-
Móðgun við heilbrigða skynsemi
15. október 2009
Hugsum okkur mann, að nafni Jón, sem hagnaðarvonin rekur til þess að spila með sparifé sitt á hlutabréfamörkuðum. Með nútímatækni og hraðvirku boðskiptakerfi getur hann keypt og selt hlutabréf og önnur verðbréf á hvaða markaði sem vera skal um heim allan. Þetta getur hann gert í tölvunni heima hjá sér án þess að spyrja kóng eða prest.
Setjum einnig sem svo að Jón hafi augastað á tilteknu fyrirtæki. Það búi yfir nýrri tækni og sé líklegt til að þenjast út og sé því góður fjárfestingarkostur. Hann kaupir fyrir umtalsverða fjárhæð í þeirri vissu að hlutabréfin hækki fyrr en síðar svo um munar.
Nú gerist hið þveröfuga. Hlutabréf í fyrirtækinu taka að lækka. Aðeins er um tvennt að velja fyrir Jón; að selja hlutabréfin eða halda þeim.
Jón kýs að deila ekki við markaðinn. Hann þarf að taka ákvörðun. Hann selur áður en hann tapar meira fé.
Jón kýs með öðrum orðum að beygja sig undir veruleikann. Hann deilir ekki við markaðinn. Enda til hvers væri það að berja höfðinu við steininn?
Raunsæi
Raunsæi er fólgið í því að átta sig á því hverju maður ræður og hverju ekki. Þetta er ríkur þáttur í þroskaferli hverrar manneskju. Börn eru sjálfhverf og eiga erfitt með að setja sig í spor annarra, horfa á sig sjálf frá sjónarhóli fólksins sem þau umgangast. Þroskinn felur í sér að einstaklingurinn sér sjálfan sig æ betur frá sjónarhóli annarra og um leið fær hann skýrari mynd af sjálfum sér, getu sinni og takmörkum viljans. Um leið er þessi þráður þroskans undirstaða siðlegrar hegðunar. Þó er ekkert sem sem kemur í veg fyrir að þroskinn, yfirsýnin yfir taflborð mannlífsins eða viðskiptanna, sé notað í sérhagsmunaskyni. Á því er tekið í réttarsölum, til dæmis þegar fjallað er um ásetning. Óviti hefur engan ásetning og fremur enga glæpi vísvitandi.
Íslensk stjórnmálaumræða fellur of oft í þann pytt að beygja sig ekki undir veruleikann eða staðreyndir líkt og Jón gerir í dæminu hér að framan. Stjórnmálamenn berja höfðinu við stein og láta sem þeir haldi í flestalla spotta heimsins og geti haft óendanlega mikil áhrif á framvindu mála.
Þetta er vitanlega alrangt og leiðir menn í ógöngur.
En hver ætli sé ástæðan fyrir því að svona er háttað um siðmenningu íslenskra stjórnmála?
Því er vandsvarað. Nefna má þó eitt atriði sem tengist dæminu um hann Jón hér að framan. Íslensk stjórnmál eru forsjárhyggjustjórnmál sem byggjast á ímynd um föðurlega leiðsögn og agavald foringja eða flokksforystu. Sérstaklega á þetta við um Sjálfstæðisflokkinn sem ráðið hefur ferðinni 80 prósent lýðveldistímans.
Hugsanalögregla
Í nálægum löndum beygja stjórnmálin sig undir veruleikann líkt og Jón gerði í dæminu hér að ofan. Leiði rannsókn í ljós að ráðherra hafi rangt fyrir sér beygja þeir sig undir niðurstöðuna. Eftir atvikum axla þeir ábyrgð og segja af sér.
Þessu er öfugt farið í íslenskum stjórnmálum. Hafi veruleikinn reynst stjórnmálunum óþægilegur er einfaldlega smíðaður nýr veruleiki sem haldið er að kjósendum. Veruleikinn verður þar með á skilmálum stjórnmálanna og þar með valdið yfir honum og skoðunum almennings. Þetta er siðmenning stjórnlyndrar forsjárhyggju sem þolir illa margbreytni hugsana og viðhorfa.
