ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

HVER ER HÖFUNDUR ÞESSA TEXTA?

15:10 › 31. mars 2010

GÁTA:

Hver er höfundur eftirfarandi texta:

„Það bætir ekki úr skák, að bankarnir vöfðu stjórnmálaflokkunum um fingur sér, dældu í þá fé og röðuðu flokksmönnum á garðann, einkum Landsbankinn, bersýnilega til að kaupa sér frið frá lögboðnu eftirliti og aðhaldi. Við skulum nefna hlutina réttum nöfnum, svo sem ætla má, að rannsóknarnefnd Alþingis muni einnig gera í skýrslu sinni, þegar hún verður loksins birt: Flokkarnir þágu í reyndinni mútur, og það gerðu einnig einstakir frambjóðendur á þeirra vegum.“

? ? ?

Vinsamlega svarið í athugasemdum hér að neðan eða tölvupósti (johannh@dv.is)
Svar birt undir kvöld berist það ekki fyrr.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?