ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

ÞARFUR BOÐSKAPUR

23:55 › 3. mars 2010

Mér verður stundum hugsað til eftirfarandi boðskapar Jeans Piagets:


Meginmarkmið menntunar er að skapa einstaklinga sem færir eru um að gera nýja hluti, ekki einungis það sem aðrir hafa áður gert. Einstaklinga sem eru skapandi, finna upp og uppgötva.


Annað meginmarkmið menntunar er að rækta eða móta gagnrýna hugsun, sem leitar eftir sönnunum og tekur ekki viðstöðulaust við öllu sem henni er fengið.


Mesta hætta nútímans er fólgin í slagorðum, hópskoðunum og fullmatreiddum hugsanabrautum. Við verðum að kunna að andæfa sem einstaklingar. Við verðum að geta gagnrýnt. Við verðum að geta skilið á milli þess sem unnt er að sanna og hins sem aldrei verður sannað. Við þurfum virka nemendur, sem læra snemma að ráða fram úr viðfangsefnum á sjálfstæðan hátt, sumpart með sjálfsprottnum athöfnum þeirra sjálfra, en einnig með þeim efniviði sem við færum þeim í hendur. Við þurfum nemendur sem átta sig fljótt á því sem unnt er að sanna og geta aðgreint það frá hinu sem kemur þeim einfaldlega fyrst til hugar.

Jean Piaget
(1896-1980 - svissneskur þróunarsálfræðingur og heimspekingur)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.