Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins ritar grein í Moggann síðastliðinn laugardag.
Helgi segir: "Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kastaði síðan stríðshanskanum með því að keyra í gegnum þingið lög sem klóra í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi í tað þess að ná heildaryfirsýn og heildarsátt um þær breytingar sem gætu orðið til bóta. Undir þessu gátu Samtök atvinnulífsins ekki setið - enda hafði ríkisstjórninni ítrekað verið gerð grein fyrir því að við sáttarof af þessu taki yrði ekki unað - ofan á allt annað sem ekki hefur verið staðið við."
Mig langar til að benda Helga kurteislega á nokkur atriði.
Í fyrsta lagi "keyrði" Jón Bjarnason ekki neitt í gegn um þingið. Hann lagði skötuselsmálið og mörg önnur atriði sem mönnum finnst ágæt) fyrir þingið og Alþingi afgreiddi málið sem lög með einfaldri meirihlutareglu.
(Helgi hefði getað talað við forsetann hefði hann verið mjög óánægður og safnað undirskriftum fyrir þjóðaratkvæði um skötusel o.s.frv.)
Fyrningarleið og innlausn kvóta er sem sagt stefna núverandi þingmeirihluta og ríkisstjórnarinnar.
Sátt í augum LÍÚ, Vilhjálms Egilssonar og Helga felst í að fara að vilja LÍÚ. Útvegsmenn eru ekki vanir því að fallast á málamiðlanir. Þeir hafa yfirleitt haft Sjálfstæðisflokkinn og oft á tíðum Framsóknarflokkinn á valdastóli til að þjóna hagsmunum sínum og séreignarstefnu.
Helgi: Stuðningsmenn kvótakerfisins EIGA að vera óánægðir með stefnu stjórnvalda og þeir eru það frá innstu hjartans rótum. Þess vegna ætlar LÍÚ aldrei - ALDREI - að semja um einhverja málamiðlum.
Leynda markmiðið - markmið númer eitt - er því að koma ríkisstjórninni frá. Alveg sama hvað við tekur, á því verður tekið þegar þar að kemur.
Mjög óviturlegt er að segja upp stöðugleikasáttmála vegna þess að ríkisvaldið standi ekki við þær kröfur sem gerðar eru til þess. (Stöðugleikasáttmálinn er nær einvörðungu kröfur á hendur ríkinu.) - Engu að síður rufu þeir Helgi og Vilhjálmur Egilsson friðarskylduna sem stöðugleikasáttmálinn veitti atvinnurekendum gagnvart samtökum launafólks í landinu. Í raun ættu Helgi og Vilhjálmur að fara yfir það hvers vegna verðbólgan er allt að 9 prósent í landinu um þessar mundir og spyrja sig hvort fyrirtækin innan SI og SA hafi ekki velt byrðum sínum yfir á almenning.
Mætti ég svo að endingu spyrja Helga Magnússon, stjórnarmanninn í Samtökum atvinnulífsins: Kannast hann við að hafa ráðið Árna M. Mathiesen dýralækni, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og varðmann kvótakerfisins til einhverra sérverkefna á snærum Samtaka atvinnulífsins?
Eða á ég að spyrja Vilhjálm Egilsson, sem barmar sér af sama tilefni á hinum helmingi Morgunblaðssíðunnar?
Kannski finnst dýralækninum skötuselsmálið vera ill meðferð á skepnum.
Blogg
Ill MEÐFERÐ Á SKEPNUM
22:55 › 28. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
