ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

HOLLUSTAN VIÐ BORGARANA

01:37 › 1. ágúst 2010

Eftirfarandi yfirlýsingu frá Hreini Loftssyni las ég á vef Eyjunnar:

„Vorið 2006 var stofnað félagið Hjálmur ehf. í meirihlutaeigu Baugs Group hf. Þetta félag fór í margvíslega útgáfustarfsemi í kjölfarið. Aldrei var dregin fjöður yfir tengsl þess við Baug. Félagið var þó ávallt á mínu forræði og er enn. Hjálmur stofnaði til útgáfu tímaritsins Ísafoldar, það keypti útgáfuréttinn að DV og opnaði vefsíðuna dv.is. Í framhaldi af þessari starfsemi keypti Hjálmur meirihluta Birtíngs hf. og færði til þess félags rekstur Ísafoldar, DV og dv.is. Félagið hafði í bígerð að hefja útvarpsrekstur – keypti meira að segja útvarpssendi í því skyni – og fékk til liðs við sig Jóhann Hauksson til að kanna möguleikana vegna reynslu hans sem útvarpsmanns. Í húsnæði Birtíngs var útvarpsstúdíó og til greina kom að hafa útvarpsreksturinn þar. Viðræður fóru fram um kaup á hlut í Útvarpi Sögu en ekkert varð úr þeim hugleiðingum. Afráðið var að kosta morgunþátt í umsjón Jóhanns Haukssonar og tengja þáttinn með auglýsingum við útgáfustarfsemi á vegum Hjálms. Ávallt var auglýst að þátturinn væri kostaður af DV. Þetta var hluti af ímyndarherferð blaðsins enda var ímynd þess löskuð og ég taldi mikilvægt að virtir og öflugir blaðamenn tengdust útgáfunni. Þegar samstarfinu við Útvarp Sögu lauk gerðist Jóhann Hauksson blaðamaður hjá Birtíngi og DV. Hann hefur átt drjúgan þátt í því að endurreisa ímynd DV með vönduðum fréttaskýringum. Ég hef aldrei skipt mér af störfum hans, hvorki á Útvarpi Sögu né hjá DV.“

Við þetta er litlu að bæta. Ég hrökklaðist frá "Baugsmiðlinum" Fréttablaðinu snemma í júní 2006 vegna skrifa minna og fór til starfa fyrir Útvarp Sögu/Hjálm/Birting.
Er eitthvað tortryggilegra við það en að vinna fyrir t.d. Árvakur, 365 eða RÚV? (Að vísu er ef til vill eitthvað tortryggilegt að vinna fyrir Arnþrúði Karlsdóttur.).

Mín reynsla er sú að Hreinn Loftsson sé mjög upplýstur um lögmál trúverðugra fjölmiðla. Hann er t.a.m. afar meðvitaður að mínu viti um efni eftirfarandi pistils Jónasar Kristjánssonar frá 24. apríl sl. um siðareglur blaðamanna.

"Blaðamenn
eru að ræða nýjar siðareglur, sem eru afleitar. Ég býð þeim mun betri
reglur eftir Kovach og Rosenstiel. Þær hljóða svo: 1. Blaðamennska
veitir fólki upplýsingar, sem gera það frjálst. 2. Skuldbinding hennar
er fyrst og fremst við sannleikann. 3. Hollusta hennar er við borgarana.
4. Eðli hennar er leit að staðfestingum. 5. Hún er sjálfstæð gagnvart
þeim, sem fjallað er um. 6. Hún er óháður vaktari valdsins. 7. Hún er
torg gagnrýni og málamiðlana. 8. Hún reynir að gera það mikilvæga
áhugavert og viðeigandi.9. Hún er víðtæk og í réttum hlutföllum. 10. Hún
má beita eigin samvisku."

Mönnum er hollt að hafa hugfast að fjölmiðlar sem reka áróður fyrir þrönga hagsmuni ná síður verulegri útbreiðslu. Betra er að halda sig við sannleikann og hollustu við borgarana.
Fyrir þá sem muna illa má rifja upp, að Hreinn var árum saman hægri hönd Davíðs Oddssonar, meðal annars í einkavæðingarnefnd,  en sagði skilið við hann og Sjálfstæðisflokkinn snemma upp úr aldamótunum með þeim orðum að hér á landi ríkti ógnarstjórn.

Æskilegt væri að íslensk þjóðmálaumræða stjórnaðist meira af málefnum frekar en innantómum hávaða og plebbalegum upphrópunum frá ofstækisfjölmiðlum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?