðrir sem setja skilmálana um skaðabætur. Þannig verður það þangað til ESB og öðrum þóknast að taka upp og ljúka endurskoðun á innstæðutryggingakerfi bankanna. Það er þýðingarlaust að fjargviðrast vegna ákveðins tómlætis sem Norðurlandaþjóðirnar virðast sýna okkur um þessar mundir. Bandaríski seðlabankinn gafst upp á Seðlabankanum og íslenskum stjórnvöldum FYRIR HRUN og samdi við öll Norðurlöndin nema Ísland um gjaldeyrislán.
6) Enginn í "við borgum ekki liðinu" nefnir það á nafn að ef þjóðin neitar að borga og höfðað yrði mál á hendur íslenskum stjórnvöldum eru allar líkur á að málið tapaðist og ÖLL Icesaveskuldin félli á Íslendinga.
Í raun og veru er þarflaust að ræða Icesave og jafnvel hefði verið þarflaust að setja fyrirvara sem þjóðarsátt átti að nást um. Allir vita hvernig sú sátt endaði á Alþingi.
Þetta er þarflaust vegna þess að í meginatriðum hefur þjóðin fallist á að borga með samningi. Það gildir sem Guðmundur Ólafsson hagfræðingur sagði um þetta á dögunum: "Komi upp sú staða að þjóðin geti ekki borgað, þá borgar hún ekki." Og þá verður sest niður og samið um framhaldið. Þannig er þetta.
Vandinn verður ekki leystur með einangrun, reiði, biturleika og þjóðernisrembingi heldur felst lausnin í ákveðinni auðmýkt og útsjónasemi í samskiptum við aðrar þjóðir.11 athugasemdir
-
Ögmundur kostar 700 milljarða
26. september 2009
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði efnislega á flokksráðsfundi Samfylkingarinnar í dag að Icesavemálið hefði verið erfiðara og langdregnara en nokkurn gat órað fyrir. Tafirnar gætu orðið slíkar að skaðinn af þeim einum yrði jafn mikill og Icesave skuldin hefði bakað þjóðinni.
Þegar merking þessara orða Jóhönnu er skoðuð nánar blasir við eftirfarandi á skiljanlegri íslensku:
Andstaða Ögmundar Jónassonar innan ríkisstjórnarinnar við Icesave samninginn mun kosta íslensku þjóðina aðra 700 milljarða króna umfram Icesave skuldina. Heill ársfjórðungur fór í að kaupa stuðning hans á þingi við samning ríkisstjórnarinnar um Icesave.
Þegar upp var staðið greiddu 34 stjórnarliðar atkvæði á þingi með frumvarpinu um ríkisábyrgð á Icesave skuldinni. Það var allt og sumt. Breiða samstaðan varð að engu.
Er þetta ekki fulldýrt Ögmundur?17 athugasemdir
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- Næsta »
