Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

  • VÆLANDI FALLBYSSUPENNINN BALDUR

    15. desember 2009

    Baldur heitir maður Hermannsson. Hann hefur lengi verið orðaður við ystahægrið og hálfgerða fanatík á hægri væng stjórnmálanna.


     


    Hann bloggar eftirfarandi á mbl.is og er mikið niðri fyrir vegna fréttaflutnings DV af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, og fjárfestingaræfingum sem hann var flæktur í:


     


    „Við skulum bara átta okkur strax á því að rógurinn bítur alltaf. Rógurinn hefur þegar bitið Bjarna Ben og mun halda áfram að gera það.  Það var óskiljanlegt fljótræði að hringja í Hrein Loftsson, manninn með 300 milljónirnar, manninn sem löngu hefur sagt skilið við siðaðra manna samfélag.


    Bjarni Benediktsson er heiðarlegur maður, stálgreindur, vandaður og vel upp alinn - í einu orði sagt: drengur góður. Hann mun standa af sér rógsherferðina en  sá sigur verður honum dýrkeyptur.“


    Það er nú svo.


    Skyldi Hreinn Loftsson hafa sagt skilið við siðaðra manna samfélag þegar hann sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum um árið með þeim orðum að hér á landi ríkti ógnarstjórn?


    Baldur veit að þegar úrsögn Hreins fór hátt í fjölmiðlum var Davíð Oddsson forsætisráðherra þjóðarinnar.


    Hvoru megin var samfélag siðaðra manna á þeim tíma Baldur?


    Það fór greinilega fram hjá mörgum að Hreinn Loftsson upplýsti í Fréttablaðinu í gær, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði viljað gera hann að útvarpsstjóra árið 1997: „Sjálfstæðisflokkurinn vildi gera mig að útvarpsstjóra á sínum tíma, árið 1997,“ upplýsir Hreinn í blaðinu.


    Þetta er mjög áhugavert og fréttir fyrir mig, gamlan RÚV-ara.


    Væntanlega hefur Hreinn sagt nei takk við Foringjann.


    Var það eitt af mörgum skrefum Hreins út úr samfélagi siðaðra manna Baldur?


    Þessi Baldur var löngum orðaður við bláu höndina sem náði á sínum tíma tangarhaldi á RÚV, einkum Sjónvarpinu. Allt var þar vel valdað af Flokknum. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson formaður útvarpsráðs nær jafn lengi og Davíð sat á valdastóli. Meira mætti um það segja.


    Matthías Johennessen fyrrum Moggaritstjóri segir á vef sínum frá ofurlitlu bréfi til sín frá Hrafni Gunnlaugssyni, enn einum innvígðum og innmúruðum Sjálfstæðismanni sem hafði árið 1974 áhyggjur af valdaleysi Flokksins innan RÚV.


    Í umræddu bréfi Hrafns stendur skrifað:


    „Við verðum því að safna liði og hefja sókn. Ég hef sjálfur reynt að byggja upp tengsl við góða og hugrakka drengi sem ég veit að vilja berjast og þora. Þú manst eflaust enn þegar ég kom með Davíð Oddsson í fyrsta sinn upp á skrifstofu til þín, og Baldur Hermannsson á eftir að reynast fallbyssupenni þegar fram í sækir. Rúnar (Gunnarsson,á sjónvarpinu) á einnig eftir að fylgja okkur eftir gegnum þykkt og þunnt, þannig mætti nefna fleiri, en við verðum að byggja upp breiðfylkingu og standa saman.“


    Má ég spyrja þig Baldur Hermannsson: Er hið svokallaða „siðaða samfélag“ útskýrt og skilgreint af innvígðum og innmúruðum sjálfstæðismönnum í launhelgum Flokksins?


    Má ég biðja um að fá að vera utan við þetta svokallaða siðaða samfélag þitt.

    Skrifa athugasemd

  • GRJÓTKAST ÚR MOGGAGLERHÚSINU

    14. desember 2009

    Leiðarahöfundur Morgunblaðsins tekur í dag málstað Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar launamanns hjá Háskóla Íslands, gagnvart auðmönnum.

    Þessir auðmenn eru Jón Ólafsson og Jóhannes Jónsson.
    Jón hefur sótt meiðyrðamál gegn Hannesi í Bretlandi.
    Jóhannes leyfði sér að ganga á fund rektors til að kvarta yfir meintri áróðursstarfssemi launamannsins í Háskóla Íslands gegn sér og fjölskyldu sinni.

    Leiðarahöfundurinn hefur tekið að sér að verja lítilmagnann gegn kapítalistum.

    Ætli hann sé marxisti?

    Ætli hann gangi í bol með mynd af Che Guevara?

