ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

RITSTJÓRN OG EIGENDUR

14:15 › 7. ágúst 2010

Í nóvember 2006, vann á Útvarpi Sögu, og hélt úti þætti sem gekk undir nafninu Morgunhaninn. Þátturinn gekk prýðilega og hlustendum fjölgaði mjög frá því þátturinn hóf göngu sína og þar til ég hætti ári síðar. Á þessum tíma ritaði ég jafnframt kjallaragreinar í DV og gerði úttektir fyrir nýtt tímarit, Ísafold, sem Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson ritstýrðu, en "Morgunhaninn" var kostaður af DV og eigendum þess á þeim tíma.
Í fyrsta tölublaði Ísafoldar í nóvember 2006 ritaði ég og Sigtryggur Ari Jóhannsson langa úttekt um fjölmiðlamálið sem gaus upp vorið 2004 og endaði með því að forseti Íslands synjaði staðfestingar fjölmiðlalögum sem kennd voru við Davíð Oddsson.
Fjórar hliðargreinar birtust með meginúttektinni.
Ein þeirra fjallaði um afskipti eigenda af Fréttablaðinu, þar sem ég vann sem blaðamaður,  þegar ákærur voru gefnar út í Baugsmálinu svonefnda.
Greinin var svohljóðandi og birt hér ýmsum "sannleikselskendum" til upplýsingar:

"Ritstjórn og eigendur


Mikið fjaðrafok varð þegar Fréttablaðið birti ákærur í Baugsmálinu svokallaða, með athugusemdum og viðtölum við tvo sakborninga, feðgana Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson, aðaleigendur Baugs Group og þannig meðal stærstu hluthafa í 365 prentmiðlum, úgáfufélagi Fréttablaðsins. Þetta var í ágúst árið 2005. Fréttablaðið var sakað um að láta stjórnast af hagsumun eigendavaldsins.
Færri vissu að eigendurnir höfðu afhent blaðinu ákærurnar, fyrst allra fjölmiðla, í byrjun júlí þetta sama sumar. Þessi gögn afhentu eigendurnir blaðinu með þeim skilmálum að lögfræðingar þeirra fengju að lesa viðtölin yfir fyrir birtingu. Síðar kom á daginn að þeir hlutuðust einnig til um hvernær ákærurnar yrðu birtar.
Það er ekki nýr raunveruleiki að blaðamenn þurfi að kaupa sínar upplýsingar einhverju verði, en hér má segja að Fréttablaðið hafi verið komið í vægast sagt þrönga stöðu gagnvart eigendunum. Ritstjórnin hafði ætlað sér að verða fyrst til þess að birta ákærurnar en af ókunnum ástæðum sáu eigendur blaðsins  hag Baugs best borgið með því að seinka birtingunni.
Fréttablaðið varð augljóslega við þessum ætlunum eigendavaldsins því ákærurnar birtust ekki fyrr en í ágúst, eða daginn eftir að umfjöllun birtist um málið í  breska dagblaðinu The Guardian.
Hér var Fréttablaðið komið í þá stöðu að jafnvel þótt það kysi að birta ekki ákærunar á undan öðrum fjölmiðlum þá hefði það stungið fréttnæmu efni ofan í skúffu. Ritstjórnarvaldið í þessu einstaka máli hafði með öðrum orðum færst frá hinum eiginlegu ritstjórum og yfir til eigendanna.
Sú réttlæting hefur verið sett fram um þetta og skyld tilvik, að sakborningar eigi og verði að hafa fullt svigrúm til að verja hendur sínar þegar höfðað er opinbert mál á hendur þeim og miklir hagsmunir eru í húfi.  Sú þversögn blasir hins vegar við að í ítarlegri umfjöllun um fjölmiðlalög hefur ritstjórnarlegt sjálfstæði þótt afar mikilsvert gagnvart eigendum, auglýsendum, valdamönnum eða öðrum sem kynnu að vilja grípa fram fyrir hendur ritstjórna."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.