Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar eftirfarandi á vef Pressunar:
„Bretar og Hollendingar eru vissulega miklu voldugri þjóðir en við, svo að auðvitað þarf að semja við þá. En íslenskur almenningur á ekki að greiða skuldir óreiðumanna. Evrópskir ráðamenn hafa líka viðurkennt, að reglur EES gilda ekki um allsherjarbankahrun. Í þriðja lagi er það ekki hagur þessara stórþjóða að knýja vinveitta smáþjóð í nágrenninu í þrot vegna skuldar, sem hún stofnaði ekki til. Enn fremur eiga Bretar sjálfir mikla sök á því með framgöngu sinni í hruninu, hversu illa fór.“
Setningin: „almenningur á ekki að greiða skuldir óreiðumanna“ er komin frá leiðtoga lífs Hannesar, Davíð Oddssyni, sem tilkynnti þetta í sjónvarpi í byrjun október 2008 í hruninu sjálfu.
Eru sem orð guðs í hans huga.
Fyrirgefðu Hannes Hólmsteinn: Þegar við blasti að Íslendingar ætluðu ekki að greiða skuldir sínar við breska eigendur sparifjár í útibúi Landsbankans í Bretlandi (Icesave) ákváðu bresk stjórnvöld að hlaupa í skarðið og greiða sparifjáreigendum lágmarkstryggingu samkvæmt settum reglum.
Bretar greiddu með öðrum orðum skuld íslenskra óreiðumanna sem fengið höfðu að safna sparifé meðal Breta með vitund vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. Allir sem að málinu komu, óreiðumennirnir eftirlitsaðilar og stjórnmálamenn á Íslandi voru að mestu í flokki Hannesar og klíkunni sem ráðið hafði fjármálalífi þjóðarinnar í áratugi.
Ef bresk stjórnvöld hefðu ekki greitt út sparnaðinn fyrir Íslendinga væri almenningur þar í landi mjög andsnúinn Íslendingum og væri sennilega hættur að kaupa fisk af okkur.
Nú hafa bresk stjórnvöld send okkur reikning fyrir lágmarksinnstæðum sem Hannes vill ekki borga.
Hann rífur kjaft og segir að hér hafi orðið kerfishrun bankanna og skuldbindingar regluverksins nái ekki yfir slíkt.
Er það kerfishrun Hannes Hólmsteinn þegar 10 prósent af einum banka (Landsbankanum) falla á Tryggingasjóð innstæðueigenda?
Mundir þú vilja verja það fyrir rétti?
Blogg
ÞETTA MEÐ SKULDIR ÓREIÐUMANNA
17:01 › 5. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
