ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

TAKK FYRIR!

19:11 › 7. mars 2010

Ég hlaut blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands í gær.

Viðurkenningin gladdi mig mjög.

Ég sagði við hóp starfssystkyna í gærkvöldi að það hefði runnið upp fyrir mér fyrir aðeins nokkrum misserum hversu mjótt bilið er milli kaldrar skynsemi og tilfinninga í störfum blaðamanna.
Það á vafalaust við um mörg önnur störf.

Þetta er raunar afar einfalt: Því betri gögn sem blaðamaðurinn kemst yfir, því betur sem hann sannreynir efnivið fréttar sinnar, því meiri verður kjarkurinn til að segja hana.

Það gleður mig einnig að í hópi ungra blaðamanna er nú að finna óvenju marga snjalla, hugsandi og hugrakka einstaklinga.

Það er gott fyrir íslenskt þjóðfélag.

Þessar línur set ég á blað ekki síst til þess að þakka kærlega fyrir hlýjar óskir frá lesendum, í athugasemdadálkum, tölvupóstum og símboðum.

Ég verð var við að ekki eru allir jafn ánægðir með skoðanir mínar. Best líkar mér málefnaleg skoðanaskipti en virði tjáningarfrelsið til enda.

Kærar þakkir.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.