ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

STJÓRNMÁLASPUNINN GEGN ÞJÓÐINNI

12:04 › 6. mars 2010


Íslenskir fjölmiðlar sjá ekki við spuna herskárra, en ábyrgðarlausra stjórnmálaafla, sem ekki hafa haft neitt annað á sinni könnu undanfarna  8 mánuði en að grafa undan ríkisstjórninni án þess þó að gera sérstakt tilkall til þess að taka við stjórnartaumunum.


Stjórnmálastéttin í landinu hefur nú þegar leikið þjóðina mjög grátt, já svikið hana.
Vel er hægt að skilja það að Vafningsmaðurinn Bjarni Benediktsson noti orðræðuna til þess að grafa undan ríkisstjórninni. Hvað svo sem segja má um sérhagsmuni Engeyjarfjölskyldu hans er hann eftir sem áður formaður Sjálfstæðisflokksins sem  fyrir nær ári kastaði sinni eigin yfirbótar- og endurreisnarskýrslu á galdrabrennu Davíðs Oddssonar. Sjálfstæðisflokkurinn er í stjórnarandstöðu og yfir honum vofir skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis. Þar er Sjálfstæðisflokkurinn höfuðsökudólgur eftir að hafa stýrt fjármálakerfi landsmanna nánast einráður síðustu 17 árin fyrir bankahrun.
Bjarni hefur auðvitað notað Icesavevilluljósið eins vel og hann getur, hæfilega kjarklaus til þess að fara ekki gegn Hádegismóra sem glímir í helli sínum við yfirbótar- og tilvistarvanda. Hæfilega kjarklaus til að taka ekki upp hanskann fyrir þjóðina.


Hvað er að segja um Sigmund Davíð formann Framsóknarflokksins? Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra þurfti ekkert að lýsa honum sem ónytjungi og falsspámanni í Kastljósinu í gærkvöldi. Hann þurfti þess ekki og gerði það ekki þar af leiðandi. Flestir höfðu áttað sig á manninum, meira að segja liðsmenn Bjarna Ben. Steingrímur gaf þó til kynna, að sér hefði brugðið þegar hann áttaði sig á því í vikunni að í samningaliðinu væri skemmd kartafla, sem eyðilagt gæti alla uppskeruna.


Hvernig stendur á því að fánýt þjóðaratkvæðagreiðsla var ekki blásin af í tæka tíð? Erlendur blaðamaður hjá frægu og virtu alþjóðlegu blaði sagði við mig hafandi líkt stjórnarfarinu hér við Gög og Gokke: “Basically, it's complete fucked up. And would be extremely amusing if it weren't so pathetically sad...”


Frumástæðan fyrir því að við erum búin að hlaða stjórnmálakreppu ofan á bankahrun og efnahagskreppuna má rekja til innanmeina vinstriflokkanna sjálfra. Stjórnarandstaðan hefur vitanlega glott álengdar og spilað á veikleikana. Fært Icesavemálið úr réttum hlutföllum og brugðið því eins og neti yfir þjóð í öngum sínum.
Já, ég er að tala um Ögmund Jónasson og fylgismenn hans í villta vinstrinu innan VG.
Nú munar hársbreidd að það sannist sem ég spáði strax fyrir meira en hálfu ári að sundrung vinstrimanna færði Sjálfstæðisflokknum völdin, hrunflokknum sjálfum sem er sannarlega á sakamannabekknum og hefði átt að halda sig til hlés fram yfir rannsóknarskýrslu.
Það er ömurlegt til þess að vita að Ögmundur leggi út gildrur fyrir ríkisstjórnina með glottandi Sigmund Davíð og Bjarna Ben. sem anda ofan í hálsmál hans..
Mér er fullkunnugt um að jafnvel þótt Samfylkingunni þyki henta að samstaðan á vinstrivæng verði efld með því að kippa Ögmundi Jónassyni inn í ríkisstjórnina (skipta nú persónur allt í einu mestu máli á vinstri væng stjórnmálanna?) er það nær útilokað eins og ástatt er innan VG. Fari hann inn fara aðrir út.


Allt er einfaldlega orðið um seinan.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, ræður þar engu um.
Engu máli skiptir lengur hverjum um er að kenna. Vinslit undir erfiðustu verkefnum nokkurrar ríkisstjórnar fyrr og síðar er mesti trúnaðarbrestur og dýpstu vinslit sem geta orðið.
 
Það se nú gerist er að stjórnin verður að styrkja umboð sitt. Talsverðar líkur eru á klofningi innan VG þótt flokkurinn verði áfram í stjórn og 95 prósent líkur á að hann klofni hafni VG utan stjórnar.

Þjóðaratkvæðagreiðslan í dag innsiglar yfirburði tvöfeldninnar og spillingarinnar yfir vel meinandi langhlauparanum í fjármálaráðuneytinu og ódrepandi gæslukonu velferðarkerfisins í forsætisráðuneytinu.

Allt er sannlíki en ekki sannleikur.
 
---

Mottó:

Í upphafi bókarinnar Captive Mind eða Hugarfjötrar hefur pólska nóbelskáldið Czesław Miłosz yfir máltæki aldraðs Gyðings frá Galicíu:
"Það er mjög gott og engin ástæða til að þrátta ef einhver telur sig í fullri hreinskilni hafa 55 prósent á réttu að standa. Og ef einhver telur sig hafa 60 prósent rétt fyrir sér er það dásamlegt og mikið happ sem þakka ætti guði fyrir. En hvað er að segja um þann sem hefur 75 prósent á réttu að standa? Það er tortryggilegt í augum viturra manna. Nú, en hvað um að hafa 100 prósent rétt fyrir sér? Sá sem kveðst hafa 100 prósent á réttu að standa er ofstækismaður, óþokki og hinn versti fantur."  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.