Yfir fámennri íslenskri eyþjóð eru 12 ríkisstjórnir.
Það endurspeglar kattarkenningu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem ekkert taumhald hefur á einum eða neinum þótt veifað sé stjórnarsáttmála framan í einstaka ráðherra.
Nýjasta sönnunin er að sjávarútvegsríkisstjórn Jóns Bjarnasonar strýkur nú sægreifunum í Landssambandi íslenskra útvegsmanna meðhárs og viðurkennir í verki öll sjónarmið LÍÚ gegn anda stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar.
Þetta gerði "ríkisstjórn" Jóns Bjarnasonar í dag með því að úthluta nær öllum makrílkvótanum í samræmi við veiðireynslu undangenginna þriggja ára. Þeir sem veitt hafa mest á undanförnum þremur árum fá mest.
Hinir súpa hel.
Þetta er sami Jón Bjarnason og skrifaði undir endurskoðun kvótakerfisins í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Endurskoðunin á meðal annars að felast í því að skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar og leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka.
Með dekri Jóns Bjarnasonar við LÍÚ - er hann úthlutar “nýrri” tegund til þeirra sem skapað höfðu sér aðstöðu í skjóli sérhagsmunastjórnmála undanfarinna 15 ára - kastar hann stríðshanskanum fyrir fætur þeirra sem krafist hafa breytinga á kvótakerfinu. Um leið og hann strýkur LÍÚ-greifunum meðhárs ýfir hann andstæðinga kvótakerfisins gegn sér. Líka stjórnarliða.
Jón skapar enga sátt. Hann fer gegn stefnumiðum um inköllun kvótans. Hann gerir það á þann grófasta hátt sem hann getur með því að úthluta “nýrri tegund”, nýjum verðmætum og skapa fordæmi að nauðsynjalausu.
Eiga reynsluboltarnir nú að fá að veðsetja makrílkvóta?
Gátu reynsluboltarnir ekki bara leigt kvótann af þjóðinni?
Vildu þeir útiloka samkeppni?
Við hverja?
Vaðalinn frá ráðuneyti Jóns um alhliða verðmætasköpun skiptir hér engu máli. Maðurinn sem hélt sig við prinsípið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í skötuselsmálinu hefur nú gefist upp.
Við gætum eins haft Árna M. eða Einar K. - þæga hunda í bandi LÍÚ - fyrir sjávarútvegsráðherra.
Reglugerð ríkisstjórnar Jóns Bjarnasonar í dag er enn einn naglinn í líkkistu núverandi ríkisstjórnar.
Bráðum er fullneglt.
Blogg
HUNDAR Í BANDI SÆGREIFANNA
21:03 › 31. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
