ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

VANTAR AÐEINS HERSLUMUNINN

20:46 › 15. ágúst 2010

Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins kemst að þeirri augljósu niðurstöðu í pistli sínum í Sunnudagsmogganum, að aðeins mismunandi sýn á fortíðina skilji að Ragnar Arnalds, Pál Vilhjálmsson og Ögmundarflokkinn annars vegar og Heimastjórnararm Sjálfstæðisflokksins hins vegar. Þeir hafi aðeins mismunandi sýn á fortíðina, sér í lagi á Kaldastríðið. Um hin stærstu mál samtímans ríki hins vegar eindrægni Ögmundarflokksns og Heimastjórnararmsins; nefna má Icesave, ESB, Magma og auðlindir.
"Þetta er hin mikla sjálfhelda íslenskra stjórnmála nú um stundir. Þeir sem eiga samleið í stærstu málum nútímans geta ekki náð saman vegna þess að þeir eru svo uppteknir af deilumálum fortíðarinnar," skrifar Styrmir.

Þetta ætti ekki að koma leiðtoga Ögmundarflokksins á óvart. Honum hefur verið bent á þetta í meira en ár.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.