En undan þessu fjarar hratt sem betur fer. Enn má þó greina veika viðleitni í Hádegismóum til þess að smíða til veruleika í samræmi við gamla sérhagsmuni. Óttast ritstjórinn þann veruleika sem birtast mun í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis? Hefði verið betra að halda í penna skýrsluhöfunda?
Gott væri ef ríkisstjórn og Alþingi beygðu sig einnig undir þann veruleika sem við blasir og létu af sjálfhverfu í samskiptum við þær þjóðir sem á endanum munu alltaf koma okkur til hjálpar hvernig sem fer.
Birt í DV 14. október 2009Skrifa athugasemd
-
Að knésetja heimskapítalismann
10. október 2009
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar nú að knésetja heimskapítalismann; AGS, ESB, og gömlu nýlenduþjóðirnar, Hollendinga og Breta með liðsinni Ögmundar Jónassonar og fleiri sem hyggja á heimsbyltingu til þess að rétta hlut Íslendinga eftir efnahagshrun sem þeir sjálfir gengust hjálparlaust fyrir.
Til að rétta hlut Íslendinga, sýna umheiminum að þeir standi í lappirnar, er réttast að velta heimskapítalismanum, segja þeir. Samþykkjum ekkert, Rekum AGS á dyr, Borgum ekki, Tefjum, tökum okkur meiri tíma. Sínum þessum fávitum handan hafsins í tvo heimana.
Undirleikurinn kemur ofan úr Hádegismóum sem sakar ríkisstjórnina um pukur. Þar situr maðurinn sem er höfundur möntrunnar sem Ögmundur kyrjar ásamt Bjarna Ben, Sigmundi Davíð og fleirum: Við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna. ! ??? !!
Var það ekki einmitt pukur og leynimakk innvígðra og innmúraðra í gömlu valdstjórnarkerfi Sjálfstæðisflokksins varð þjóðinni að falli? Málflutningur þeirra nú bendir til þess að almenningur eigi að bera þungann af falli íslensku pilsfatakapítalistanna sem tóku ákvarðanir sínar í innmúruðum launhelgum Flokksins.
Þeir pukruðust með mikilvægar upplýsingar um ógnvænlega stöðu Landsbankans síðastliðið ár. Þar til allt féll.
Nýja Ísland átti að taka á þessari spillingu og launung.
Forsætisráðherra brást því hratt við og birti skýrslu frá Seðlabankanum um afleitar efnahagshorfur ef ekki verði gengið frá Icesave samningunum nú þegar.
Hvað hefðu lýðskrumararnir sagt ef Jóhanna Sigurðardóttir hefði birt upplýsingar Seðlabankans efti viku, tvær vikur?
Pukur! Svik! , hefðu menn sagt.
Þjóðin lét Ögmund hafa heilt sumar í að ráða með lýðræðislegum hætti fram úr Icesave. Nú vill hann enn halda áfram og veifar lýðræðisástinni. Hann ætlar að láta Samfylkinguna sprengja svo hann verði ekki sakaður um að hafa gert það.
Formaður Sjálfstæðisflokksins klappar honum á öxlina og segir: "Takk fyrir, einmitt það sem ég þurfti til að bjarga pólitískri framtíð minni. Við þurfum að komast í stjórn til að bjarga fyrirtækjunum og stórlöxunum í flokknum."
Hvar misstir Ögmundur fókusinn? Hvenær fór hann á taugum?
Á meðan ferðast formaður Framsóknarflokksins með bindi og stresstösku um Noreg ásamt vogunarsjóðsmönnum og biður um erlend lán sem hann talar gegn á Alþingi?
Stoltenberg forsætisráðherra kemur fram og segir að allt sé við það sama; Lán séu aðeins veitt óreiðumönnum gegn skilyrðum.
Á fimmtándu öld börðust fátækir verkamenn í Hollandi gegn tækninýjungum frumkapítalismans með því að setja tréklossana sína í tannhjól spunavélanna í verksmiðum kapítalistanna.
Tréklossarnir bera heitið sabot sem er franskt orð að uppruna.Af því er dregið orðið sabotage, sem þýðir skemmdarverk og orðið saboteur eða saboter sem merkir skemmdaverkamaður.
