Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

  • BJARGAÐI BLAÐAMANNASTÉTTINNI

    19. desember 2009

    Magnús Halldórsson blaðamaður á Viðskiptablaðinu bjargaði íslenskri blaðamannastétt frá hneyksli þegar hann einskipa fylgdist í vikunni með réttarhöldunum yfir Baldri Guðlaugssyni fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu og eins valdamesta manns stjórnkerfisins um árabil.


    Með frétt sinni í Viðskiptablaðinu sl. fimmtudag lyfti Magnús lokinu af ormagryfju. Í réttarsalnum fékk hann greinargerð um vitnisburð margra úr innsta hring mánuðum,,jafnvel misserum áður en bankarnir hrundu.


     


    Hvað kom fram í réttarsalnum?


     


    Í fyrsta lagi að til eru fundargerðir sem bera þess vitni að saman sátu á Baldur, Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins og fleiri á fundum í samráðshópi um fjármálastöðugleika mánuðum fyrir bankahrun með innmúraðar upplýsingar um dauðvona Landsbanka og grafalvarlega fjárþröng allra bankana.


     


    Í öðru lagi að Baldur, sem seldi hluti sína í Landsbankanum 18. og 19. september 2008 fyrir 192 milljónir króna – kortéri fyrir hrun - , hafði þegar í lok júlí látið bóka á umræddum samráðsfundum að það yrði banabiti bankanna ef þær upplýsingar, sem hópurinn bjó yfir, yrði á almanna vitorði.


     


    Tryggvi Pálsson, þrautreyndur bankamaður og yfirmaður í Seðlabankanum, sagði í þriðja lagi, að alla tíð og alltaf hafi samráðshópurinn fjallað um innherjauppýsingar sem haft gátu úrslitaáhrif á verðmæti hlutabréfa í bönkunum. Það merkir að hópurinn var með upplýsingar í höndum sem lögum samkvæmt var skylt að birta öllum almennum hluthöfum í kauphöll þannig að allir hefðu þeir jafna aðstöðu til að bregðast við upplýsingunum og bjarga eigin skinni eins og vera ber.


     


    Stjórnlyndir forsjárhyggjumennirnir, sem uxu úr grasi innan Flokksins voru hins vegar vanastir því að hugsa fyrir pöpulinn. Þeir kusu að halda upplýsingunum fyrir sig og vini sína. Menn eins og Baldur fengu þar með staðfestingu þess að þeir gætu lifað ofar lögunum og bjargað eigin verðmætum ef þeim sýndist svo. Almennir hluthafar  voru hins vegar í góðri trú um að allt væri í sæmilegu lagi.


    Ég segi að þeir hafi lifað ofar lögunum og vísa til þess að með Baldri á fundunum sat til dæmis Jónas Fr Jónsson fyrrverandi forstjóri FME sem bar skylda til þess að sjá til þess að bankarnir færu að lögum um birtingu innherjaupplýsinga.


    Gerði hann það?


     


    Hefðu þessir meðvirku flokkshestar fylgt lögunum og hugsað um almannahag – eins og þeir fengu borgað fyrir – hefðu þessir sérhagsmunagæslumenn þurft að grípa til aðgerða miklu fyrr og með allt öðrum hætti en gert var.


    Í stað þess að hámarka tjón þjóðarinnar fyrstu dagana í október 2008 hefði verið hægt að mýkja lendinguna. 
    Að mínu viti er þetta borðleggjandi.
     

    Hafðu þökk fyrir að standa vaktina Magnús blaðamaður.

    Skrifa athugasemd

  • DÁSAMLEG OG DJÚP LÝSING

    18. desember 2009

    Þórbergur Þórðarson sagði eitt sin að lífið sværi óslitinn bardagi og “sjálfsagt að hver einstaklingur læri að beita vopnunum sem haganlegast. Ella má hann búast við að verða undir á vígvellinum”.


