Landssamband íslenskra útvegsmanna leggur bókstaflega allt undir vegna skötuselsmálsins. Segja má að Jón Bjarnason og ríkisstjórnin öll hafi með skötuselsmálinu komið við kviku skipulögðustu hagsmuna lítillar þjóðar með því að brjóta gegn séreignareinkennum kvótakerfisins.
Aldrei mátti það gerast að ríkið (þjóðin) úthlutaði kvóta heldur héldi honum hjá sér og leigði út gegn gjaldi sem rynni í sameiginlega sjóði landsmanna. Ekki svo mikið sem kíló af hvaða tegund sem vera skal mátti lúta þeirri reglu.
Nú bregður svo við að LÍÚ er ekkert áfram um að veiða meiri þorsk jafnvel þótt varla yrði tekin mikil áhætta með því að auka þorskkvóta um 10 til 30 þúsund tonn.
Það getur átt sér tvær skýringar.
1. LÍÚ telur að stjórnvöld ætli að beita sömu aðferð og við aukningu skötuselskvóta, þau ætli að leigja útvegsmönnum aukinn þorskkvóta án þess að úthluta honum eftir viðteknum reglum kvótakerfisins.
2. LÍÚ getur hugsað sér að halda áfram að brjóta á bak aftur ríkisvald sem fetar leiðina í átt að innköllun kvótans. Ekki sé tímabært að mæla með tilslökunum í sjávarútvegi fyrr en fyrningarstjórnin er farin frá. Þannig geti ný ríkisstjórn baðað sig í kastljósi aukinna aflaheimilda þegar þjóðin þarf mest á þeim að halda.
Hér má vitanlega geta þess að Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ hefur sagt opinberlega að létta þurfi 100 milljarða króna skuldafargi af sjávarútveginum.
Verulegar líkur eru á að fjöldi útvegsfyrirtækja verði gjaldþrota síðar á árinu. Það merkir að aðrir munu bítast um kvóta þeirra.
Á hvaða verði ætla bankarnir að selja kvóta gjaldþrota útvegsfyrirtækja?
Eftirtektarvert er hversu hávær LÍÚ, hagsmunasamtök útvegsmanna, eru þessa dagana.
Eitt sinn var mér kennt, að því minni sem völd hagsmunasamtaka eða þrýstihópa verða, því meiri hávaði er í þeim í fjölmiðlum.
Því meiri sem völd þeirra eru því hljóðlátari eru þau.
Þetta skýrir ef til vill hversu hljótt er um Landssamband smábátaeigenda.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
