ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson hefur bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun www.dv.is árið 2007. Enn lengur hefur hann skrifað kjallaragreinar í DV og gerir enn.
Hann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og "Morgunhani" á Útvarpi Sögu.

LESA STJÓRNARSÁTTMÁLA Á MORGNANA

11:01 › 29. mars 2010


Í frétt hér á DV.is er eftirfarandi haft eftir Ögmundi Jónassyni, VG:

„Jóhanna Sigurðardóttir verður að eiga það við sig hvernig hún orðar hlutina og hvaða augum hún lítur sitt samstarfsfólk,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, um ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum í gær.
Þar sagði Jóhanna of mikinn kraft fara í að fá meirihluta fyrir málefnum ríkisstjórnarinnar inn á Alþingi og að smala saman meirhluta væri jafn erfitt og að smala saman köttum. Þessi ummæli hafa farið fyrir brjóstið á þingmönnum Vinstri grænna sem ætla að funda um málið á morgun.“

Mér flaug í hug athugasemd Stefáns Benediktssonar arkitekts í umræðum um vald og lýðræði hér á bloggsíðunni fyrir nokkur.

Stefán sagði:
„Ef ráðherrar væru ekki alþingismenn þá yrðu þeir að semja við þingflokka eða þingmenn um þingmál. Það þýðir að handsala þyrfti framgangi mála og um leið hefðu þingmenn meiri áhrif á innihald þeirra en nú. Einnig gætu ráðherrar sótt stuðning víðar en í eigin flokk. Þetta er vísast til að auka flækjustigið en eykur nauðsyn samstarfs þings og stjórnar sem aldrei getur orðið nema til góðs. Í dag er stjórnarsáttmáli eiginlegur lokadagur svona samninga þótt allir flokkar hafi alltaf átt sinn Egil Jónsson og Stefán Valgeirsson.“

Ég held að Ögmundur og jafnvel fleiri innan beggja stjórnarflokkanna ættu að gera meira af því að stjaka til hliðar persónulegum ágreiningsmálum og hnútukasti. Þegar allt kemur til alls eru það stefnumálin sem skipta þjóðina máli en ekki endilega fjöldi ráðueyta eða ráðuneytisstólar.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar og þar með stjórnarflokkanna er háborin alvara. Hana ættu liðsmenn stjórnarflokkanna að lesa á morgnana áður ein þeir ganga út í daginn.
Þannig draga þeir úr hættu á klofningi, misskilningi og sundurlyndi.

Ég hef áður skrifað:
Flokkar hafa alltaf klofnað vegna innri málefnaágreinings en einnig vegna glerharðrar samkeppni keppinauta um valdastóla og forystuhlutverk.
 
Járnlögmál fámennisstjórna nær oftast yfirhöndinni. Skilvirkt skipulag og harðsnúin vel skipulögð forysta  greiðir leið stjórnmálaflokks til valda en grefur um leið undan lýðræðinu.
Samlíkingu má taka úr stríði. Því betur sem herir eru skipulagðir, því betri og úthugsaðri sem herstjórnin er og því betri aga sem hershöfðinginn hefur á liði sínu því líklegri er herinn til sigurs.
Stjórnmálaflokkur sem hyggst brjótast undan þessu járnlögmáli fámennisstjórna í nafni lýðræðisins er nánast dæmdur til að tapa valdastöðu til hinna sem hagnýta sér skipulag og skilvirkni fámennisstjórna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.