Á pressan.is tekur doktor Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor svo til orða í pistli og hvetur menn til að krossa í eina reitinn sem í boði er í þjóðaratkvæðagreiðslu, x - NEI:
"Þessir ráðherrar vita jafnvel og aðrir, að Icesave-lögin, sem forseti synjaði staðfestingar, munu verða felld úr gildi í atkvæðagreiðslunni.
Um leið yrði slík niðurstaða áfellisdómur um þá samninga, sem stjórnin gerði við Breta og Hollendinga, og sigur þess ráðherra, sem sagði af sér í mótmælaskyni við þá (Ögmundar Jónassonar), og um leið vitanlega stjórnarandstöðunnar, sem gagnrýndi þá harðlega."
Nú er sem sagt Ögmundur orðinn næst besti vinur Hannesar Hólmsteins á eftir Davíð Oddssyni.
Þriðji besti vinur hans er Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýðveldisins eins og ráða má af tilvitnuninni.
Þeim fjölgar stuðningsmönnum Ögmundar.
Ég veit ekki hvor þeirra lýðræðisunnendanna sagði eftirfarandi, Hannes Hólmsteinn eða Ögmundur, held að það hafi verið sá síðarnefndi af stílnum að dæma. Má kannski einu gilda með þá skoðanabræður:
"Ég fagna þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Hún er tækifæri til að segja yfirgangs- og fjármagnsöflum að þegar hagsmunir fólks og fjármagns takast á, þá á fólkið að láta til sín taka. Á Íslandi býðst okkur farvegur lýðræðisins til að láta rödd okkar heyrast. Þennan farveg eigum við að breikka og dýpka. Sú viðleitni er hafin."
Blogg
NÆST BESTI VINUR HANNESAR HÓLMSTEINS
15:19 › 3. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