    Kúgaði launamaðurinn í háskólanum var dæmdur fyrir ritstuld.
    Rétttrúnaðarsamfélagið í Háskóla Íslands hefur ekki vísað honum á dyr úr háskólanum fyrir það.

    Hannes Hólmsteinn var ráðinn launamaður hjá HÍ árið 1988 með fulltingi Birgis Ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra, flokksbróður Hannesar og vinarins sem nú kemur honum til varnar á Mogganum.

    Minnumst þess að Hannes Hólmsteinn var ekki ráðinn til HÍ fyrir vísindaafrek sín heldur vegna skoðana sinna. Á þeim tíma var Sjálfstæðisflokknum einnig í nöp við "rétttrúnaðarsamfélagið" innan HÍ.

    Birgir Ísleifur gaf út yfirlýsingu um ráðningu Hannesar Hólmsteins:
    "Það er að dómi ráðherra æskilegt að ólíkar skoðanir á fræðigreininni eigi sér málsvara á vettvangi Háskóla Íslands. Í félagsvísindum er sérstaklega mikilvægt að tryggja fjölbreytni og frjálsa samkeppni hugmynda."

    Flokksbræður Hannesar Hómsteins og vegjörðarmanns hans í Hádegismóum voru iðnastir allra við að kúga andstæðinga sína og hafa af þeim starfsframann á kaldastríðsárunum.

    Einar Olgeirsson, einn helsti leiðtogi sósíalista á síðustu öld, segir svo frá í viðtalsbók Jóns Guðnasonar frá áttunda áratug síðustu aldar:


    "Hernámssinnar, sem tiltluðu sig lýðræðissinna, veigruðu sér hvergi við að beita persónunjósnum, atvinnuofsóknum og beinni og óbeinni skoðanakúgun. Fátt eitt af þessum ófögru athöfnum þeirra hefur verið skrásett, enda hafa aðeins fáeinir, sem urðu fyrir barðinu á þessum ófögnuði, sagt frá reynslu sinni opinberlega. Þögnin um þessa óhæfu stafar af því meðal annars að menn hafa óttast reiði yfirvalda og ekki viljað láta koma sér algerlega út úr húsi."

    Nú eru Hádegismóri og Hannes með harðlífi, láta eins og skepnur og fara hamförum yfir því að hafa ekki valdið til að snúa niður andstæðinga sína.

    Grjóti er linnulaust kastað úr Moggaglerhúsinu.



     

    Skrifa athugasemd

  • FORPOKUÐ ÍSLENSK STJÓRNMÁL

    14. desember 2009

    Ég hlustaði á viðtal við Ögmund Jónasson, þingmann VG, á Rás 2 í morgun.

    Mér heyrðist hann segja efnislega eitthvað á þessa leið:

    1) Þjóðinni stafar hætta af útlendingum.

    2) Úr því ég fæ ekki að ráða í þingflokki VG á að leggja niður flokka og  innleiða nýtt lýðræðiskerfi þar sem hver þingmaður fylgir sannfæringu sinni. Gamla kerfið er ómögulegt og úrelt.

    En hvernig er það? Ganga menn ekki í flokk vegna þess að þeir hafa sannfæringu og vilja fylgja stefnu hans á félagslegum grundvelli?

    Er reglan um afl meirihlutans úrelt?  Setjum sem svo að innan þingflokks sé ekki samstaða í einhverju máli. Er ekki ljóst að einfaldur meirihluti ræður ef mál er borið undir atkvæði?

    Ég gæti vel talið upp alla þá sem stofnað hafa sérframboð utan um skoðanir sínar og afstöðu á undanförnum áratugum en nenni því varla. Fylgismenn sérframboðanna hafa væntanlega gengið til liðs við þau á grundvelli sannfæringar.

    Hversu mjög sem málið er reifað mun á endanum verða bert og öllum augljóst að Ögmundi mistókst að vinna VG í heilu lagi á sitt band og vill ekki sætta sig við niðurstöðuna.
     
    Sem nú Icesavemálið er ekki nema 10 til 15 prósent af heildarskuldavanda þjóðarinnar lítur allt út fyrir að Ögmundur muni á endanum fórna meiri hagsmunum fyrir minni; einstæðu samstarfstækifæri jafnaðar- og vinstrimanna um mikilvægar þjóðfélagsbreytingar.

    Við sökkvum enn án ný ofan í séríslenskan pragmatisma, prinsíplausa framsóknarmennsku og forpokuð stjórnmál sem skortir kunnáttu, festu, myndugleika og félagsþroska.

    Skrifa athugasemd

  • ER PÁLL AÐ FARA Á LÍMINGUNUM?

    13. desember 2009

    Páll Vilhjálmsson heitir Moggabloggari sem titlar sig blaðamann og ekki Baugsmiðil. Áreiðanlega kom eitthvað fyrir hann fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur hann lagt vaxandi ást á Davíð Oddsson og takmarkalausa fæð á Baugsmenn, býr til svona svarthvíta heimsmynd eins og gert er upp í Hádegismóum.

