ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÍSLAND OG TYRKLAND SAMAN Í EES

11:39 › 1. apríl 2010

Mig grunar að Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor byggi skrif sín á einhverjum gögnum þegar hann lætur að því liggja í grein í Fréttablaðinu í dag, að Evrópusambandið geti hugsað sér að koma því svo fyrir að Tyrkir geti gengið í EFTA og komist hálfa leið inn í ESB með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu,EES.

Þá yrðu Norðmenn, Íslendingar og Tyrkir saman í EES!

Þorvaldur segir: " Frökkum, ÞJóðverjum og öðrum er umhugað að koma til móts við Tyrki án þess þó að veita þeim að svo stöddu færi á að semja um aðild að ESB. Sú spurning hlýtur að vakna, hvort til greina komi að bjóða Tyrkjum aðild að EFTA og EES-samningnum, þar eð hann felur í sér aukaaðild að ESB án áskriftar að sameiginlegri landbúnaðar- og sjávarútvegsstefnu ESB og án áskriftar að evrunni. EES-samningnum var einmitt ætlað að vera þjálfunarbúðir og biðstofa handa löndum sem þurftu tíma til að ákveða, hvort þau vildu gerast fullgildir aðilar að ESB."

Evrópusambandinu er með öðrum orðum nokkuð í mun að Tyrkir halli sér til Evrópu frekar en í austurátt. Íbúar Tyrklands eru um 70 milljónir.

Þorvaldur telur að með aðild Tyrkja að EES-samningnum mundi samningurinn gegna hlutverki sínu enn betur en nú.

Skemmtileg tilhugsun: Noregur, Ísland og Tyrkland í EES!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.