Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, oddivitar ríkisstjórnarinnar, tjáðu sig í RÚV-fréttum klukkan 19:00 um stöðuna í Icesavemálinu.
Efnislega sögðu þau eitthvað á þá leið, að jafnvel þótt samið yrði í kvöld, færi þjóðaratkvæðagreiðslan engu að síður fram á laugardaginn að mestu líkindum.
Jóhanna og Steingrímur hefðu getað talað skýrar.
Þau orða þetta hins vegar svo vegna þess að þau hafa ekki meirihluta á þingi til þess að afstýra heimskulegustu þjóðaratkvæðagreiðslu sögunnar þar sem aðeins er einn x NEI reitur til að krossa við.
Þau hafa ekki meirihluta á þingi vegna þess að Ögmundur Jónasson og fylgsmenn hans innan VG á þingi hafa ákveðið að fylgja stjórnarandstöðunni.
Bjarni Benediktsson, Ögmundur Jónasson, Davíð Oddsson, Lilja Mósesdóttir, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa ákveðið að heimskuleg þjóðaratkvæðagreiðslan bæti vígstöðu þjóðarinnar.
Allt er þetta skrum og vitleysa og tapið vegna tafanna löngu orðið meira en sá ávinningur sem þetta fólk telur sig geta fengið út úr frekara samningaþjarki.
Það sem er vitanlega geggjað í spuna þeirra sem nú valda hægaganginum í Icesave er, að einmitt þau saka ríkisstjórnina um að koma málum ekki áfram.
Af hverju vilja fjölmiðlar ekki fjalla um það sem við blasir: að ríkisstjórnin er í minnihluta?
Og af hverju vill Jóhanna ekki segja okkur frá þessum sannleika?
Það er ekkert að því.
Blogg
DAUFLEGIR LEIÐTOGAR FÓLKSINS
18:12 › 3. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
