ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

MÁR OG GYLFI TEKNIR AF DÓMARANUM

23:47 › 23. júní 2010

Eftirfarandi brot úr frétt fann ég á fréttavef RÚV í dag:

“Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir að þeir sem tóku gengistryggð bílalán hafi í raun samið um verðtryggingu. Þótt þessi verðtrygging hafi verið dæmd ólögmæt útiloki það ekki aðra verðtryggingu á lánunum. Því sé líklegt að fjármálafyrirtækin láti reyna á það hvernig verðtryggja megi samningana. Pattstaða sé í málinu.”

Er ekki gott fyrir fréttastofu RÚV að vita að Brynjar Níelsson hefur um langt skeið verið lögfræðingur  SP- Fjármögnunar?

Ábyggilega gott fyrir alvöru fjölmiðla að spyrja alltaf um hagsmuni fyrst. Að Hróbjartur Jónatansson lögfræðingur hafi unnið fyrir Avant, fjármögnun öku- og atvinnutækja o.s.frv. Spyrja áður en hann eða aðrir lögfræðingar, sem svipað er ástatt um, eru notaðir sem hlutlausir álitsgjafar.

Ég tek eftir því að Gylfi Magnússon bankamálaráðherra og Már Guðmundsson seðlabankastjóri eru á taugum í þágu bílalánabanka í landinu. Meira að segja Guðmundur Ólafsson hagfræðingur líka. Mér heyrðist Gylfi jafnvel vilja leggja Hæstarétti línurnar.

Ég segi: Hafið engar áhyggjur. Fólk borgar lánin sín með vöxtum mínus gengistrygginguna sem reyndist ólögleg.

Menn eiga að fara að lögum í landinu. Punktur.

Með leyfi: Fara Gylfi, Már og Guðmundur einhvern tíma á taugum út af skertum möguleikum Jóns og Gunnu til að endurgreiða sín lán? Pökkuðu þeir í vörn fyrir BM Vallá um daginn? O.s.frv.?  
Er ekki rétt að þeir hugsi bara um gjaldþrotalögin frekar en um bílalánabanka sem frömdu lögbrot?
Af hverju fagnar ekki Gylfi gengistryggingardómi Hæstaréttar? Hann getur til dæmis skattpínt alþýðuna meira í kjölfar dómsins.

Svo væri ágætt fyrir þá að fara í kennslustund hjá einum besta dómara og lögspekingin landsins, Magnúsi Thoroddsen. Hann getur uppfrætt menn um að réttarbætur í þessum efnum komu með EES samningnum og lagabreytingum um samningalög árið 1995. Þar er hægt að víkja samningi til hliðar í heild, að hluta eða breyta gefi síðari atvik tilefni til slíks, ÞÓ EKKI ÞANNIG AÐ Á NEYTANDANN HALLI! Magnús segir að lántakandinn sé neytandi í þessu tilviki.

Guði sé lof fyrir EES og ESB því ekki kæra íslenskir ráðamenn sig um að verja, hvað þá bæta réttindi almennings.

Hvorki Gylfi né Már geta hróflað við einu eða neinu hér. Það verða bílalánabankarnir að gera sjálfir með málshöfðun.

“Magnús Thoroddsen fyrrv. forseti Hæstaréttar telur einsýnt að bankarnir muni einnig tapa fyrir Hæstarétti þeim málum sem höfðuð verði til að útkljá óvissu um hvort verðbætur eða aðrir vextir eigi að koma í stað gengistryggingarinnar sem rétturinn dæmdi ólöglega í síðustu viku,” segir á vef RÚV um viðtalið við Magnús.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.