“Nýjustu gögn um framvindu efnahagsmála, verðbólgu og gengisþróun gefa nokkuð misvísandi leiðsögn um þörf fyrir breytt aðhald peningastefnunnar. Óvissa vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn og sú staðreynd að áætlun um losun gjaldeyrishafta hefur enn ekki verið að fullu lokið gefur tilefni til sérstakrar aðgæslu um þessar mundir.
Þar sem horfur eru á að verðbólga verði áfram við verðbólgumarkmiðið og í ljósi þess að vextir eru í sögulegu lágmarki ríkir aukin óvissa um það í hvaða átt næstu vaxtabreytingar verða. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa einnig óvissu til skemmri tíma.”
Þannig tók peningastefnunefnd Seðlabankans til orða í gær með rökstuðningi um óbreytta stýrivexti.
Samdægurs segir Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, að gjaldeyrishöftin séu farin að hamla ávöxtun lífeyrissjóðanna verulega og þrengja kosti þeirra; þeir eiga ekki hægt um vik að ávaxta fé erlendis undir haftaskilyrðum.
Meðan þessu vindur fram birta veifiskatarnir* sjö, undir forystu formanns Lögmannafélagsins, möntru sína í Fréttablaðinu um að hollast sé þjóðinni að fara í skotgrafir og hafna Icesavesamningum.
Af hverju reyna þessir sjö veifiskatar ekki að gera eitthvert gagn. Þeir gætu til dæmis reynt að fá bankana til að endurdreifa til fyrirtækja og heimila hluta af þeim tekjum sem þeir hafa aflað með gegndarlausu vaxtaokri. Til dæmis með afskriftum. Hvar annars staðar á byggðu bóli eru innlánsvextir rétt yfir núlli en útlánsvextir 11 prósentustigum ofar? Í eina tíð var mönnum refsað fyrir slíka okurvexti. Íslandsbanki hafði einn og sér 34 milljarða króna í vaxtatekur í fyrra. Það er sama upphæðin og íslenska þjóðin þarf líklega að borga vegna Icesave.
* veifiskati - Íslensk orðabók
veifi·skati. KK. 1. vesalmenni, óstöðugur, ístöðulítill, ótraustur maður.
Blogg
VEIFISKATARNIR 7
17. mars 2011 › 07:06
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
