ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÞEGAR LÝÐRÆÐISVÍMAN RENNUR AF MÖNNUM

22:38 › 8. mars 2010

Hægt og bítandi flýtur þjóðin að feigðarósi.
Öll áform um uppbyggingu og endurreisn eru 6 til 8 mánuðum á eftir áætlun.
Líklegt er að herða þurfi ólina í ríkisútgjöldum meir en ráð er fyrir gert á fjárlögum.
Ekki er ósennilegt að niðurskurður opinberra útgjalda fyrir næsta ári þurfi að vera 50 til 60 milljarðar króna í stað 40 til 50 milljarðar.
Allur sá “umfangsmikli” og “gríðarlegi” árangur sem náðst hefur með þjóðaratkvæðagreiðslu um úreltan Icesavesamning er sem sagt búinn að koma okkur á nýjan stað þar sem þjóðin horfir fram af hengifluginu.


Er það ekki einmitt málið. Þegar lýðræðisvíman rennur af forsetanum horfir hann fram af hengifluginu og fær svimakast.
Ég ætla að biðja Ólaf Ragnar forseta alveg sérstaklega að fara ekki að svara Jonas Gahr Störe, Fredrik Reihnfeldt eða öðrum ráðherrum á Norðurlöndum til þess að skemma ekki meira fyrir okkur en hann hefur nú þegar gert.


Ég nenni varla lengur að eyða orðum á villta tryllta vinstrið í VG sem hefur með hjálp Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben.haft ríkisstjórnina í rimlabúri undanfarnar vikur.
Ögmundarararmunrinn hefur það helst á dagskrá að bjarga þjóðinni undan Alþjóðagjaldeyrissjóðnum við þessar aðstæður.
Fyrirgefið, en má ég ekki biðja þetta fólk um að lyfta hönd til að bjarga íslensku þjóðinni fyrst áður en ráðist er til atlögu við AGS.

Það er raunverulega að skapast neyðarástand!

Ísland hefur greitt iðgjöld til AGS í áratugi án þess að nokkur hafi gert við það athugasemdir.
Ég skal fara í einhverja baráttu með þeim fyrir breytingum á AGS og athæfi sjóðsins í heiminum, en bara ekki núna. Við stöndum of nálægt nýju hruni og megum ekki dreifa kröftunum.


Mér sýnist Sigmundur Davíð Gunnlaugsson framsóknarforingi vera búinn að dæma sig úr leik.

Mér sýnist einnig að Sjálfstæðisflokkurinn eigi afar erfitt með stjórnarþátttöku á næstu vikum og mánuðum meðal annars vegna rannsóknarskýrslu Alþingis sem birt verður síðar í mánuðinum.
Hins vegar kann þvergirðingsháttur villta vinstrisins (sem mér sýnist vera að verða dálítið þreytulegt) að verða til þess, að Jóhanna og Steingrímur ræði í fullri alvöru við forystu Sjálfstæðisflokksins um að koma með einhverjum hætti til liðs við ríkisstjórnina um mikilvægustu mál. Þetta gæti gerst með því að sjálfstæðismenn tækju þátt í að ljúka Icesavesamningi án Sigmundar Davíðs og framsóknarmanna.
Þetta gæti gerst með því að sjálfstæðismenn veittu ríkisstjórninni hlutleysi eða beinan stuðning í vissum málum, en fengju til dæmis formennsku í mikilvægum þingnefndum frekar en ráðherrastóla.
 
Þetta væri vitanlega einskonar þingræðisleg samstjórn, reyndar í mjög góðu samræmi við kenningar Ögmundar Jónassonar um sjálfstæði þingmanna. Hann gæti þá ótrauður haldið áfram í stjórarandstöðu án þess að hindra framgang mála og gera stjórnkerfið með öllu óvirkt.
Sjálfstæðismenn gætu haft af þessu nokkurn hag. Með þessu sýndu þeir ábyrgð í erfiðri stöðu. Formaðurinn ungi gæti styrkt stöðu sína gegn ritstjóranum í Hádegismóum sem að líkindum fær skell í rannsóknarskýrslu Alþingis. Umfram allt sýndi Sjálfstæðisflokkurinn með þessum hætti ábyrgð á örlagastundu gagnvart atvinnulífinu og heimilunum.
Á meðan væri allt í lagi að leyfa Lilju Mósesdóttur, Ögmundi Jónassyni og þeim hinum í villta vinstrinu að berjast gegn AGS og ESB og reyna sýna okkur hinum hversu gríðarlegur árangur varð af þjóðaratkvæðagreiðslunni um allan heim.
Með öðrum orðum. Með liðsinni ábyrgra sjálfstæðismanna þyrftu þau ekki lengur að flækjast fyrir.
 
Ekki frekar en Sigmundur Davíð sem allir eru að gefast upp á innan samninganefndarinnar.


Úr frétt RÚV í dag:


Harður tónn er nú í norskum fjölmiðlum og ráðamönnum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-lögin á Íslandi. Utanríkisráðherra landsins segir að forseti Íslands misskilji afstöðu norrænna þjóða til vanda Íslendinga og víðlesnasta blað landsins kallar kosninguna skrumskælingu á lýðræðinu.
Bæði norski fjármálaráðherrann og utanríkisráðherrann hafa nú svarað ummælum Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um að norrænu ríkisstjórnirnar hafa hallast á sveif með Bretum og Hollendum í Icesave-deilunni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.