Vera má að fátækir hollenskir verkamenn hafi með athæfi sínu bætt kjör sín í sumum tilvikum. En svo
mikið er víst að hollensku tréklossarnir stöðvuðu ekki framgang kapítalismans í veröldinni.
Einhver mundi sjálfsagt vilja kalla Ögmund, Sigmund Davíð, Bjarna Ben og fleiri sabotöra eða skemmdarverkamenn.
En það eru ekki mín orð.
Komdu niður á jörðina Ögmundur og gerðu þig skiljanlegan. Í viðleitni þinni til að skilja hvað um er að vera á Íslandi er ég hættur að skilja þig!Skrifa athugasemd
-
Feigðarmerkin
9. október 2009
Sennilega er ríkisstjórnin búin að vera.
Ég sé feigðarmerkin. Ég finn á mér að ekki verður aftur snúið.
Sundrung íslenskra vinstrimanna er saga valdstjórnar Sjálfstæðisflokksins 80% lýðveldistímans.
Sjálfstæðisflokkurinn kemst von bráðar til valda á ný.
Á blöðum sögunnar mun standa að Ögmundur Jónasson hafi látið persónulegan metnað bitna á þjóðinni á örlagastundu.
Sjálfstæðisflokkurinn vill í stjórn. Hann hefur hagsmuni að verja.
Nýja forystan í Sjálfstæðisflokknum þarf nauðsynlega á því að halda að komast til valda. Bjarni og Illugi verða að komast í valdastóla til að kveða niður orðróminn um að forysta flokksins sé nú í Hádegismóum.
Þeir þurfa að þynna út niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis í þágu Flokksins.
Mun nefndin standa í lappirnar ef Sjálfstæðisflokkurinn verður kominn til valda áður en skýrslan kemur út?
Falli samstjórn VG og Samfylkingar teljast það svik við alþýðu þessa lands. Þessir flokkar munu þá ekki starfa saman næstu fjögur kjörtímabil. Stærsta tækifæri þeirra á lýðveldistímanum að eilífu glatað.
Í VG eru flautaþyrlar sem hafa engan skilning á þýðingu valdsins. Þeir hafa ekki viljann til valdsins. Bara tuða um eitthvað annað en íslenskan veruleika.
Í Samfylkingunni er þegjandaleg uppgjöf, forystan lyftir aldrei litlafingri til að verja helstu baráttumál sín. Þess vegna sekkur þjóðin í sálrænt andóf gegn fjötrum kreppunnar. Kennir Icesave um, kennir AGS um, kennir ESB um og hverfur í hyldýpi sjálfsvorkunnar og þjóðernisrembu. Andófsliðið í VG bognar fyrst og ber við að það hafi allsherjarlausnir á öllum vanda þjóðarinnar.
Sjálfstæðismenn svara kalli um að setjast í valdastóla um leið og Jóhanna gefur þeim merki. Skiptir engu máli hvað þeir segja innan flokksins sem ekki telja tímabært að setjast í ríkisstjórn.
Það er vegna þess að þeir kunna leikreglurnar. Þeir sömdu þær sjálfir. Þeir þurfa líka að fá tækifæri til að verja sína menn í viðskiptalífinu. Flokkurinn vinnur fyrir þá.
Það má ekki skattleggja þá.
Alþýðan á að bera byrðar kreppunnar.
Þeir samþykkja Icesave á kortéri og málið gleymist á þremur vikum.
Þeir samþykkja stefnuna í átt að ESB. Þeir eru til í að taka á gjaldeyrismálunum.
Þeir sömdu sjálfir um veru AGS hér á landi.
Einhverjir verða að stjórna. Valdið er alltaf í höndum einhverra meðan valdalaus Ögmundur lofsyngur lýðræði fjöldans.
Valdið fer í hendur Sjálfstæðisflokksins á ný vegna þess að Samfylkingin mun bjóða flokknum samstarf. Það hefur ekkert með hugsjónir um norrænt velferðarþjóðfélag að ræða heldur ábyrgðartilfinningu fyrir því að ljúka málum, snúa ekki við í miðri á. Allt orkar tvímælis þá gert er segja menn á þeim bæ en snúa ekki við á þótt dauflega berjist Össur og Jóhanna fyrir málstað sínum.
Sagan mun dæma Ögmund hart.
