ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Í FULLRI HREINSKILNI SAGT

15:20 › 29. mars 2010


Eftirfarandi vil ég koma á framfæri með mínum eigin orðum.

Ég hef látið á mér skilja að með eigendaskiptum á DV ætli ég að hætta störfum á blaðinu þar sem ég hef unnið undanfarin misseri. Enn lengur hef ég reglulega ritað kjallaragreinar í blaðið og unnið úttektir.

Blaðamennska er mitt fag og mitt áhugamál og margir hafa hvatt mig til þess að halda áfram.

Ég og Reynir Traustason ritstjóri DV eigum þann sameiginlega draum að gera DV að enn betra blaði þótt okkur hafi greint á um hvernig það verði best gert.
Við sem vinnum á DV vitum öll að við höfum náð undraverðum árangri á einu og hálfu ári eða svo.

Í ljósi þess er viturlegast og skynsamlegast að taka stefnuna á sameiginlega drauminn um betra DV og ýta persónulegum ágreiningsmálum til hliðar.

Einmitt þetta gerðum við Reynir í dag og því verð ég áfram blaðamaður á DV.

Af þeim sökum er ég einnig hættur að leita mér að nýju starfi, en ég hef sótt um þrjú mismunandi störf frá áramótum. Umsókn mína um stöðu fjölmiðlafulltrúa í fjármálaráðuneytinu hef ég þar af leiðandi dregið til baka.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?