Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins er búinn að mála sig út í horn.
Hann hefur nú opinberað að hann vilji að ríkisstjórnin víki. Framganga hans í fjölmiðlum í dag birtir tvískinnunginn.
Sigmundur Dvíð hefur afhjúpað að hann hefur notað Icesavemálið til þess að grafa undan ríkisstjórninni án þess að hafa stöðu til að bjóða þjóðinni aðra kosti.
Hann afhjúpaði meðal annars þennan tilgang sinn þegar hann lagði fram þingsálykturnartillögu ásamt þingmönnum Hreyfingarinnar um að slíta samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Með því vill hann reka fleyg í raðir VG. Ekkert annað.
Slit á samvinnu við AGS er ekki á dagskrá stjórnarflokkanna þótt andstöðu gæti innan VG.
Ég veit ekki til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi breytt um afstöðu gagnvart sjóðnum; hann samdi upphaflega við AGS í nóvember 2008.
Sigmundur Davíð telur enga ástæðu til að semja við Hollendinga og Breta um Icesave og mun alltaf fara úr einu vígi í annað þegar ný samningsdrög eru kynnt.
Sigmundur Davíð vill þingkosningar í vor samhliða sveitarstjórnarkosningunum og vill að allir stjórnmálaflokkar semji um tilteknar brýnar aðgerðir.
Af því verður ekki og hann meinar heldur ekkert með því. Það sýnir sig í framgöngu hans í Icesaveviðræðunum en stjórnarandstaðan hefur neitunarvald í því máli eins og allir vita.
Þegar allt þetta liggur fyrir gliðnar á milli Framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokksins í Icesave-samningaviðræðunum. Sjallarnir missa trú á leikjafræði Sigmundar.
Flokksmenn Sigmundar missa einnig trú á formanni sínum, jafnvel innan þingflokksins.
Eftir nokkra daga mun lífið fara í sínar skorður eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Nýr samningur verður gerður. Framsókn stendur fyrir utan.
Steingrímur og Jóhanna eiga engan kost annan en að leggja slíkan samningi fyrir þingið upp á von og óvon.
Með þessu gæti þjóðin komist að því hversu lengi stjórnarandstöðunni með fulltingi villta vinstrisins í VG tekst að trufla endurreisn þjóðfélagsins.
Blogg
SIGMUNDUR DAVÍÐ BERSTRÍPAÐUR
15:27 › 7. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