Afbrýðisemi hans í garð Steingríms J. Sigfússonar byggist á því að Ögmundur vill völd og áhrif.
En fékk ekki.
Og færir því Sjálfstæðisflokknum völdin.
Mér þykir fyrir því að þurfa að segja það sem hér er sagt um Ögmund.
En svona er veruleikinn.
Veruleikinn og sannleikurinn á Íslandi verður áfram um sinn á skilmálum flokksins sem stjórnað hefur landinu 80% lýðveldistímans.
Flokksins sem mun skilgreina fyrir íslenskri alþýðu hverjum hrunið er að kenna.
Íslensk stjórnmál vinstra megin við miðju eru barnaleg, frumstæð og sjálfhverf.
Því miður.Skrifa athugasemd
-
Hannes Hólmsteinn Vilhjálmsson
9. október 2009
Hannes Hólmsteinn Gissurarson bloggaði eftirfarandi :
"Bónusverslunin hans Jóns Ásgeirs Jóhannessonar heldur uppi Fréttablaðinu. Blaðið er í einn stað auglýsingabæklingur Bónus og annarra verslana Jóns Ásgeirs og í annan stað áróðursmálgagn fallna útrásarauðmannsins. Jón Ásgeir ætlar sér að halda áfram að græða á einföldum sálum sem sjá sniðugan strák í subbulegum manni.
Fréttir í dag herma að Nýja Kaupþing og Landsbankinn ætli að taka höndum saman um að útgerð Jóns Ásgeirs haldi áfram. Það eru undarleg tíðindi, svo vægt sé til orða tekið. Helsta samlíkingin sem kemur í huga er að ráða dæmdan brennuvarg til stjórna slökkviliði."
Páll Vilhjálmsson bloggaði eftirfarandi:"En Íslendingar ættu að hafa meiri áhyggjur af annarri hirð. Það er Náskershirðin, — hirðin í kringum Jón Násker, Jón Ásgeir Jóhannesson, skuldakóng Íslands, sem reynt hefur að breyta þessari eyju okkar úti í Dumbshafi í sannkallað Násker.
Þessi hirð starfar á Baugsmiðlunum. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur Jón Násker haldið fjölmiðlum sínum, þótt hann sé löngu gjaldþrota, og notar hann þá ótæpilega til að leiða athyglina frá eigin sök. Fjölmiðlar hans hamast á öðrum útrásarvíkingum og auðjöfrum, en minnast sárasjaldan á Jón Násker og þá aðeins fyrir siðasakir. Jón Násker þykist ekki eiga DV, en auðvitað er Hreinn aðeins þar til að gæta hagsmuna hans. Blaðið er notað til óþrifalegri verka en aðrir Baugsmiðlar treysta sér til.
Bankahrunið íslenska á sér margar og flóknar ástæður, ekki síst kerfisgalla í EES-samningnum og fádæma fautaskap Breta. En ef einhverjir nafngreindir íslenskir einstaklingar bera ábyrgð á því, þá eru það Jón Násker og klíkan í kringum hann, liðið á lystisnekkjunum og í einkaþotunum, sem safnaði skuldum eins og það ætti lífið að leysa, en beitti jafnframt fjölmiðlum sínum og auði gegn öllum þeim, sem þorðu að gagnrýna það."
Eða var það kannski öfugt. Skrifaði Páll fyrra bloggið og Hannes Hólmsteinn hið síðara?
Æ, það má einu gilda...Skrifa athugasemd
-
Víglína stjórnmálanna dregin
8. október 2009
Á árunum 1993 til 2007 fimmfölduðu 700 til 800 ríkustu fjölskyldur landsins hlut sinn í ráðstöfunartekjum landsmanna allra. Þessar 700 til 800 fjölskyldur fóru úr 4 prósentum í 20 prósent heildarráðstöfunarteknanna.
Á örlagatímum segist ríkisstjórnin óhikað ætla að breyta skattkerfinu til þess að auka jöfnuð og réttlæti í samfélaginu. „Þar er um mikla stefnubreytingu að ræða frá stjórnartímabili Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi byrjun vikunnar.
