Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason tilkynntu úrsögn úr þingflokki VG á blaðamannafundi.
Þið fyrirgefið mér...
... en ég get ekki orða bundist yfir nokkrum málum sem fyrir mér eru órökræn, óskiljanleg og á einhvern hátt dularfull. Ég finn engin rökræn svör í mínum huga og auglýsi eftir slíkum svörum.
Ég ætla að byrja á þessu:
Frá því Lilja Mósesdóttir var kjörin á þing hefur hún verið mjög andsnúin afskiptum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af efnahagsuppbyggingunni í kjölfar bankahrunsins. Rök hennar voru þessi á blaðamannafundi er hún sagði sig úr þingflokki VG:
„Áður en VG fór í ríkisstjórn var flokkurinn einarður andstæðingur AGS enda stríðir stefna sjóðsins gegn uppbyggingu velferðarsamfélagsins. Nú er forysta VG ásamt Samfylkingu orðin að einskonar málsvara AGS á Íslandi í anda þess sem var í tíð fyrri rikisstjórnar. Stefna AGS hefur sætt gagnrýni hagfræðniga víða um lönd sem talað hafa fyrir hægari aðlögun við að vinna sig út úr efnahagskreppu.“
Ég hef lesið töluvert um sögu AGS og aðgerðir, einkum í löndum þriðja heimsins, sem telja má þjónkun við kapítalismann á Vesturlöndum, einkum í Bandaríkjunum. Ég gæti bent á fræga bók Naomi Klein „The Shock Doctrine“. Ekki er það fögur saga um áhrif frjálshyggjunnar innan sjóðsins á síðari árum, jafnvel áratugum. Meira að segja nóbelhagfræðingurinn Jeffrey Sachs starfaði í þágu þessara sjónarmiða og aðgerða, til dæmis í Rússlandi Jeltsins, en hefur nú snúið frá villu síns vegar.
Reyndar veit ég að AGS dregur nú nýja lærdóma af afskiptum sínum af uppbyggingunni hér á landi. Hér var látið undan skattahækkunum. Hér var kröftugum niðurskurði frestað og úr honum dregið (Munið „The Shock Doctrine“). Hér var að nokkru leyti látið undan kröfum vinstri stjórnar um að verja velfeðarkerfið.
Hvernig hefði Geir Haarde, Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir farið að? Fólkið sem telur nú þjóiðnni trú um (ásamt Mogganum) að hrunið sé VG að kenna, eina flokknum sem hafði fjarvistarsönnun!!?!
Þegar grannt er skoðað er engin innstæða fyrir afstöðu Lilju gegn AGS. Sjálfur taldi ég AGS holdgerfing djöfulsins eins og Lilja. En við verðum að draga lærdóma af reynslunni. Og úrræði sjóðsins í glímunni við bankahrun í þróuðu hagkerfi með mikil milliríkjaviðskipti og örgjaldmiðil eru rökræn.
Sannleikurinn er sá að sennilega hefði mátt koma í veg fyrir hrun allra bankanna hefði Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir farið að ráðum breskra stjórnvalda og leitað til AGS snemma árs 2008, jafnvel fyrr. En klíkan í Sjálfstæðisflokknum mátti ekki heyra þetta nefnt því hún var upptekin við að semja aðgerðaráætlun sem bjarga átti innstæðum ríka fólksins en það er óvart sami hópur og heldur uppi Flokknum. Ekki máttu einhverjir útlendingar lyfta lokinu af þeim potti og finna óþefinn. Meira að segja Lilja benti á þetta fljótlega eftir hrun. En hún vill ekki sjá að AGS hefði með óbeinum hætti getað hjálpað okkur að fletta ofan af klíkuskapnum og spillingunni. Hvers vegna heldur hún að sjálfstæðismenn í öfgahægrinu hafi sömu afstöðu og hún til AGS?
Í annan stað ræður Lilja Mósesdóttir ekki viðhorfum nágrannaþjóða sem um áratugaskeið hafa átt aðild að AGS líkt og Ísland. Vilji stjórnvöld í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð,Danmörku og Brussel fá stimpilinn frá AGS áður en veitt eru neyðarlán – fá einhverja tryggingu frá óreiðumönnum á Íslandi – þá verður svo að vera.
Þetta veit Steingrímur.
Þetta veit ekki Lilja sem virðist vera búin með námskvóta sinn og geti ekkert frekar lært. Heldur aðeins í gamla fordóma sína.
Blogg
NÚ HJÓLA ÉG Í LILJU MÓS...
11:16 › 25. mars 2011
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