    Ég hlakka til að lesa annað bindi Péturs Gunnarssonar rithöfundar um skáldið mikla. Það kom út núna fyrir jólin.


    Pétur leggur í fyrsta bindinu út af þessum þönkum Þórbergs um lífsins bardaga og eitthvert ósýnilegt vald sem þrengir að mannfólkinu:



    “Án þess að skoti sé hleypt úr byssu, brandi brugðið eða kylfu lyft er styrjöld í gangi, menn eru vegnir með þögn, með afskipaleysi, með augnaráði, klíkuskap, bankaseðlum ... Vopn svo samrunnin að það er ekki einusinni hægt að setja fingur á þau. Það er til dæmis þessi dularfulli þjóðfélagsstigi sem er svo haganlega gerður að sumir virðast ferðast upp í lyftu á meðan aðrir finna ekki einusinni rimar til að fóta sig á. Lágmark að rata á alveg tiltekið hús í bænum og þreyta þar inntökupróf og standast það til að ramba á þennan virðingarstiga sem er forsendan fyrir stöðuveitingum og embættum í þjóðfélaginu.”

    Dásamleg og djúp lýsing Péturs. Hann bætir við að í samfélagi Þórbergs á öndverðri síðustu öld hafi mátt greina fleiri form kúgunarinnar:
     


    “En þá kemur til sitthvað enn ísmeygilegra, enn ósýnilegra, enn áhrifameira: hvernig þú talar, allt frá málrómnum til orðanna sem þú velur. Og jafnvel þótt þetta sé nokkur veginn “í lagi” kemstu ekki hjá því að holdgerast, klæðaburðurinn verður að vera samkvæmt skráðum og óskráðum reglum, fasið, göngulagið, borðsiðirnir, smekkurinn ...”

    Þarft er að hyggja að þessum hlutum þegar samfélag okkar er í upplausn og endursköpun.
    Takk fyrir Pétur og meira af Þórbergi.

    Skrifa athugasemd

  • FLOKKUR Í KLÓM SKRÍMSLANNA

    18. desember 2009

    Hik Sjálfstæðisflokksins fram að falli bankanna, við að ræða Evrópumál, peningamálastefnu, myntina, ríkisfjármál og störf Alþingis hefur haft skaðleg áhrif. Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að koma á sterkari umræðuhefð í grasrótinni. Flokkurinn verður að hlusta á baklandið og má ekki veigra sér við að ræða eldfim mál áður en í óefni er komið.

    Nei þetta eru ekki mín orð, hafi einhver ályktað svo. Skáletrið er upp úr endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisfokksins sem samin var af tugum sjálfstæðismanna undir handleiðslu Vilhjálms Egilssonar fyrir landsfund flokksins í lok mars á þessu ári.

    Davíð Oddsson sté þar í ræðustól, úthúðaði Vilhjálmi, hraunaði yfir tugi skýrsluhöfunda, sagði skýrsluna einskis virði og kvaðst sjá eftir trjánum sem farið hefðu í að gefa hana út.

    Þingheimur klappaði.

    Nýja flokksforystan hefur ekki staðið í lappirnar og nú er flokkurinn í klóm skrímsla með fortíðarþrá frekar en að gera upp málin.

    Þetta eru stóru mistök Bjarna Ben. 

    Grasrótin í Sjálfstæðisflokknum var raunverulega á réttri braut þegar hún færði eftirfarandi í orð í óþökk Davíðs hrunmeistara og kallaði yfir sig reiði hans:

    Það skýtur skökku við að á ríflega 100 dögum eftir eitt mesta efnahagshrun vestræns ríkis á friðartímum var enginn kallaður til ábyrgðar af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Þau skilaboð til þjóðarinnar að enginn beri pólitíska ábyrgð er röng. Hér dugir séríslensk skilgreining á pólitískri ábyrgð ekki. Pólitísk ábyrgð snýst ekki um að kjörinn fulltrúi eigi að sitja sem fastast þrátt fyrir mistök hans sjálfs eða undirmanna, heldur hið gagnstæða.