Án þess að nokkur tæki eftir því sérstaklega var víglínan dregin í íslenskum stjórnmálum á Alþingi síðastliðið mánudagskvöld. Þetta kvöld kaus Ögmundur Jónasson að sitja heima og hæla andspyrnu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gegn ofangreindum áformum ríkisstjórnarinnar.
Ekki að Framsóknarflokkurinn skipti öllu máli, því víglínan var dregin milli Sjálfstæðisflokksins og stjórnarflokkanna, meira að segja óháð leit Ögmundar að grundvallarlögmáli þingræðisins.
Leit að matarholum
Línan var dregin þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins mótmæltu hvers kyns skattahækkunum en buðu þess í stað skattlagningu iðgjalda í lífeyrissjóði landsmanna. Ekki máttu þeir heyra það nefnt að nauðsynlegt væri að hækka skatta til að rétta við ríkissjóð sem riðið var á slig með bankahruninu fyrir ári. Mest af öllu óttast þeir áform um aukinn jöfnuð og réttlæti með tilstyrk skattkerfisins.Sannleikurinn er sá að hugmyndir um að afla 40 milljarða króna á ári í ríkissjóð með því að skattleggja iðgjöld um leið og þau berast lífeyrissjóðum er eins og inngangskaflinn í kokkabók hægrisinnaðra bandarískra repúblíkana sem ævinlega hafa velt byrðum samfélagsins yfir á herðar launamanna og fátæklinga þegar þeir hafa fengið aðstöðu til.
Þarna gengur aftur hugmyndin um að aldrei nokkru sinni megi skattleggja ríka eða fyrirtæki því þannig taki fyrir vilja kaupsýslumanna til fjárfestinga og þannig sogi ríkið til sín fé sem annars færi til að skapa atvinnu og aukin umsvif á markaði. Í grein í Morgunblaðinu 30. september er þessi skattlagning lífeyris kölluð einföld og sársaukalaus leið.
Með þessar hugmyndir fer Bjarni Benediktsson formaður flokksins fram í þinginu. Kutarnir eru brýndir. Það má aldrei verða að skattar hækki á fyrirtæki og efnafólk. Sumir skattar eru betri, svo sem eins og að skattleggja lífeyri launafólks til að bjarga ríkissjóði og velferðarkerfinu. Þetta er ein útgáfan af hamfarakapítalisma frjálshyggjudrengjanna frá Chicago sem Bjarna er svo töm í munni.
Launamenn borga alltaf brúsann
En gleymir ekki Bjarni formaður, frændur hans og flokkssystkin, að 40 milljarðar króna, sem af lífeyrissjóðunum yrðu teknir í ríkissjóð, er ekki samtímis hægt að verja í fjárfestingar og ávöxtun í atvinnulífinu?Er ekki jafnframt dagljóst að hættan eykst á skerðingu lífeyris því meir sem ríkið tekur af honum fyrirfram í formi skatta?
Ástæðulaust er að láta blekkjast af þessum fagurgala á hægrivæng íhaldsaflanna. Þótt sú stefna hafi náð sínum hæstu hæðum í hamfarakapítalisma Bushstjórnarinnar að láta almenning og fátæklinga ævinlega borga brúsann er hugmyndin miklu eldri og þarf ekkert að koma á óvart.
Árið 1936 skrifaði Halldór Laxness eftirfarandi í Dagleið á fjöllum:
„Í leitinni að einhverjum samkomulagsgrundvelli hefur verið gripið til þess örþrifaráðs, að kuðla saman hinum tveim prinsípum almenningsrekstursins og einkarekstursins. Árangurinn er eins og við var að búast. Það hefur verið framkvæmd kerfisbundin þjóðnýting - á skuldum einstaklingsframtaksins. Almenningsfé er látið standa undir tapi séreignarfyrirtækja, bæði stórra og smárra, þúsundum saman, til sjós og lands.“
Kannast einhver við aðferðirnar úr bankahruninu 2008?
Spurningin nú er aðeins þessi: Heldur Ögmundur Jónasson og fylgismenn hans í VG svo fast við þá grundvallarreglu að verða ekki viðskila við samvisku sína, að þeir kasti á glæ tækifærinu til þess að auka jöfnuð og réttlæti í þjóðfélaginu í samvinnu við Steingrím J. Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttur?
Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- Næsta »
