Ég ætla einu sinni enn að vitna í liðlega ársgamla endurreisnarskýrslu Sjálfstæðisflokksins, sem Davíð Oddsson hraunaði kurteislega yfir (eða hitt þó heldur) á landsfundi flokksns í mars í fyrra.
Flokkurinn kemur sama til landsfundar á ný á föstudag þar sem ekkert nýtt mun gerast annað en að Ólöf Nordal verður kjörin varaformaður flokksins. Enda er það allra meina bót að skipta um fólk en ekki stefnu eins og ráða má af eftirfarandi úr endurreisnarskýrslunni:
„Grunngildi Sjálfstæðisflokksins brugðust ekki, heldur fólk. Hrun íslenska efnahagskerfisins orsakast af mörgum samverkandi þáttum, þ.m.t. rekstri eigenda og stjórenda bankanna (sem settu þá í þrot), mistökum stjórnvalda, bankakreppunni og lausafjárþurrð í heiminum.
Sjálfstæðisflokkurinn getur einuvörðungu borið ábyrgð á fulltrúum sínum og þeirra aðgerðum eða aðgerðarleysi þeirra, en ekki bankamönnum eða stöðu alþjóðasamfélagsins hverju sinni. Við þurfum að læra af þeim mistökum sem við höfum gert og fylgja stefnu Sjálfstæðisflokksins. Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að hafa í heiðri stefnu Sjálfstæðisflokksins í því uppbyggingarstarfi sem fram undan er.“
Já, fólk brást en ekki stefna flokksins. Hmmm.
Getur einhver útskýrt þessa niðurstöðu fyrir mér?
Ég spyr vegna þess að hér var rekin öfgakennt frjálshyggja í nafni Sjálfstæðisflokksins síðustu 25 árin fyrir hrun. Eftirlitsleysið varð dyggð, frelsi án ábyrgðar varð mottó.
Einangrunarhyggjan og átakastjórnmál virðast hafa undirtökin í flokknum þegar hallar í tvö ár frá bankahruninu. Að minnsta kosti á síðum Morgunblaðsins.
Fjöldi fólks er farið af vettvangi flokksins; Geir, Þorgerður, Árni...
„Sjálfstæðisflokkurinn getur einvörðungu borið ábyrgð á fulltrúum sínum og þeirra aðgerðum eða aðgerðarleysi þeirra,“ segir í skýrslunni og vafalaust er þar átt við menn eins og Tryggva Þór, Guðlaug Þór, Gísla Martein og Sigurð Kára.
Það verðu fróðlegt að sjá hvernig landsfundur flokksins ætlar að bera ábyrgð á fulltrúum sínum en fylgja stefnu sinni.
Hver er hún?
Blogg
FÓLKIÐ BRÁST EN EKKI STEFNAN!
09:31 › 21. júní 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
