ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÞEGAR ÚTRÁSARVÍKINGAR OG KJÓSENDUR URÐU SAMMÁLA

11:47 › 9. mars 2010

Hefðu ekki allir sett x við "Betra veður" ?

Ég treysti því að útrásarvíkingar á borð við Karl Wernersson, , Björgólf Thor Björgólfsson, Hannes Smárason, Pálma Haraldsson og Jón Ásgeir Jóhannesson hafi  farið á kjörstað síðastliðinn laugardag og krossað við NEI.

Ég treysti því að Kjartan Gunnarsson, Björgólfur Guðmundsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Lárus Welding og aðrir eigendur og stjórnendur föllnu bankanna hafi einnig farið á kjörstað og  krossað við NEI á kjörseðlinum.

Við vitum að Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og fleiri þingmenn, sumir mjög tengdir útrásarviðskiptum, hafi farið á kjörstað og sett x við NEI.

Hafi ofangreindir og  miklu fleiri gerendur í hruninu farið á kjörstað og sagt NEI er augljóst að skoðanir þeirra fara saman við skoðanir um 130 þúsund þolenda sem settu x við NEI á kjördag.

Munurinn er sá að þolendurnir segja NEI við byrðum sem gerendurnir, sem líka sögðu NEI, veltu í raun yfir á herðar þeirra.  Margir gerendanna í hruninu lifa enn góðu lífi og ætlast til þess að fá miklar skuldir afskrifaðar, venjulega á kostnað almennings þegar upp er staðið.

Ég reikna með að gerendur og þolendur hrunsins hefðu einnig verið sammála ef þeir hefðu verið spurðir um það í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort þeir vildu betra  veður.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.