Það er þyngra en tárum taki að hofra upp á fáránlega þróun Ríkisútvarpsins sem bregst við niðurskurði með því að naga af sér fæturna.
Hvernig á RÚV að geta gengið eftir það?
Fyrirlitning naflalesarana í Efstaleiti á landsbyggðinni er sláandi. Búið er að leggja að mestu niður svæðistöðvarnar. “Þakka ykkur fyrir að láta svo lítið að kíkja við hér eystra,” sagði Smári Geirsson, héraðshöfðingi á Austurlandi undanfarin 20 til 30 árin, þegar starfsmenn RÚV reyndu að bæta skaðann og komu við einn dag á Ausurlandi í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Þaðan hringdu þeir í Smára. Var ekki hægt að gera það úr Efstaleiti og spara fé?
Með því að leggja niður starfsemi svæðisstöðvanna að mestu átti að spara liðlega 30 milljónir króna á ári.
Hvað á þetta að þýða? Var ekki hægt að leggja niður tvo fréttamenn í Reykjavík og biðja svæðisstöðvarnar um að ganga almennar vaktir fyrir fréttastofu Útvarps á móti? Af hverju þarf að starfrækja allt frá nafla alheimsins í Efstaleiti? Halda menn að CNN framleiði allt efni sitt í höfðustöðvum sínum í Atlanta í Bandaríkjunum?
Telur RÚV það vera sérstakt hlutverk sitt að dýpka gjána milli landsbyggðar og þéttbýlis í okkar fámenna landi?
Svo mætti ætla.
Nú fæ ég þær upplýsingar að ekki standi til að leysa af eina starfsmann RÚV sem eftir er á Austurlandi. Austurland má snapa gams og súpa hel í að minnsta kosti 3 vikur. Þurrka það út af fréttakorti RÚV yfir háannatímann á miðju sumri.
Þetta er óskiljanlegt og ótrúlegt.
Og stjórnvöld segja pass. Láta þennan OHF-bastarð ófullburða einkavæðingar frá fyrri árum sigla RÚV út í botnlaust fen og horfa hjálparvana á. Ég tek fram að þetta hefur ekki með sparnað að gera. Þetta er hrein fíflska hjá fjölmiðli sem nánast hefur nú lokið við að eyðileggja forsendur þjóðfélagsins íslenska til þess að reka almannamiðil.
Fyrir skemmstu átti ég sæti í nefnd á vegum Blaðamannafélags Íslands sem fjallaði um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Lokaútgáfuna er að finna á vef BÍ, press.is.
Þar sagði ég meðal annars í umfjöllun um “Ögrandi sannleiksleit”:
“Þegar borgararnir neyðast til þess að þegja, til dæmis á vinnustöðum sínum kemur það ekki aðeins í veg fyrir að hægt sé að afhjúpa undirferli, misnotkun og óreiðu. Rök þöggunarinnar ýta undir stalínistískt skipulag þar sem yfirmennirnir fá aðeins að heyra ritskoðaðar útgáfur af raunveruleikanum og fá alltaf rétt svör hjá valdhlýðnum jábræðrum. Þetta er skipulag sem dæmt er til þess að liðast í sundur innan frá.
Vinnustaðir íslenskra fjölmiðla geta fallið undir þessa lýsingu, Ríkisútvarpið ekkert síður eftir að því var breytt í opinbert hlutafélag. Þar má segja að niðurskurður og breytt rekstrarfyrirkomulag kalli fram hollustu starfsmanna sem ryður burt eldri og lýðræðislegri starfsháttum.”
Örlög RÚV eru lifandi staðfesting á þeirri skoðun finnska heimspekingsins G. H. von Wright að framfaratrúin er goðsögn.
Blogg
RÚV GREFUR GRÖF SÍNA HJÁLPARLAUST
13:30 › 21. júní 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