    Tökum dæmi. Páll skrifar eftirfarandi í dag og er með mikið harðlífi vegna frétta DV um viðskipti Bjarna Benediktssonar og Hreins Loftssonar:

    "Baugur í gegnum Hrein Loftsson heldur uppi útgáfunni sem fær hvorki lesendur né auglýsendur enda afurðin slík að mannorðsskemmdir blasa við þeim sem leggja lag sitt við blaðið.


    Það er til marks um undarlegt eftirhrunsástand þjóðfélagsins að DV sé haft til annars en sem viðmið fyrir lágkúrulegustu blaðamennsku sem hugsast getur."


    Svo skrifar maður sem titlar sig blaðamann en hefur ekki nýst sem slíkur í mörg ár.

    Þar sem ég er blaðamaður á DV og félagi í Blaðamannafélagi Íslands ætti ég kannski að kvarta til siðanefndar BÍ og fá úr því skorið hvort Páll, sem titlar sig blaðamann,hafi brotið fyrstu grein siðareglna BÍ.

    Hún hljóðar svo:


    "Blaðamaður leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starfi blaðamanns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga."

    Kannski Páll ætti bara að hætta að titla sig blaðamann.

    Skrifa athugasemd

  • BLAÐAMANNASTÉTTIN SVÍVIRT

    13. desember 2009

    Því fleiri sem rannsaka aðdraganda íslenska bankahrunsins og möguleg lögbrot einstakra bankaforkólfa eða annarra, því betra.

    Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar Serious Fraud Office ætlar að rannsaka stórlán íslensku bankanna til þekktra viðskipamógúla.
    Það er fínt.

    Það er einnig gott að kveðnir hafi verið upp tveir dómar yfir bankamönnum fyrir markaðsmisnotkun. Það vekur vonir um að réttarkerfið virki.

    Það er einnig gott ef fjölmiðlar ná sér á strik, fletta ofan af sukki og spillingu, og öðlast sjálfstraust til að standa í lappirnar eftir áralangt andrúmsloft þöggunar og sjálfsritskoðunar.
    Það er mjög gott.

    Það er mjög slæmt þegar fjölmiðill - Morgunblaðið - breytist við þessar aðstæður í ótínda áróðursmaskínu og ræður til sín aðalleikarinn og einn helsta gerandinn í bankahruninu sem ritstjóra sinn.
    Það er svívirðilegt fyrir blaðamannastéttina og dregur úr trúverðugleika og starfsheiðri annarra fjölmiðla einnig.
    Ég skora á Blaðamannafélag Íslands að gera eitthvað í málinu.

    Versti óvinur íslensku þjóðarinnar er skortur á hlutlægni. Helstu forkólfar Flokksins og atvinnulífsins hafa um áratugaskeið þróað fullkomið samtryggingarkerfi um það hvernig skilgreina eigi íslenskan veruleika. Hvernig réttlæta eigi yfirráð fárra yfir auðlindum. Veruleikinn hefur verið á skilmálum þeirra sem verja þurfa sérhagsmuni. Þeir hafa notið aðstoðar taglhnýtinganna með flokksskírteinin í stjórnarráðinu.

    Þetta er ein helsta ástæða þess að íslenskir ráðamenn komast alltaf upp með að þyrla upp moldviðri í kring um sannleikann þar til kjósendur missa áttir.
    Meðal siðmenntaðra þjóða eru gerðar úttektir og mál rannsökuð. Stjórnmálamenn, fjölmiðlar og aðrir beygja sig undir vald sannleikans og veruleikans. Menn segja af sér vegna þess að þeir viðurkenna hlutlægar viðmiðanir.

    Hér hefur geðþóttinn ráðið ferðinni.

    Ísland þarf gagnrýna hugsun. Ísland þarf fólk sem tekur ekki viðstöðulaust við því sem að því er rétt.
    Ísland þarf hugsandi ungmenni sem taka ekki gagnrýnislaust við fullmatreiddum veruleika sérhagsmunagæsluliðsins.
    Ísland þarf raunsætt fólk með úthald sem hefur vilja til að breyta þjóðfélaginu.
    Ísland þarf fólk sem lærir að draga sjálft sig og tilfinningar sínar út úr myndinni og hugsar hlutlægt um erfiðan of flókinn veruleikann sem við blasir.
    Ísland þarf þolgóða og raunsæja stjórnmálamenn sem skilja þýðingu valdsins og viljans til að breyta þjóðfélaginu hægt en örugglega.

    Burt með flautaþyrla!
    Burt með væl!
    Burt með geðþóttann!

    Skrifa athugasemd