Í Sovétríkjunum voru þegnarnir látnir kjósa án valkosta í um 80 ár. Mesta spennan varðandi úrslit tengdist því hvort kosturinn hefði hlotið 99.3 eða 99,7 prósent atkvæða.
Á þessu gekk nokkru skemur í Austantjaldslöndunum eða fimm til sex áratugi.
Nú hafa Bjarni, Sigmundur Davíð og Ögmundur tekið upp þetta þrautreynda fyrirkomulag, en það verður notað í þjóðaratkvæðagreiðslu á vegum forseta Íslands á morgun.
Kosturinn sem hægt er að krossa við er ( ) NEI
Þetta hefur verið útskýrt og þarf ekkert að þrasa um.
Ég bíð spenntur eftir tvennu:
A) Hvort kosningaþáttakan nær 40 prósentum,
B) Hvort 95,5 prósent eða 97,5 prósent þeirra sem greiddu atkvæði sögðu NEI.
Greint verður frá niðurstöðum kosninganna í dagblaðinu PRAVDA sem hefur aðsetur sitt og höfuðstöðvar í Hádegismóum.
Velkomin til Sovétríkjanna.
(Hugmynd að fyrirsögn: SAMNINGURINN FELLDUR Í RÚSSNESKRI KOSNINGU )
Blogg
SOVÉSK ATKVÆÐAGREIÐSLA Á MORGUN
10:14 › 5. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