    Þetta var vitanlega skrifað fyrir kosningarnar í vor leið.
    Segja má að kjósendur hafi veifað endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins og refsað flokknum í kosningunum.

    Hvenær ætlar flokkurinn að lesa skýrsluna sína, taka sönsum og brjótast úr klóm skrímslanna?

    Skrifa athugasemd

  • MISTÖK BJARNA BEN

    17. desember 2009

    Það getur verið kalt á toppnum eins og Bjarni Benediktsson formaður Sjáflstæðisflokknum fær að reyna þessa dagana.


    Læt vera að ræða fréttir um tengsl hans við Milestone og Wernerssyni en vitna í Hávamál: „Vini sínum skal maður vinur vera og gjalda gjöf við gjöf.“   „Glík skulu gjöld gjöfum.“


    Í það minnsta eru Wernerssynir og Bjarni „viðskiptavinir“. Orðið er býsna gagnsætt þegar vel er að gáð;  „skipti“ og „vinur“ kemur fyrir í sama orðinu eins og ég bendi á í grein um gjafir og spillingu í  tímaritinu Mannlífi.


    Bjarni hefur átt á brattan að sækja og hefur gert mistök.


    Sem nýabakaður formaður lofaði hann endurgreiðslu á 55 milljóna króna framlagi frá FL Group og Landsbankanum. Af þessum framlögum lagði þef af mútugreiðslum.


    Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok mars lét hann Davíð Oddsson ná tökum á sér, taka af sér völdin.


    Hann samþykkti að stinga ESB málum ofan í skúffu í 14 ár enn.


    Hann forsómaði að halda uppi merkjum endurreisnarnefndar Vilhjálms Egilssonar. Davíð hafði afgreitt hana á fundinum með fyrirlitningu. Allir klöppuðu. Líka Bjarni.


    Ef allt er með felldu innan rannsóknarnefndar Alþingis fær Sjálfsætðisflokkurinn skell eftir 6 vikur þegar skýrsla hennar birtist.


    Í meira en ár hefur Flokkurinn – eftir Hádegismóalínunni – sýnt hroka, óbilgirni, ábyrgðarleysi og skort á iðrun og vilja til samvinnu um endurreisn.


    Hvernig stendur á því? Af hverju mótar Bjarni ekki nýja ásýnd flokks síns? Af hverju býður hann ekki skrímsladeildinni birginn? Hvernig ætla menn að komast undan væntanlegum áfellisdómum?


    Sitja sem fastast?


    Segja af sér?


    Bíða þess að vantrausttillögur verði lagðar fram? 

    Nú er hugsanlega allt um seinan, of seint fyrir Bjarna að snúa við blaðinu.
     

    Skrifa athugasemd

  • ÓSANNSÖGLI: ÞRJÁR FYRIRSAGNIR

    17. desember 2009

    Er þetta ekki orðið fullmikið af því góða?

    Er ekki hægt að gefa mönnunum eitthvert sannleikslyf?

    Segir kannski enginn í Eimreiðarhópnum satt?


    HÉR ERU ÞRJÁR FYRIRSAGNIR:


    BJARNI BEN SAGÐI ÓSATT
    Bjarni Benediktsson /Macao - Milestone  16. des. 2009 - DV.

    „BALDUR SAGÐI ÓSATT“
    Baldur Guðlaugsson / innherjaupplýsingar innherjasvik - 17. des. 2009 - Viðskiptablaðið.

    GEIR SAGÐI FJÖLMIÐLUM ÓSATT
    Geir H. Haarde: kannaðist ekki við bókun innan ríkisstjórnar sinnar gegn Davíð Oddssyni - 5. nov. 2008 DV.is.

    Skrifa athugasemd